Bæjarins besta - 22.01.2015, Side 11
FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2015 11
Ljósm: Sigurður Bogi Sævarsson.
árin tæplega eða allt til starfsloka
í síðustu viku.
Heim til pabba
og mömmu á ný
Núna eftir starfslokin er Hálf-
dán að flytja aftur heim á Ísafjörð
sunnan af Akranesi. Þess vegna
má spyrja: Verðurðu kannski
Dokkupúki á ný?
„Já, núna 65 ára gamall við
lok starfsferilsins er ég að flytja
aftur heim til pabba og mömmu!
Að minnsta kosti svona til að
byrja með. Þau búa ein í stóru
húsi, orðin háöldruð. Ef ég verð
þarna á efri hæðinni hjá þeim, þá
er ég alltaf tiltækur að hjálpa til.“
Aldrei með mikla
þotudrauma
Löngum hafa flugmennirnir
hjá litlu félögunum litið á starfið
þar sem eins konar stökkpall yfir
á þoturnar hjá stórum flugfélög-
um. Skyldi Hálfdáni aldrei hafa
dottið í hug að gerast flugstjóri á
farþegaþotu?
„Jú, en þetta bara æxlaðist
svona. Ég var aldrei með mikla
þotudrauma, og Afríkuævintýrið
kláraði útilegukvótann hjá mér.
Ég missti gjörsamlega áhugann
á því að búa í ferðatösku. Þessi
ár þarna úti dugðu mér til þess.
Og með tímann alveg frá 2007
og fram undir það síðasta, þá
fóru menn einfaldlega ekki frá
Herði. Það var gaman að vinna
þarna, mórallinn góður og kúnn-
arnir ánægðir. Þetta var mjög
góður tími.“
Klaufi að halda í eiginkonur
– Fjölskylduhagir ...
„Ég hef verið óttalegur klaufi
að halda í eiginkonur. Náði í eina
þegar ég var tuttugu og þriggja
ára og hún entist í níu ár. Með henni
á ég eina dóttur og einn son.
Svo náði ég í aðra þegar ég var
að koma frá Afríku. Með henni
eignaðist ég þrjár dætur, þar á
meðal eina sem var gagngert búin
til fyrir systur konunnar. Sú
eiginkona entist í sextán ár, og
ætli ég kalli þetta ekki bara gott.“
Eitt sem er alveg öruggt ...
– En þó að atvinnuflugmanns-
ferlinum sé lokið, þá ertu væntan-
lega ekki hættur að fljúga ...
„Nei, síður en svo! Ég hef að-
gang að þremur flugvélum á Ísa-
firði!“
– Þú hefur öðru hverju verið
að vinna með Erni bróður þínum
við sjálfvirku snjóþykktarmæl-
ana sem hann hannaði ásamt
mönnum sínum hjá Póls í sam-
starfi við Veðurstofuna ...
„Já, ég hef verið í ígripum að
hjálpa til með einstaka verkþætti
og verð sennilega miklu meira í
því núna. En það verður nú seint
fullt starf, ég reikna með að finna
mér eitthvert hlutastarf í viðbót.
Ég gæti farið að vinna sem raf-
virki í Pólnum,“ segir Hálfdán
Ingólfsson. Og hann bætir við:
„Það er eitt sem er alveg ör-
uggt: Ég verð ekki verklaus fyrir
vestan!“
Viðtal: Hlynur Þór Magnús-
son.
Breytt í tvístefnu - hverfisráðið á móti
Aðalgötu á Suðureyri verður
breytt í tvístefnugötu. Skipu-
lags- og mannvirkjanefnd Ísa-
fjarðarbæjar hefur beint því til
bæjarstjórnar að tillaga að tví-
stefnugötu verði samþykkt.
Hverfisráð Súgandafjarðar
leggst gegn breytingunni og
lagði til tvo aðra valkosti. Fyrsta
val ráðsins var að fá undan-
tekningu frá umferðarlögum
þannig að akstur flutningabíla
verði heimilaður út Aðalgötu á
ákveðnum tímum dagsins og á
ákveðnum hámarkshraða. Ann-
að val var að breyta horni við
Aðalgötu 32, rúnna af gangstétt
og færa ljósastaur þannig að stórir
flutningabílar geti keyrt út Eyrar-
götu.
Í afgreiðslu skipulagsnefndar
segir að ekki fáist undanþága frá
umferðarlögum og annar valkost-
ur hverfisráðsins sé heldur ekki
framkvæmanlegur vegna þreng-
sla. Í umsögn hverfisráðsins kem-
ur fram að eindregin andstaða sé
meðal íbúa um að breyta götunni
í tvístefnugötu og það hafi komið
fram á stofnfundi hverfisráðsins
í nóvember. Einnig segir að fund-
armenn furði sig á að skipulags-
nefnd hafi tekið málið til umfjöll-
unar í ljósi þess hversu lengi
ástandið hefur varað. Óskað var
eftir því að Ísafjarðarbær gerði
grein fyrir ástæðu umfjöllunar-
innar á þessum tímapunkti.
Skipulagsnefnd hefur bent
hverfisráði Súgandafjarðar á að
málið hafi verið tekið fyrir vegna
þess að ekki fékkst leyfi lengur
til að aka stórum bílum á móti
akstursstefnu.
Vandamálið sem við er að etja
er að stórir flutningabílar komast
ekki í gegnum Suðureyri nema
að keyra gegn akstursstefnu. Ut-
an við þorpið er Klofningur ehf.
með hausaþurrkun og reglulega
koma stórir flutningabílar til að
sækja afurðir í útskipun. Um
langt árabil hefur fengist leyfi til
að keyra gegn einstefnu en í fyrra
fór lögreglan að rukka fyrir
fylgd þennan spöl sem er keyrt
á móti einstefnu.
Aðalgata á Suðureyri.