Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.2002, Page 7

Bæjarins besta - 09.01.2002, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002 7 Prófkjör í Ísafjarðarbæ Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ hefur að höfðu samráði við kjörnefnd ákveðið að framlengja framboðs- frest vegna fyrirhugaðs prófkjörs til þriðju- dagsins 15. janúar kl. 20:00. Framboðum skal skilað til formanns kjör- nefndar, Unnar Brár Konráðsdóttur, Aðal- stræti 24, 400 Ísafirði, sem veitir allar nán- ari upplýsingar í síma 862 4241. Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ Stúdentaráð Háskóla Íslands Stúdentaráð Háskóla Ís- lands hefur leitað eftir sam- starfi við Ísafjarðarbæ um stuðning við nemendur sem kjósa að vinna að rannsóknum á landsbyggðinni. Telur stúd- entaráð að slíkar rannsóknir geti reynst mjög verðmætar fyrir byggðarlögin og sé öflug rannsóknarstarfsemi um allt land brýn nauðsyn til þess að blómlegt atvinnulíf fái þrifist sem víðast á landsbyggðinni. Í bréfi stúdentaráðs til bæj- arráðs Ísafjarðarbæjar kemur fram að innan skamms verður settur á laggirnar sérstakur styrktarsjóður fyrir stúdenta við Háskóla Íslands. Sjóður- inn heitir „Þekking stúdenta í þágu þjóðar“ og er markmið hans að gefa stúdentum við skólann aukin tækifæri til að vinna að rannsóknar- og þró- unarverkefnum á landsbyggð- inni. Sjóðurinn er tilrauna- verkefni til eins árs og fjár- magnaður með framlagi frá Byggðastofnun, öðrum stofn- unum, fyrirtækjum og ein- staklingum. Að ári verður árangur átaksins metinn og ákveðið hvort rétt sé að fram- hald verði á því. Telur stúdentaráð nauðsyn- legt að skapa stúdentum aukin tækifæri til að stunda rann- sóknir um allt land og sé það mögulegt með því að tryggja þeim fjárhagslega styrki, hús- næði, vinnuaðstöðu og greið- an aðgang að tækjabúnaði. Þess vegna hefur stúdentaráð leitað eftir samstarfi við sveit- arfélög og stofnanir um ýmiss konar stuðning við þá stúd- enta sem vilja vinna verkefni er tengjast þeirra byggðalög- um. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar mun hafa tekið vel í óskir stúd- enta. Vill samstarf við Ísafjarðar- bæ um eflingu rannsókna Heiðar Snær Línason og Ingibjörg Edda Guðmunds- dóttir fórust í eldsvoðanum á Þingeyri aðfaranótt föstu- dagsins 4. janúar sl., ásamt syni sínum Leon Erni Hreiðarssyni sem er í fangi föður síns. Myndin er tekin 7. júní 2001 á brúðkaupsdegi þeirra. Ljósmynd: Urður Skúladóttir. Þau sem fórust í eldsvoðanum á Þingeyri Þau sem létust í eldsvoða að Aðalstræti 49 á Þingeyri aðfaranótt föstudags hétu Hreiðar Snær Línason, 22ja ára, Ingibjörg Edda Guðmunds- dóttir, 20 ára, og Leon Örn Hreiðarsson, tæplega tveggja ára. Föðurnum tókst að bjarga syni þeirra á fjórða ári út úr húsinu og fór síðan aftur inn til að reyna að bjarga konu sinni og yngra barninu. Hann átti ekki afturkvæmt út en eldsprenging mun hafa orðið í íbúðinni eftir að hann fór inn aftur. Foreldrar Hreiðars og systir bjuggu á efri hæð hússins og komust þau út heilu og höldnu. Sameiginlegur fundur atvinnumálanefndar og menningarmálanefndar Fundað í Faktorshúsinu Sameiginlegur fundur at- vinnumálanefndar og menningarmálanefndar Ísa- fjarðarbæjar var haldinn í Faktorshúsinu í Hæsta- kaupstað í gær. Ákveðið var að þessar tvær nefndir myndu halda fyrsta fund ársins saman og ræða ýmisleg sameiginleg mál enda ekki ósjaldan sem starf þessara tveggja nefnda skarast. Þótti nefndarmönnum til- valið að hittast í hinu forn- fræga Hæstakaupstaðarhúsi sem nú hefur gert glæsilega upp af þeim Magnúsi Alfreðs- syni og Áslaugu J. Jensdóttur. Húsið hefur fengið nýtt hlutverk sem kaffihús og fengu nefndarmenn að smakka á nýja kaffinu og að sjálfsögu var einnig ljúf- fengt meðlæti á borðum. Spurningakeppni framhaldsskólanna að hefjast Menntaskólinn með lið í keppninni Gettu betur Menntaskólinn á Ísafirði er meðal þeirra skóla sem skráðir eru til leiks í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna sem hefst nk. föstudagskvöld. Þá verða háðar þrjár fyrstu viðureignirnar í beinni út- sendingu á Rás 2. Lið Menntaskólans frá Ísa- firði keppir þó ekki fyrr en viku seinna, föstudaginn 18. janúar, og eru andstæðingarnir frá Menntaskólanum á Egils- stöðum. Fyrirkomulag keppn- innar er þannig að fyrstu tvær umferðirnar fara fram á Rás 2 en þau lið sem komast áfram keppa síðan til úrslita í Ríkis- sjónvarpinu. Í liði Menntaskólans á Ísa- firði eru þau Herdís Anna Jón- asdóttir, Gísli Rúnar Harðar- son og Benedikt Hreinn Ein- arsson en Fjölnir Ásbjörns- son, kennari og guðfræðing- ur, hefur verið þeim innan handar við æfingar fyrir keppnina. Undanfarin ár hefur liði skólans hefur ekki gengið sem best og því spennandi að sjá hvort að ekki verði einhver breyting þar á núna í ár.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.