Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.06.2001, Síða 3

Bæjarins besta - 13.06.2001, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2001 3 Guðmundur Einarsson ÍS langaflahæsti smábáturinn á síðasta ári Kom með 828 tonn að landi á síðasta ári að verðmæti 85 milljónir króna Langaflahæsti smábátur- inn á síðasta ári var þorsk- aflahámarksbáturinn Guð- mundur Einarsson ÍS frá Bolungarvík með 828 tonn í 255 róðrum. Það gerir 3,25 tonn að meðaltali í róðri. Bæði róðrafjöldinn og afl- inn hlýtur að teljast með miklum ólíkindum miðað við sex tonna smábát. Afla- verðmætið er 84,8 milljónir króna. Á árinu 1999 var bát- urinn einnig efstur en þá með 784 tonn að verðmæti 76,4 milljónir króna. Aukningin milli ára er 6% í tonnum og 11% í verðmætum. Eigandi Guðmundar Ein- arssonar ÍS er ÓS sf. í Bol- ungarvík en að því félagi standa feðgarnir Einar Guð- mundsson og Guðmundur Einarsson, sem jafnframt er skipstjóri á bátnum og Daði Guðmundsson bróðir Einars. Í öðru sæti yfir krókabáta á síðasta ári er Völusteinn ÍS sem er í eigu sömu aðila og Guðmundur Einarsson ÍS. Afli bátsins jókst úr 444 tonn- um í 511 tonn milli ára og aflaverðmætið úr 51 milljón króna í 55,2 milljónir króna. Í þriðja sæti varð Straumur ÍS (áður Jakob Valgeir ÍS) úr Bol- ungarvík með 49,4 milljóna króna aflaverðmæti. At- hyglisvert er að af tíu efstu smábátunum á landinu eru fimm frá Bolungarvík. Auk áðurnefndra þriggja báta eru það Huldu Keli ÍS og Jón Eggert ÍS. Þá eru tveir bátar frá Suðureyri í þessum hópi, Draupnir og Hrefna. Fyrrum 2. stýrimanni á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni Dæmdar tæpar 16 milljónir í bætur vegna vinnuslyss Fjölskipaður dómur Hér- aðsdóms Vestfjarða hefur dæmt Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. í Hnífsdal til að greiða fyrrum 2. stýrimanni á frystitogaranum Júlíusi Geir- mundssyni ÍS 270 tæpar 16 milljónir króna í bætur vegna slyss sem hann varð fyrir um borð í skipinu 4. janúar 1994 er það var að veiðum um 40 sjómílur norðvestur af Patr- eksfirði. Þegar slysið átti sér stað var stýrimaðurinn við vinnu á dekki við annan mann. ,,Með- an þeir voru að vinnu sinni var skipinu snúið og byrjað að toga undan vindi. Þá hafi alda komið upp skutrennu yfir sjóhlið og skellt honum á stjórnborðspollann, þannig að hann lenti með spjaldhrygg- inn hægra megin á honum,“ segir í dómnum. Þar segir einnig að stýrimaðurinn hafi hætt vinnu til sjós eftir slysið og sýnt sé að hann muni ekki geta farið til starfa á sjó á ný. Örorkunefnd mat varanlega örorku mannsins. Niðurstaða nefndarinnar er að varanlegur miski, sem einvörðungu verði rakinn til vinnuslyssins, teljist hæfilega metinn 10% og varanleg örorka hans 40%. Í dómsorðum segir: ,,Stefn- da, Hraðfrystihúsið – Gunn- vör hf., greiði stefnanda kr. 15.925.938 með 2% ársvöxt- um frá 9. maí 1996 til 18. febrúar 2000, en dráttarvöxt- um samkvæmt III. kafla vaxtalaga frá þeim degi til greiðsludags og kr. 1.400.000. í málskostnað. Dóminn kváðu upp þeir Erlingur Sigtryggs- son, héraðsdómari og með- dómendurnir, skipstjórarnir Gunnar Arason og Ólafur Ingi Hermannsson. Til sölu! Til sölu er glæsilegt 231m² einbýlishús að Sunnuholti 6, Ísafirði. Húsið er á tveimur hæðum, þar af er hægt að hafa 80m² sér- íbúð á neðri hæð. Bílgeymsla, ræktuð lóð og mjög fallegt út- sýni. Skipti á minna húsnæði í bænum kemur til greina. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Guð- mundsson hdl., Hafnarstræti 1, Ísafirði, sími 456 3244, fax 456 4547. Sá óskemmtilegi atburður gerðist í síðustu viku að kakkalakkar fundust í blokkaríbúð á Suðureyri. Kakkalakkarnir munu hafa komið frá Þýskalandi og hafa þeir að öllum líkindum borist með farangri. Að sögn Birgis Valdi- marssonar, húsnæðisfull- trúa Ísafjarðarbæjar var kallað á meindýraeyði og eyddi hann allri óværu. Íbúar blokkarinnar þurftu að yfirgefa heimili sín í nokkrar klukkustundir á meðan meindýraeyðirinn var að störfum þar sem að úða þurfti alla blokkina til að útiloka þann möguleika að einhverjir kakkalakkar hefðu farið inn í lagnir og sloppið í aðrar íbúðir í blokkinni. Rýmt vegna kakkalakka Fjölbýlishús á Suðureyri 24.PM5 19.4.2017, 09:333

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.