Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.2002, Qupperneq 2

Bæjarins besta - 09.01.2002, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 LEIÐARI Fyrir lífið sjálft Umboðs- aðilar BB Eftirtaldir einstaklingar sjá um sölu og dreifingu á BB á þétt- býlisstöðum utan Ísafjarðar: Bolungarvík: Nikólína Þor- valdsdóttir, Hjallastræti 38, sími 456 7441. Súðavík: Sindri V. Gunnarsson, Holtagötu 11, sími 456 4982. Suðureyri: Deborah Anne Ólafsson, Aðal- götu 20, sími 891 7738. Flat- eyri: Gunnhildur Brynjólfsdótt- ir, Brimnesvegi 12a, sími 456 7752. Þingeyri: Selma Rut Sófusdóttir, Hlíðargötu 40, sími 456 8269. Frá útgefendum: Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 • Netfang prentsmiðju: hprent@bb.is • Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, netfang: bb@bb.is• Ritstjóri netútgáfu: Hlynur Þór Magnússon, símar 456 7322 og 892 2240, netfang: blm@bb.is • Blaðamaður: Guðfinna M. Hreiðarsdóttir, sími 456 4448, netfang: umbrot@bb.is • Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, netfang: halldor@bb.is • Fréttavefur: www.bb.is • Lausasöluverð er kr. 200 eintakið m. vsk. • Áskriftarverð er kr. 170 eintakið • Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti • Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimildar sé getið. Sveitarfélög á Vestfjörðum fengu á síðasta virkum degi fyrir áramót greiddar samtals 93,1 milljónir króna í auka- framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna fólks- fækkunar á árunum 1999- 2001. Yfir landið allt var fram- lag ríkisins 350 milljónir króna til sveitarfélaga þar sem íbúum fækkaði á nefndu tíma- bili. Tíu af tólf sveitarfélögum á Vestfjörðum fengu eitthvað af þessu framlagi eða öll nema Tálknafjarðarhreppur og Bæj- arhreppur. Um 17,9 millj. runnu til Vesturbyggðar, um 9,8 millj. til Bolungarvíkur- kaupstaðar, um 8,1 millj. til Hólmavíkurhrepps og um 6 millj. til Súðavíkurhrepps. Ef litið er á einstök kjör- dæmi fór stærsta framlagið til Vestfjarða, litlu minna til Austurlands eða 85,6 millj- ónir, til Norðurlands eystra fóru 72,1 milljónir og til Norð- urlands vestra 46 milljónir. Ísafjarðarbær fékk mest allra sveitarfélaga á landinu eða 44,5 milljónir. Næst kom Fjarðabyggð með 35,3 millj- ónir. Aukaframlögum þessum er einkum ætlað að vera til mótvægis við minnkandi út- svarstekjur sveitarfélaganna sem þurfa á ýmsum sviðum að kosta eins miklu til þjón- ustu þótt fólki fækki. 93,1 milljón til Vestfjarða Aukaframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga Samfylkingin í Ísafjarðarbæ kemur í stað K-lista Ekki hefur verið rætt við neina aðra um sameiginlegt framboð Ekkert hefur enn verið ákveðið hvernig staðið verður að undirbúningi framboðs hjá þeim sem standa að núverandi K-lista, sem er í minnihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, að sögn Bryndísar G. Frið- geirssonar, oddvita listans. Hins vegar segir hún það fast- ákveðið, að Samfylkingin muni bjóða fram við komandi bæjarstjórnarkosningar. Seint á nýliðnu ári var stofnað Sam- fylkingarfélag í bæjarfélaginu sem mun standa að framboð- inu. „Þeir sem stóðu að K-list- anum við síðustu kosningar voru Alþýðubandalag, Al- þýðuflokkur og Kvennalisti enda þar þá ekki búið að stofna Samfylkinguna sem stjórnmálaflokk“, segir Bryn- dís. „Seint á nýliðnu ári var síðan stofnað Samfylkingar- félag í bæjarfélaginu sem mun standa að framboði hér. Bryndís segir að ekki hafi enn komið fram hverjir af sitj- andi bæjarfulltrúum K-lista muni hafa hug á framboði á ný. Aðspurð hvort til greina komi að Samfylkingin bjóði fram í samvinnu við Vinstri græna eða einhver önnur póli- tísk öfl segir Bryndís, að ekk- ert hafi enn komið fram um slíkt. Engar viðræður eða þreifingar hafi átt sér stað milli Samfylkingarinnar í Ísafjarð- arbæ og neinna annarra. „Við munum ekki leita til annarra í þeim efnum enda þarf Sam- fylkingin ekki á því að halda. Aðrir hafa heldur ekki haft samband við okkur.