Bæjarins besta - 14.05.2003, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
maður vikunnar
Nafn: Jóhann Hinriksson.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: Í Reykjavík, 28.11.1945.
Atvinna: Bóka-, skjala- og myndavörður.
Fjölskylda: Eiginkonan heitir Sigríður Steinunn
Axelsdóttir og börnin fjögur heita Elín, Axel, Hinrik og
Judith.
Helstu áhugamál: Menning allskonar.
Bifreið: Benz jeppi.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Benz jeppann.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Engin plön svo ég muni.
Uppáhalds matur? Veikur fyrir ítölskum glásum.
Versti matur sem þú hefur smakkað? Hænsn.
Uppáhalds drykkur? Rauðvín.
Uppáhalds tónlist? Nógu gamalt bara!.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? KR?.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Ekkert.
Uppáhalds vefsíðan? www.alltheweb.com
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Ómögulegt
að segja – kannski rússneskur Hamlet sem ég sá
fyrir margt löngu.
Fallegasti staður hérlendis? Skutulsfjörður er frá-
bær.
Fallegasti staður erlendis? Urbino.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Nei.
Uppáhalds heimilistækið? Pavoni.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Ekki
viss.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Rugl.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Ekkert.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-
ast? Nei.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Því hef ég löngu gleymt.
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir
þú breyta? Hreinsa bæinn og spúla stéttar almenni-
lega. Setja hámarkshraðann í ca. 30 km/klst á eyrinni,
veita fótgangendum forgang og leggja af aðrar um-
ferðarhrindranir og selja umferðarskiltin.
Lífsmottó? Hóf er best í hófi.
Sælkerar vikunnar
er Ingibjörg Jónsdóttir
og Axel Jóhannsson
Fiskigratín með
skeldýrum fyrir fjóra
Veikur
fyrir
ítölskum
glásum
600 g fersk fiskiflök – ýsan er alltaf góð!
1 tsk salt
Ofninn er stilltur á 200°C. Fiskurinn skolaður og settur í
eldfast mót. Gott er að sprauta á hann sítrónusafa (ekki síst
ef hann hefur verið frystur) og stráið 1 tsk af salti yfir. Hyljið
með álpappír og setjið í miðjan ofninn og bakið í 15-20
mínútur. Hellið fiskisoðinu af og notið í sósuna.
Gratínsósa
2 msk smjör
3 msk hveiti
4 dl fiskisoð + soð af kræklingi
1 eggjarauða
1 dl rjómi
salt og hvítur pipar
1 msk sítrónusafi
½-1 dl af fersku dilli (eða vel af þurrkuðu)
1 dós af kræklingi og/eða
100 g rækjur
3 tómatar
rifinn ostur
Bræðið smjörið og hrærið hveitið út í. Bætið soði út pott-
inn og hrærið á meðan suðan kemur upp. Sjóðið í 3-5 mín-
útur. Blandið eggjarauðunni út í rjómann og hellið blöndunni
út í sósuna og hrærið á meðan. Eftir þetta má sósan ekki
sjóða. Bragðbætið með salti, pipar og sítrónusafa. Þá er að
setja rækjur og krækling út á fiskinn, leggja tómatana
skorna í tvennt meðfram og strá dillinu yfir. Svo er sósunni
hellt yfir allt saman og ekki má gleyma ostinum í lokin.
Hitinn er hækkaður í 250°C og rétturinn bakaður ofarlega
í ofninum í 10-15 mínútur.
Hrísgrjón og ferskt salat bragðast vel með þessum rétti.
Ekki spillir kælt freyðivín eða hvítvín fyrir.
Við skorum á Guðbjörgu Höllu Magnadóttur og Þröst
Jóhannesson að koma með næstu uppskrift.
Ráðstefna um Vestfirði sem aflstöð íslenskrar sögu haldin í júní
Rannsóknarverkefninu „Vestfirðir
á miðöldum“ hleypt af stokkunum
Ráðstefna undir heitinu
„Vestfirðir – aflstöð íslenskrar
sögu“ verður haldin í Mennta-
skólanum á Ísafirði dagana
13.-15. júní. Þar er ætlunin að
leiða saman þá sem fengist
hafa við rannsóknir á vest-
firskri sögu og menningu á
einn eða annan hátt og fá þá
til að kynna viðfangsefni sín.
Einnig er vonast til að með
þessu verði hægt að ýta undir
frekara samstarf þessara aðila.
Með þessari ráðstefnu verður
hleypt af stokkunum rann-
sóknaverkefni sem fengið hef-
ur heitið Vestfirðir á miðöldum
og áætlað er að standi yfir í
fimm ár. Markmið verkefnis-
ins er að stuðla að grunnrann-
sóknum á sögu Vestfjarða frá
landnámi til 18.aldar. Ætlunin
er að taka svæðið fyrir sem
eina heild og rannsaka það
ítarlega frá sjónarhóli ólíkra
fræðigreina.
Með þessu móti er vonast
til að hægt verði að ná fram
heildstæðri mynd af sögu
svæðisins. Þetta hefur ekki
verið reynt áður hérlendis en
tíðkast víða erlendis.
Að verkefninu standa Hug-
vísindastofnun Háskóla Ís-
lands (Miðaldastofa), Forn-
leifastofnun Íslands, Senter
for studier i vikingtid og nord-
isk middelalder (Middelalder-
senteret) við Oslóarháskóla,
Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða, Fræðslumiðstöð Vest-
fjarða og Byggðasafn Vest-
fjarða. Andrea Sigrún Harðar-
dóttir á Ísafirði hefur verið
ráðin til starfa við verkefnið.
