Bæjarins besta - 05.11.2003, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 Lestu nýjustu fréttir daglega á www.bb.is
Arnar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • Ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
Hef til sölu
fasteignir víða
á Vestfjörðum
Allar nánari upplýsingar
eru veittar á skrifstofu
maður vikunnar
Nafn: Finnbogi Hermannsson.
Fædd/-ur, hvar og hvenær: Í Reykjavík, 20.9.1945.
Atvinna: Forstöðumaður Ríkisútvarpsins á Ísafirði.
Fjölskylda: Kvæntur Hansínu Guðrúnu Garðarsdótt-
ur og eigum við dæturnar Auði og Rannveigu Heru.
Dóttir mín frá fyrra hjónabandi er Guðrún María Finn-
bogadóttir sem býr í London. Stjúpsonur minn er
Heiðar Svanur Óskarsson og býr á Blönduósi. Allt er
þetta uppkomið fólk. Barnabörnin eru fimm.
Helstu áhugamál: Gamlir bílar og bílaviðgerðir, og
sagnfræði og svo að veiða silunga á sumrum. Geri
það með köldu blóði, enda kominn af veiðifólki.
Bifreið: 15 ára gamlir Volvóar 240. Konan ekur á
rauðum Cherokee jeppa 5.2, gamla 318 vélin frá
Chrysler.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Sem gamall Benz-
aðdándi og -eigandi, vildi ég eiga Mercedes Benz
280 SE eða 420 SE, ca 90 módelið. Samskonar
boddý og á bílnum hans Dúdda Halldórs á Ísafirði.
Sá fallegasti sem hefur verið teiknaður og keyrir sig
nánast sjálfur.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítill?
Bóndi.
Uppáhalds matur? Svið að vestfirskum hætti og
lambalærið hjá Hansínu.
Versti matur sem þú hefur smakkað? Ég hef aldrei
fengið vondan mat, nema þá helst svið úr búðunum,
sem reglugerðir hafa gert óæt.
Uppáhalds drykkur? Mjólk.
Uppáhalds tónlist? Það eru þessir gömlu; Bach,
Beethoven, Schubert og síðan þeir sem byggja á
þjóðlegri hefð eins og Smetana, Dvorak, Sibelius og
Grieg. Einnig Frakkarnir s.s. Dabussy og Erik Satie.
Ekki má gleyma Rússunum og ekki heldur Mahler.
Uppáhalds íþróttamaður eða félag? Ekkert sér-
stakt, en ég horfi á enska boltann mér til ánægju og
afþreyingar. Var Valsari í gamla daga eins og
mamma. Hún verður níræð í desember og heldur
með Aston Villa.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Breskir þættir og kvik-
myndir. Hvers vegna er ekki spurt um útvarpið?.
Uppáhalds vefsíðan? Mogginn, BB og Tíðis.
Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Margar góðar.
Fallegasti staður hérlendis? Þingvellir og Ísafjarð-
ardjúp, finn alltaf samhljóm milli Djúpsins og Þing-
vallavatns.
Fallegasti staður erlendis? Mjög falleg í Þrænda-
lögum í Noregi.
Ertu hjátrúarfull(ur)? Nei, en þó. Það ber ekki allt
upp á sama daginn.
Uppáhalds heimilistækið? Uppþvottavélin minnk-
aði sektarkenndina, þegar hún loksins kom.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Lesa
eitthvað bitastætt í friði og keyra norðlensku dalina á
góðum bíl. Og svo auðvitað að vera í skauti fjölskyld-
unnar um helgar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér og hvers vegna?
Tvískinnungur og þegar menn bera kápuna á báðum
öxlum.
Hvað gerir þú til að láta þér líða vel? Leggst í mitt
fleti og les góða bók. Líka gott að glamra á píanóið
eftir erfiðan dag.
Áttu þér leyndan draum sem þú ætlar að láta ræt-
ast? Já, eiginlega. Hann er reyndar ekkert leyndur,
það er að geta setið við skriftir, ef ég næ eftirlauna-
aldri og gripið í bílaviðgerðir og smíðar þess á milli.
Það er ekki flóknara en það.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í?
Það var þegar ég hélt að Björn Bjarnason, þáv.
menntamálaráðherra, væri að færa mér fötin mín
vestur á Reykhólum. Ég hafði gleymt þeim á herðatré
í Bjarkalundi. En hann var bara að bera fötin sín inn
í samskonar plasti og mín voru í. Þetta var á Fjórð-
ungsþingi fyrir tveimur árum. Slíkt var fasið á Birni,
að ég reyndi ekki að útskýra málið. Fötin mín komu
síðar heil á húfi.
Ef þú værir bæjarstjóri í einn dag, hverju myndir
þú breyta? Pólitískur bæjarstjóri getur breytt og haft
áhrif. Ég mundi reyna að hafa áhrif á uppbyggingu
atvinnulífsins að því marki sem það er á valdi einnar
bæjarstjórnar. Það er lífsnauðsyn núna. Mikil þekking
og færni er fyrir hendi á svæðinu.
Lífsmottó? Að þreyja þorrann og góuna.
Mamma
er nær
níræð og
heldur með
Aston Villa
Fylkir Ágústsson, bókari á
Ísafirði, hefur í áratug rekið
ferðaskrifstofu með umboð
fyrir sumarhús og bílaleigubíla
í Danmörku. Hann segir við-
skiptavini sína vera um allt
land og að þegar séu farnar að
berast bókanir fyrir næsta sum-
ar. „Margir skipuleggja sig
með góðum fyrirvara. Sérstak-
lega þegar margir er að fara
saman og þurfa að gera ráðstaf-
anir, t.d. þegar stórar fjölskyld-
ur eru að koma saman eða
menn eru að hittast af ein-
hverju tilefni“, segir Fylkir.