“ Ekkert er farið að ræða hvort Samfylkingin í Ísafjarð- arbæ efnir til prófkjörs eða hvort stillt verður upp á lista með öðrum hætti. Bryndís segir hins vegar að fljótlega verið farið að huga að þeim málum. Sextíu og tvö börn fæddust á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði á síðasta ári. Af þeim voru drengir 26 og stúlkur 36. Árið 2000 fæddist hins vegar 51 barn á Fjórðungs- sjúkrahúsinu og er því fjölg- unin 11 börn á milli ára. Ísafjörður Fæðingum fjölgaði um 11 Þegar berklasjúklingar ákváðu að taka höndum saman og styðja hvern annan í baráttunni við hvítadauðann, sem allt fram yfir miðja síðustu öld var vágestur hinn mesti meðal íslensku þjóðarinnar, og stofnuðu SÍBS árið 1938, hefur þá vart grunað að samtök þeirra ættu eftir að marka jafn heillavænleg spor og raun ber vitni, þótt ekki hafi þá skort áræði og með hverjum og einum þeirra hafi, þrátt fyrir allt, búið sá lífsvilji með von um betra líf, sem til þurfti. Með stofnun SÍBS var flugið tekið og ekki aftur snúið. Vængja slátturinn jókst. Sjö árum síðar var Vinnuheimilið að Reykjalundi stofnað. Ólíklegt er að það fólk sem þar var að verki hafi séð fyrir hvílíku stórvirki það var að hrinda leggja grunninn að. Allt frá stofnun happdrættis SÍBS hefur það verið bakhjarl þeirrar miklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á Reykjalundi. Slagorð happ drættisins – fyrir lífið sjálft – eru orð að sönnu. Þegar litið er til baka og skoðaður sá árang- ur sem þar hefur náðst í gegnum árin, skref fyrir skref, er ljóst að þrekvirki hefur verið unnið. Og áfram heldur afrekaskráin þar á bæ að lengjast með hverjum nýjum degi. Það eru vart ýkjur að ekki finnst sá maður hérlendur sem ekki er skyldur, eða tengdur, einhverjum, eða þekkir einhvern sem notið hefur endur- hæfingar á Reykjalundi eftir erfiða sjúkdómslegu og þar með betra lífs en ella hefði verið, hafi þess á annað borð verið nokkur kostur. Vegna þessa er það ekki of mælt að öll stöndum við í þakkarskuld við Reykjalund, ómælda og ómetanlega. Síðan sigur vannst á berklaveikinni er Reykjalundur orðinn alhliða endurhæfingarstöð þar sem hjartasjúklingar hafa fasta viðkomu til að búa sig á ný undir átökin við daglegt líf eftir að hafa gengið í gegnum erfiða sjúkra- húsvist, svo dæmi sé tekið. Áreiðanlega vill enginn þeirra leiða hugann að því hver staða þeirra væri ef Reykjalundur hefði aldrei litið dagsins ljós. Að svo varð getum við þakkað kjarkmiklu og þrautseigu fólki sem sjálft barðist við sjúkdóm sem á þeim tíma var dómur sem ekki varð áfrýjað. Stuðningur við Reykjalund er stuðningur við okkur sjálf – fyrir lífið sjálft. s.h. Um þessar mundir stendur yfir sýning bandarísku mynd- listarkonunnar Holly Hughes í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar sýnir hún afrakstur sköp- unarstarfa sinna hér á landi og við strendur landsins, auk sýnishorna af eldri verkum. Mest er þó um ljósmyndir af Hornströndum. Holly dvelst á Ísafirði í vetur eftir margra ára ferðalög um heiminn ásamt George MacLeod, fyrst á reiðhjólum en síðustu árin á skútunni Hannah Brown sem þau ákváðu í haust að leggja á Ísafirði yfir veturinn. Sýningin í Edinborg verður opin áfram á virkum dögum í janúar og er fólk hvatt til að koma sem oftast þar sem hún er breytileg frá degi til dags og sífellt bætast nýjar myndir við. Næstu tvær helgar verður sýningin síðan opin frá kl. 15 til 19. Þeir sem óska eftir að skoða hana á öðrum tíma geta haft samband við Holly í síma 456 5667. Holly Hughes sýnir út jan- úarmánuð Ísafjörður

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.