Þar sem starfið er nýtt af nál-
inni er ráðningin tímabundin
enn sem komið er.
Ástæður fyrir þessum
áhuga á Vestfjörðum eru af
ýmsum toga. Svæðið er vel
afmarkað landfræðilega. Þar
hafa varðveist mjög fjölskrúð-
ugar heimildir frá miðöldum
og geta fá jaðarsvæði í Evrópu
státað af öðru eins. Auk þess
er svæðið einstaklega áhuga-
vert vegna þess að á mörgum
skeiðum sögunnar var mannlíf
á Vestfjörðum í fararbroddi
almennrar þróunar á Íslandi.
Því munu væntanlegar rann-
sóknir ekki einungis varpa
ljósi á sögu Vestfjarða heldur
einnig ná að skýra sögu lands-
ins í heild. Á næstu árum
stendur til að vinna að ýmsum
þverfaglegum rannsóknum á
svæðinu og mun verkefninu
ljúka með umfangsmiklum
fornleifagrefti í Vatnsfirði við
Djúp og útgáfu á heildstæðu
riti um sögu Vestfjarða.
Ráðstefnan hefst að kvöldi
föstudagsins 13. júní með því
að opnuð verður sýning í
Menntaskólanum á Ísafirði á
afritum af vestfirskum hand-
ritum. Um kvöldið verður
móttaka fyrir ráðstefnugesti í
Neðstakaupstað á Ísafirði.
Á dagskrá ráðstefnunnar er
margt áhugavert enda um að
ræða rannsóknir í ólíkum
fræðigreinum. Meðal þeirra
sem erindi flytja verða Torfi
H. Tulinius miðaldafræðing-
ur, Adolf Friðriksson forn-
leifafræðingur, Jón Viðar Sig-
urðsson sagnfræðingur, Helgi
Þorláksson sagnfræðingur,
Bergljót S. Kristjánsdóttir
bókmenntafræðingur, Sverrir
Tómasson miðaldafræðingur,
Þórunn Sigurðardóttir ís-
lenskufræðingur, Þóra Krist-
jánsdóttir listfræðingur og
Unnur Dís Skaptadóttir mann-
fræðingur, auk ýmissa annarra
sérfræðinga á ólíkum sviðum.
Einnig má nefna kynningu
á ferðaþjónustuverkefni í
tengslum við Gísla sögu Súrs-
sonar sem er í deiglunni í
Dýrafirði. Ætlunin er að ráð-
stefnugestir skreppi á slóðir
Gísla Súrssonar á laugardeg-
inum. Þá um kvöldið verður
hátíðarkvöldverður þar sem
tónlist eftir séra Ólaf á Sönd-
um í Dýrafirði verður í há-
vegum höfð.
Ferðaskrifstofan Vesturferðir á Ísafirði
Gunnar Þórðarson er hættur
sem framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar Vesturferða á
Ísafirði en hann tók við starf-
inu í september á síðasta ári.
Gunnar segir brotthvarf sitt
vera í fullri vinsemd.
„Fjárhagsleg endurskipu-
lagning sem ég vann að er
leyst og komin í höfn en öll
skipulagningin og vinnan í
kringum hana var gerð með
Gunnar Þórðarson hætt-
ur sem framkvæmdastjóri
ákveðna stefnumótun í huga.
Um leið og ný stjórn var kosin,
þá tók hún vinkilbeygju frá
þeim sjónarmiðum. Mér var
ekki stætt á því að sitja þarna
áfram, hafandi kynnt þessa
stefnu sem ekki verður síðan
fylgt. Ég taldi til dæmis að
Byggðastofnun hefði komið
þarna inn meðal annars út á
þessa stefnumótun og mín
orð. En brotthvarf mitt er við-
skiptalegs eðlis og góð sátt
um það“, segir Gunnar.
Þessa dagana er Gunnar í
prófum. Hann stefnir að því
að ljúka fjarnámi frá rekstrar-
deild Háskólans á Akureyri
nú í vor.
Guðni Geir Jóhannsson,
stjórnarmaður í ferðaskrifstof-
unni Vesturferðum á Ísafirði,
segir að í sínum huga hafi
ekki verið tekið nein vinkil-
beygja í rekstri Vesturferða
eins og skilja má af ummælum
Gunnars Þórðarsonar, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra fé-
lagsins. „Við erum að vinna
út frá því sem hann lagði upp
og erum að vinna að endur-
reisn fyrirtækisins. Ég tel
mjög mikilvægt að þetta fyrir-
tæki haldi velli og verði áfram
öflugt í uppbyggingu ferða-
þjónustunnar hérna“, segir
Guðni.
Gunnar Þórðarson hóf störf
hjá félaginu í september og
tók þátt í endurskipulagninu
þess.„ Mér þykir leitt að
Gunnar skuli vera hættur.
Hann er búinn að koma sér
inn í málin og slæmt að missa
hann út. En hann var búinn að
segja upp þegar núverandi
stjórn tók við fyrir stuttu
þannig að ég sé ekki hvernig
ákvarðanir hennar hafa getað
haft áhrif á afstöðu hans“,
sagði Guðni.
Gunnar Þórðarson. Guðni Geir Jóhannesson.
19.PM5 18.4.2017, 11:036