Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 09.01.2002, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 5 25% smáar afsláttur af öllum fatnaði á fimmtudag, föstudag og laugardag Útsalan hefst á mánudag! Útköll hjá Slökkviliði Ísa- fjarðarbæjar voru 28 á síðasta ári. Þar af voru 12 vegna elds en ekki var um stórtjón að ræða í neinu tilfelli. Önnur útköll voru af margvíslegum ástæðum og oft um ýmis kon- ar aðstoð að ræða. Þannig voru t.d. fjögur út- köll vegna vatnsflóðs, einu sinni var snjór hreinsaður af þaki Sundhallarinnar og í nóv- ember var slökkviliðið fengið til að hreinsa seltu af spenni- virkjum Orkubús Vestfjarða. Sjúkraflutningar hjá Slökkvi- liði Ísafjarðarbæjar á liðnu ári voru 232, þar af almennir flutningar í 160 tilvikum og neyðarflutningar í 72 tilvik- um. Af öðrum viðfangsefnum Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar á síðasta ári má nefna, að skoð- anir vegna eldavarnaeftirlits voru framkvæmdar á 45 stöð- um. Einnig voru haldnir 40 fyrirlestrar fyrir almenning. Slökkvilið Ísafjarðarbæjar Tólf útköll vegna elds- voða á síðasta ári Tölvuþjónustufyrirtækið Vestmark ehf. á Ísafirði hefur stefnt Tölvuþjónustunni Snerpu á Ísafirði og krafist um 30 milljóna króna í bætur vegna riftunar á samningi sem gerður var á síðasta vori um sameiningu fyrirtækjanna tveggja. Í síðustu viku var greint frá þessu máli í öðrum fjölmiðli en þar kom fram nokkur misskilningur eða mistúlkun á málsatvikum. „Stefnan var birt lögfræð- ingi okkar í Reykjavík á síð- asta birtingardegi fyrir jól. Ég hef lesið hana og get með engu móti séð að að hún sé byggð á neinum vitrænum for- sendum. Þessi krafa er hrein- lega alveg út í bláinn. Það kæmi mér ekki á óvart, að þegar upp er staðið verði okk- ur dæmdar einhverjar bætur en ekki þeim“, segir Björn Davíðsson, annar af aðaleig- endum Snerpu ehf. „Við höfum engar sérstakar áhyggjur af þessu máli. Þetta fær einfaldlega að ganga sinn gang. Upphæðin sem krafist er sýnir kannski best veru- leikafirringuna sem þarna liggur að baki. Ég vil taka fram, að mér finnst allt benda til að þetta sé runnið undan rifjum Magnúsar Böðvars Ey- þórssonar, stjórnarformanns Vestmarks, en alls ekki sé við heimamenn í forsvari hjá fyr- irtækinu að sakast í þessu efni. Því var haldið fram í öðrum fjölmiðli í síðustu viku að við hefðum verið að taka inn nýja hluthafa á meðan sameining- arferli Snerpu og Vestmark stóð yfir. Þetta er einfaldlega rangt. Við hefðum ekki verið að hanga á Vestmarksmönn- um að skila inn sínu hlutafé í heila viku eftir að frestur þeirra til þess rann út ef við hefðum verið með eins mikið hlutafé og meira til handan við hornið. Það segir sig nú eiginlega sjálft“, segir Björn Davíðsson. – segir Björn Davíðsson, annar aðaleigenda Snerpu „Þessi krafa er hreinlega út í bláinn“ Vestmark stefnir Snerpu og krefst tugmilljóna króna í bætur Fyrsta barnið á Sjúkra- húsinu á Ísafirði á þessu ári fæddist kl. 20.45 á þrett- ándanum, sunnudaginn 6. janúar. Það var strákur sem var sextán merkur og 55 sentimetrar. Foreldarnir eru Berghildur Árnadóttir og Helgi Hjartarson, búsett á Ísafirði. Þetta er annað barn þeirra en fyrir eiga þau son- inn Hjört Ísak sem verður þriggja ára í febrúar. Á myndinni er Berghildur með soninn unga. Áður höfðu þau Bryndís Ásta Birgisdóttir og Bjarni Jóhannsson á Suðureyri eignast stúlku sem tekin var með keisaraskurði í Reykjavík að kvöldi 4. janúar. Hún var átján merk- ur og 54 sentimetrar og er fyrsta barn þeirra Bryndísar og Bjarna. Fyrstu börnin á nýju ári líta ljósið Fékkstu þér nýtt sófasettfyrir jólin? Vantar þig ekki að losna við gamla settið? Okkur vantar smekklegan hornsófa eða sófasett. Upp- lýsingar í símum 869 9009 eða 868 0703. Nokia 3310 GSM tapaðist á gamlárskvöld á eyrinni á Ísafirði. Upplýsingar í síma 456 5176. Til sölu eru barnakojur með nýjum dýnum. Uppl. í síma 456 4102 á kvöldin. Til leigu er bílskúr. Upp- lýsingar í símum 456 3740 eða 866 7435. Til leigu er 4ra herb. íbúð á eyrinni á Ísafirði. Mjög fallegt útsýni og húsaleiga aðeins kr. 25 þús. á mán. Íbúðin er laus. Uppl. gefur Össur í síma 895 7155. Óska eftir lítið notuðum, negldum vetrardekkjum, 14", 185x70. Upplýsingar í síma 861 7845. Blár Ericson GSM farsími tapaðist á eða við gamla sjúkrahústúnið 6. janúar. Finnandi hafi samband við Halldór í símum 456 4560 eða 456 5222. Óska eftir að kaupa Abslider magabana. Uppl. gefur Óli í síma 456 3923. Til leigu er 3ja herb. íbúð á neðri hæð að Urðarvegi 49 á Ísafirði. Íbúðin er 94 m². Uppl. í síma 456 3547. Góð íbúð að Stórholti 7 á Ísafirði er til sölu eða leigu. Hagstæð áhvílandi lán. Laus nú þegar. Uppl. í síma 456 6249 og 897 6293. Til sölu er nýlegur Tyco kerruvagn. Selst ódýrt á kr. 15 þús. Upplýsingar í síma 848 6013. Til sölu er Emmaljunga kerra á kr. 15 þús. og Simo keruvagn á kr. 15 þús. Uppl. í síma 456 3143 eftir kl. 17 á daginn. Týndi lyklum af Skoda Octavia í neðri bænum á Ísafirði í vikunni fyrir jól. Lyklarnir eru með fjar- stýrði læsingu. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 456 3305. Til leigu er 100m², 4ra herb. einbýlishús í miðbæ Reykjavíkur. Lítill garður með heitum potti. Sér bíla- stæði. Leiguverð kr. 90 þús. á mánuði án hita og raf- magns. Laus strax. Upplýs- ingar í símum 560 0078 eða 895 8149. Til sölu eru tvö 35" notuð nagladekk og felgur og tvö ný ónegld dekk af sömu stærð. Upplýsingar í síma 456 7109 á kvöldin. Óska eftir að kaupa Orbi- trekk (göngubraut). Uppl. í síma 456 4244 á kvöldin. Hefur einhver fundið Can- on A5 Zoom, stafræna myndavél ásamt fylgihlut- um sem tapaðist á Ísafirði 17. nóvember sl. Hafið samband í síma 894 8630. Til sölu er Mobira NMT far- sími með skráðu númeri. Uppl. gefur Benedikt í síma 456 7000 og 456 7388. Gerist áskrif- endur í síma 456 4560

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.