Bæjarins besta - 09.01.2002, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002
Samkvæmt bráðabirgða-
tölum frá Fiskistofu þá var
landaður heildarafli á Vest-
fjörðum 82.138 tonn á tíma-
bilinu 1.janúar–30. nóvem-
ber 2001. Er það 1.368
tonnum meira en á sama
tímabili árið 2000. Stór hluti
þessa afla er loðna sem landað
var í Bolungarvík, eða 27.433
tonn. Mestur þorskafli kom á
land á Ísafirði eða 6.629 tonn,
á Patreksfirði 5.687 tonn og í
Bolungarvík 5.531 tonn.
Þorskafli á Vestfjörðum var í
heild 32.181 tonn eða 1.434
tonnum minna en á síðasta
ári.
Heildarrækjuafli var 5.099
tonn sem er ívið meira en á
sama tímabili í fyrra en þá var
aflinn 4.910 tonn. Mest var
landað af rækju í Súðavík,
2.130 tonnum, og á Ísafirði
1.268 tonnum. Steinbítsafli
var mestur á Tálknafirði,
2.307 tonn, sem er talsverð
aukning frá því í fyrra en þá
var aflinn 1.865 tonn. Á Patr-
eksfirði var landað 1.472
tonnum af steinbít en alls
komu 7.853 tonn af steinbít á
land á Vestfjörðum.
Aflatölur Fiskistofu byggj-
ast á upplýsingum sem berast
frá löndunarhöfnum innan-
lands og útflytjendum afla og
frá umboðsmönnum erlendis.
Allur afli er umreiknaður til
afla upp úr sjó (óslægt). Þetta
eru bráðabirgðatölur sem
kunna að breytast þegar
endurskoðun þeirra er lokið
og þær hafa verið bornar
saman við aðrar upplýsing-
ar, m.a. eftir samanburð við
upplýsingar sem Fiskistofa
fær í vigtarskýrslum.
Smávægileg aflaukning á síðasta ári
Bráðabirgðatölur Fiskistofu um heildarafla á Vestfjörðum á tímabilinu 1. janúar til 30 nóvember 2001
Alls var tekið fyrir 581
mál hjá Héraðsdómi Vest-
fjarða á síðasta ári á móti
486 málum árið á undan.
Einkamál sem biðu af-
greiðslu frá fyrra ári voru
22 (19 á árinu á undan), þar
af 13 (8) munnlega flutt.
Höfðuð voru 259 (231)
ný einkamál og fóru 20 (34)
í munnlega meðferð. Af-
greidd voru 27 (29) einka-
mál sem sættu munnlengri
meðferð og 236 (199), sem
sættu skriflegri meðferð. Í
árslok voru 18 (22) óaf-
greidd einkamál.
Óafgreidd sakamál frá
fyrra ári voru 8 (20) í ársbyrjun
2001. Höfðuð voru 258 (187)
ný sakamál á árinu, þar af 96
(51) með ákærum, en 162
(136) með kröfu um ákvörðun
viðurlaga með áritun á ítrekað
sektarboð. Öllum málum af
síðarnefndu tagi var lokið á
árinu. Dómur gekk í 50 (34)
ákærumálum á árinu, sæst var
á viðurlög í 18 (11), en 19 (8)
fengu aðra afgreiðslu, með því
að vera sameinuð öðrum mál-
um, afturkölluð eða vísað frá
dómi. Í lok ársins biðu 17 (8)
mál afgreiðslu hjá dómnum.
Til meðferðar hjá dómnum
voru 41 (43) krafa um gjald-
þrotaskipti, þar af 1 (10)
frá fyrra ári. Þar af vörð-
uðu 23 (13) einstaklinga,
en 18 (30) lögaðila. Tíu
einstaklingar (5) og tíu
lögaðilar (15) voru teknir
til gjaldþrotaskipta á árinu,
en fimm mál bíða afgreið-
slu. Öðrum málum lauk
með því að þeim var ýmist
vísað frá eða felld niður.
Til afgreiðslu í öðrum
málaflokkum komu 24
(35) ný mál. Engin mál í
þeim málaflokki biðu af-
greiðslu í árslok á móti
tveimur málum árið á und-
an.
Málum fjölgaði um
95 á síðasta ári
Héraðsdómur Vestfjarða
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði þar sem Héraðsdómur Vestfjarða er til húsa.
Bolfiskfrystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS 270
Með mesta aflaverð-
mætið á síðasta ári
Frystitogari Hraðfrysti-
hússins-Gunnvarar hf. í Hnífs-
dal, Júlíus Geirmundsson ÍS
270, er eftir því sem næst verð-
ur komist, með hæsta afla-
verðmæti bolfiskfrystitogara
á síðasta ári. Aflaverðmætið
er 1.100 milljónir króna (CIF).
Aflinn upp úr sjó var 4.860
tonn, sem er 702 tonnum
minna en á síðasta ári, en þá
var stór hluti aflans úthafs-
karfi, en í ár aðallega þorskur
og grálúða.
Aflinn fékkst á 10 mánuð-
um, því á árinu fóru 6 vikur í
verkfall og 2 vikur í slipp. Í
áhöfn skipsins eru 25 sjó-
menn, en stöðugildi háseta af
heildaraflanum nemur um
11,5 milljónum króna. Allir
yfirmenn skipsins eru eina
veiðiferð á sjó og aðra í landi
og sama er að segja um flesta
hásetana. Aflahlutur hvers
manns um borð er því á bilinu
5,7 milljónir til 11,5 eftir stöð-
um þeirra. Skipstjóri á Júlíusi
Geirmundssyni er Gunnar
Arnórsson.
Eftir því sem næst verður
komist kom Mánaberg ÓF frá
Ólafsfirði næst á eftir Júlíusi
með um 1.064 milljóna króna
aflaverðmæti. Baldvin Þor-
steinsson EA frá Akureyri,
sem var með mesta aflaverð-
mætið árið 2000, var með um
970 milljóna króna aflaverð-
mæti, eins og Arnar HU frá
Skagaströnd en alls veiddi
skipið um 5.250 tonn á síðasta
ári. Vinnsluskipið Vilhelm
Þorsteinsson EA frá Akureyri
bar hins vegar á land verð-
mætasta afla allra íslenskra
fiskiskipa á síðasta ári en alls
nam verðmæti aflans, um
54.300 tonna, um 1.340 millj-
ónum króna. Uppistaða afla
skipsins var síld.
Júlíus Geirmundsson ÍS 270.