Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.01.2002, Side 12

Bæjarins besta - 09.01.2002, Side 12
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984• Sími 456 4560 •Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk Íslensk verðbréf hf. og Lífeyrissjóður Vestfirðinga í samstarf Starfsstöð opnuð á Ísafirði innan skamms Íslensk verðbréf hf. og Líf- eyrissjóður Vestfirðinga hafa gengið frá samkomulagi um að Íslensk verðbréf hf. annist stýringu á hluta verðbréfa- eignar Lífeyrissjóðs Vestfirð- inga. Í framhaldinu er stefnt á að auka samstarf þessara aðila enn frekar. Íslensk verðbréf hf. munu opna starfsstöð á Ísafirði innan skamms og verður aðsetur félagsins í hús- næði Sparisjóðs Vestfirðinga á Ísafirði. Íslensk verðbréf hf. var stofnað árið 1987 og er í eigu sparisjóða og lífeyris- sjóða víðsvegar um land, þ.m.t. Lífeyrissjóðs Vestfirð- inga. Íslensk verðbréf hf. er með höfuðstöðvar sínar á Ak- ureyri og er eina löggilta verð- bréfafyrirtækið utan höfuð- borgarsvæðisins. „Þetta eru góð tíðindi og ætti samningurinn að vera báðum aðilum til hagsbóta auk þess sem vestfirðingar ættu að hafa nokkurn hag af honum í formi aukinnar þjón- ustu á sviði verðbréfavið- skipta á svæðinu. Nokkur önnur verkefni eru í burðar- liðnum fyrir starfsstöðina sem ættu að renna styrkari stoðum undir öfluga starfssemi á veg- um félagsins á Ísafirði. Við höfum gert samskonar samn- inga og verið er að gera við Lífeyrissjóð Vestfirðinga við Lífeyrissjóð Norðurlands og einnig hafa verið gerðir nokkr- ir samningar við aðra lífeyris- sjóði um sérgreind eignasöfn á undanförnum mánuðum,“ sagði Sævar Helgason, fram- kvæmdastjóri Íslenskra verð- bréfa hf. „Markmiðið með þessu samstarfi við Íslensk verðbréf hf. m.a. að byggja upp öfluga fjármálaþjónustu á Vestfjörð- um ásamt því að fela sérfræð- ingum á verðbréfamarkaði umsýslu á eignum Lífeyris- sjóðs Vestfirðinga. Með þess- um samningi tryggjum við grundvöll fyrir opnun starfs- stöðvar á vegum Íslenskra verðbréfa hf. á Ísafirði og sá grundvöllur ætti að leiða af sér betri fjármálaþjónustu fyr- ir bæði sparifjáreigendur og fyrirtæki og stofnanir á svæð- inu,“ sagði Guðrún Guð- mannsdóttir, framkvæmda- stjóri Lífeyrissjóðs Vestfirð- inga. Vestfirðir Tvö ár frá því að bb.is hóf göngu sína Á föstudag voru rétt tvö ár liðin frá því að frétta- vefur Bæjarins besta hóf göngu sína. Fyrsta fréttin var sett inn á vefinn þriðju- daginn 4. janúar 2000 kl. 18.15. Markmiðið var í upp- hafi að setja að jafnaði fjórar fréttir inn á vefinn hvern virkan dag eða alls um tuttugu á viku. Það markmið hefur náðst og rúmlega það. Jafnframt var bb.is ætlað að veita ýmsa þá þjónustu sem slíkur vefur getur veitt. Þeir sem að vefnum stóðu og standa enn reikn- uðu aldrei með því að fjár- hagslegur ábati yrði af rekstri hans, enda hefur svo ekki verið. Frekar má tala um metnað og áhuga á því að styðja við sjálfs- mynd þeirra sem enn búa hér vestra og þá mynd sem aðrir gera sér af þeim. Í þessum mánuði, jafnvel eftir eina til tvær vikur, er þess að vænta að hér á vefnum birtist allmikil frétt sem varðar hann sjálfan. Bolungarvík „Demants- síld“ landað Nótaskipið Elliði GK kom til Bolungarvíkur á laugardag og landaði eitt- hvað um þrjátíu tonnum af bráðfallegri síld en ligg- ur nú inni í brælu. Gamlir síldarskipstjór- ar í Víkinni lifnuðu allir við, þeirra á meðal Hálf- dán Einarsson sem sagði að þetta væri sannkölluð demantssíld eins og það var orðað í eina tíð. Hluti af síldinni var tekinn í beitu, eða eins og menn gátu tekið við í geymslu, en mestur hlutinn fór í bræðslu. Mikill handagangur var á bryggjunni þegar verið var að landa síldinni enda er þetta ekki algengur við- burður í Bolungarvík hin síðari árin. Mjög fjölmenn minningar- og bænastund var haldin í kirkjunni á Þingeyri síðdegis á laugardag vegna hins hörmulega slyss sem varð þar í bænum aðfaranótt föstudags. Séra Guðrún Edda Gunnars- dóttir sóknarprestur gekkst fyrir þessari samverustund í félagi við Theodóru Hreins- dóttur lækni. Tónlistarflutn- ingur var í höndum Margrétar Gunnarsdóttur píanóleikara. Á eftir var opið hús og kaffi í Slysavarnahúsinu á Þingeyri og var svo einnig á sunnudag. Einnig hefur kirkjan verið höfð opin. Atburður þessi hef- ur haft djúp áhrif á allan brag á Þingeyri enda má heita að allir séu meira og minna tengdir í litlum bæ. Séra Guðrún Edda er í námsleyfi syðra í vetur en kom vestur til að sinna fólkinu sínu þegar fréttist af slysinu. Hún verður áfram á Þingeyri um sinn og hafa þær Theodóra læknir verið reiðubúnar til áfallahjálpar hvenær sem þess hefur verið óskað. Ekki var efnt til flugelda- sýningar og blysför á Þingeyri á sunnudag í tilefni þrettánd- ans, eins og venja hefur verið. Í staðinn var komið saman framan við íþróttamiðstöðina, kveikt á kertum og haldin stutt þagnarstund. Þar var gríðar- mikið fjölmenni eða líklega hátt í þrjú hundruð manns við þessa virðulegu og hátíðlegu athöfn. Þau sem fórust voru oft á þessu svæði við íþrótta- miðstöðina í frítímum sínum enda börnin snemma farin að skreppa í sundlaugina og íþróttasalinn og Hreiðar Snær heitinn var starfsmaður mið- stöðvarinnar. Að tillögu séra Guðrúnar Eddu verða jólaljós- in á Þingeyri látin lifa viku lengur en venja er til. Þannig verður skammdegið lýst upp á þessum erfiðu tímum í minn- ingu þeirra sem létust. Bæjarsorg á Þingeyri eftir slysið hörmulega í eldsvoðanum Þeirra sem létust minnst Frá hinni fjölmennu minningar- og bænastund sem haldin var í Þingeyrarkirkju síðdegis á laugardag. Senn tekur bb.is miklum! breytingum

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.