Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 3 Bæjarlífið á Þingeyri lamaðist vegna hræðilegs eldsvoða aðfaranót síðastliðins föstudags Ung hjón og sonur þeirra fórust Ung hjón og barnungur sonur þeirra fórust í elds- voða að Aðalstræti 49 á Þingeyri aðfaranótt föstu- dags. Þau hétu Hreiðar Snær Línason, 22ja ára, Ingibjörg Edda Guð- mundsdóttir, 20 ára, og Leon Örn Hreiðarsson, tæplega tveggja ára. Föður- num tókst að bjarga syni þeirra á fjórða ári út úr hús- inu og fór síðan aftur inn til að reyna að bjarga konu sinni og yngra barninu. Hann átti ekki afturkvæmt út en eldsprenging mun hafa orðið í íbúðinni eftir að hann fór inn aftur. For- eldrar Hreiðars og systir bjuggu á efri hæð hússins og komust þau út heilu og höldnu. Húsið Aðalstræti 49 er timburhús á steyptum kjallara. Fyrir nokkru var íbúð innréttuð í kjallaran- um þar sem ungu hjónin bjuggu ásamt sonum sín- um. Upptök eldsins eru rakin til kertaskreytinga, eftir því sem fram kom í tilkynningu lögreglunnar að rannsókn lokinni. Þá sagði að ekki sé vitað til þess að reykskynjari hafi verið í íbúðinni. Ekkert benti til þess að kviknað hefði í af völdum rafmagns. Lögreglan á Ísafirði naut aðstoðar tveggja sérfræð- inga frá ríkislögreglustjóra og eins frá rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu við vett- vangsrannsóknina. Sigmundur Þórðarson byggingameistari á Þingeyri var ásamt öðrum sjúkraflutn- ingamanni fyrstur á vettvang af björgunarliði. Hann fékk boð um eldinn um kl. 3.15. Hann var þá sofandi heima hjá sér en heimili hans er um þremur húslengdum frá Aðal- stræti 49. Á leiðinni að slökk- vistöðinni ók hann framhjá brennandi húsinu. Þar var þá gífurlegt eldhaf. Kjallarinn var alelda og eldtungur náðu langt út um gluggann. Flestallar rúður í kjallaranum sprungu út og til marks um hve bálið var mikið teygði eldurinn sig á tímabili upp fyrir þakskegg hússins. Sigmundur telur að þeir hafi verið komnir á sjúkrabílnum að húsinu um þremur mínút- um eftir að útkall barst. Þá vissi hann ekki betur en fjórir væru innlyksa inni í húsinu. Eldhafið var á hinn bóginn svo gríðarlegt að ekki var við- lit fyrir þá að komast inn í húsið. Þeir urðu því að bíða þar til slökkviliðsbíll kom á vettvang með reykkafara. Sig- mundur segir að biðin hafi virkað á sig sem heil eilífið. Erfitt væri þó að meta hversu langur tími leið í raun. Það hefðu þó örugglega verið nokkrar mínútur. Í loftinu á íbúðinni var plast- einangrun sem var mikill elds- matur og myndaðist baneitr- aður reykur þegar hún brann. Svo virðist sem einangrunin í lofti stofunnar hafi brunnið að langmestu leyti. Einangr- unin bráðnaði og lak logandi niður á gólf en eina útgöngu- leiðin út úr íbúðinni liggur í gegnum stofuna. Nánast allt sem var í kjallaranum er ónýtt. Klæðningar á veggjum brunnu víða frá lofti og niður í gólf en innréttingar í svefn- herbergjum eru ekki eins illa farnar. Einn slökkviliðsbíll er á Þingeyri. Hann er rúss- neskur og um fimmtíu ára gamall en mun þó standa fyrir sínu. Á hinn bóginn munu brunahanar í bænum vera frekar lélegir og mættu veita meiri vatns- þrýsting. Frá brunastað að Aðalstræti 49 á Þingeyri að morgni föstudagsins 4. janúar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.