Hann segir síðustu vertíð
hafa gengið vel en ferðaskrif-
stofan sé farin að festa sig í
sessi. Þeir sem nýti þjónustu
hans skipuleggi sínar ferðir
sjálfir og það sé orðið einfald-
ara en áður. „Aðgangur að net-
inu til að bóka flugfar er orðin
einfaldur og ódýrara er að
panta beint. Fólk sest einfald-
lega niður og skipuleggur sitt
frí heima hjá sér“, sagði Fylkir
Ágústsson.
– kristinn@bb.is
Þegar farið að bóka
fyrir næsta sumar
Ferðaskrifstofan Fylkir á Ísafirði
Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar & Co. á Þingeyri
Umfangsmiklar endurbætur
hafnar á gömlu smiðjunni
Hafnar eru umfangsmiklar
viðgerðir og endurbætur á Vél-
smiðju Guðmundar J. Sigurðs-
sonar & Co. á Þingeyri. Um
fyrsta áfanga er að ræða. Þar
er þakið heilklætt upp á nýtt,
skipt um sperrur fyrir þær sem
eru ónýtar og aukasperrum
bætt inn í. Þakið einangrað
ofan frá, neglt á langbönd og
járn sett á. Reynt verður að
halda útliti hússins að innan
óbreyttu. Frá þessu er greint
er á Þingeyrarvefnum. Guð-
mundur Jón Matthíasson, einn
af erfingjum vélsmiðjunnar,
segir í samtali við Þingeyrar-
vefinn að ekki hafi verið hjá
því komist að ráðast í fram-
kvæmdirnar þar sem vélar og
tæki hafi legið undir skemmd-
um.
Framkvæmdir eru fjár-
magnaðar úr sjóði smiðjunnar
en fyrst og fremst af fjölskyld-
unni sem áður rak vélsmiðj-
una. Leitað hefur verið ásjár
Ísafjarðarbæjar um að skattar
og gjöld á þessu ári verði felld
niður en jafnframt að verkefn-
inu yrði veittur styrkur sem
samsvari núvirði álagðra
gjalda á árunum 1995-2002.
Menningarnefnd bæjarins hef-
ur beint því til bæjarstjórnar
að málið verði tekið á dagskrá
við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar.
Óhætt er að segja að smiðjan
hafi sögulegt gildi fyrir Ísa-
fjarðarbæ og landið allt. Grein-
arhöfundur á Þingeyrarvefn-
um segir það einnig eiga við
um gamla salthúsið á Þingeyri
og segir að Ísafjarðarbær
mætti sýna þessum sögulegu
húsum í Ísafjarðarbæ en utan
Ísafjarðar meiri virðingu þann-
ig að í framtíðinni geti þau
skipað þann sess sem þau eigi
skilið.
Áætlaður kostnaður við
fyrsta áfangann er 7-8 milljón-
ir, en heildarkostnaður er áætl-
aður 25-30 milljónir. Verktaki
við fyrsta áfangann er Sig-
mundur F. Þórðarson, á Þing-
eyri. – kristinn@bb.is
Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar & Co. á Þingeyri.
Útreikningar Orkustofnunar
Húshitun 43% dýrari á
Vestfjörðum en í Reykjavík
Samkvæmt útreikningum
Orkustofnunar er húshitunar-
kostnaður fyrir dæmigert íbúð-
arhús 43% hærri á Vestfjörð-
um en í Reykjavík og meira
en fimmfalt hærri en þar sem
hann er lægstur. Orkustofnun
birti á dögunum útreikninga á
húshitunarkostnaði hjá hita-
veitum í september 2003. Þar
er miðað við dæmigert íbúðar-
hús eins og segir í forsendum
Orkustofnunar eða um 430
rúmmetra að stærð. Lægstur
er húshitunarkostnaður hjá
Hitaveitu Laugaráss eða tæpar
17 þúsund krónur á ári. Það
kostar viðskiptavini Orkubús
Vestfjarða rúmar 86 þúsund
krónur að hita hjá sér sambæri-
legt húsnæði eða um fimmfalt
hærra en þar sem lægst er. Er
það fimmti hæsti húshitunar-
kostnaður á landinu.
Hæstur er kostnaðurinn hjá
Hitaveitu Rangæinga eða tæp-
ar 98 þúsund krónur á ári. Aðr-
ir staðir þar sem húshitun er
dýrari en á Vestfjörðum eru
Siglufjörður, Reykhólar og
Seyðisfjörður. Sambærileg
upphæð í Reykjavík er rúmar
60 þúsund krónur.
Fram hafa komið hugmynd-
ir um sameiningu Norðurorku
á Akureyri, Rarik og Orkubús
Vestfjarða. Því er athyglisvert
að skoða húshitunarkostnað
hjá þessum þremur fyrirtækj-
um. Húshitunarkostnaður á
sem eru bæði hærri og lægri
en á Vestfjörðum.
Sá munur sem nú er á hús-
hitunarkostnaði á Vestfjörðum
og höfuðborgarsvæðinu er
mun minni en var á árum áður.
Þá rifjast upp þjóðsagan líf-
seiga af Vestfirðingnum sem
flutti á mölina og greiddi mán-
uðum saman af misgáningi
húshitunarkostnað fyrir allan
stigaganginn í blokkinni þar
sem hann bjó og þótti lítið. Nú
hefur munurinn á þessum
svæðum minnkað þannig að
sú saga á ekki við lengur.
– hj@bb.is
Akureyri er samkvæmt út-
reikningum Orkustofnunar
nánast sá sami og á Vestfjörð-
um en hjá Rarik sjást tölur
Orkubú Vestfjarða.
44.PM5 18.4.2017, 11:576