Bæjarins besta - 13.06.2001, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2001
Stúdentarnir 26 fyrir fram Menntaskólann á Ísafirði.
26 stúdentar brautskráðust frá Menntaskólanum á Ísafirði á laugardag
Arna Vigdís Jónsdóttir „dux scholae“
Skólaslit Menntaskólans á
Ísafirði fóru fram við hátíðlega
athöfn í Ísafjarðarkirkju á
laugardag. Við athöfnina flutti
Björn Teitsson, skólameistari
skýrslu um starf skólans í vet-
ur þar sem bar hæst þrjátíu
ára afmæli skólans sem haldið
var í íþróttahúsinu á Torfnesi,
verkfall kennara, Sólrisuhátíð
og heimsókn nemenda til
Laugarvatns. Þá greindi hann
frá því að hann hefði sagt
stöðu skólameistara lausri,
þakkaði fyrir samstarfið og
óskaði verðandi skólameist-
ara velfarnaðar.
Þá tóku til máls fulltrúar
eldri stúdenta frá skólanum.
Fyrir hönd 25 ára stúdenta
hélt Guðný Ísleifsdóttir ávarp.
Fyrir hönd 20 ára stúdenta
ávarpaði Hafdís S. Ólafsdóttir
viðstadda, Hermann Jón Hall-
dórsson fyrir hönd 10 ára stúd-
enta og Þórdís Jónsdóttir fyrir
hönd 10 ára stúdenta úr öld-
ungadeild.
Hæstu aðaleinkunn nýstúd-
enta hlaut Arna Vigdís Jóns-
dóttir af hagfræðibraut, 9,20
og er hún því „dux scholae“ í
ár. Arna er aðeins fimmti nem-
andinn sem brautskráður hef-
ur verið frá skólanum með
aðaleinkunn yfir níu. Næst
hæstu einkunn hlaut Haukur
Sigurbjörn Magnússon, 8,24.
Alls voru afhent 60 próf-
skírteini. Tólf nemendur luku
viðskiptaprófi og hlaut Dagný
Sverrisdóttir verðlaun fyrir
hæstu aðaleinkunina 7,59.
Ellefu luku vélavarðanámi og
þrjár stúlkur luku námi af
starfsbraut. Þrír nemendur
luku annars stigs prófi af vél-
stjórnarbraut og af þeim hlaut
Ingibjörn Valsson verðlaun.
Fimm nemendur luku sjúkra-
liðaprófi og var Sjöfn Krist-
insdóttir með hæstu aðaleink-
unn, 9,29 og hlaut hún verð-
laun fyrir þann árangur.
Þá voru 26 stúdentar út-
skrifaðir. Af hagfræðibraut
brautskráðust fimm, átta af
mála- og samfélagsbraut og
þrettán af náttúrufræðibraut.
Af nýstúdentum hlutu verð-
laun þau Arna Vigdís Jóns-
dóttir fyrir íslensku, stærð-
fræði, dönsku og viðskipta-
greina, Haukur Sigurbjörn
Magnússon fyrir íslensku,
sögu og raungreinar og einnig
hlaut hann verðlaun fyrir fé-
lagstörf. Ingibjörg Erna Jóns-
dóttir fékk viðurkenningu fyr-
ir árangur í raungreinum, Sig-
ríður Gísladóttir fyrir dönsku,
auk verðlauna frá Ísfirðinga-
félaginu í Reykjavík og Hel-
ena Björk Þrastardóttir fékk
viðurkenningu fyrir góðan ár-
angur í þýsku, ensku og
frönsku. Helena var að auki
með hæstu aðaleinkunn af
mála- og samfélagsbraut,
8,10.
Eftir að skírteini og verð-
laun höfðu verið afhent tók
skólameistari aftur til máls og
óskaði þeim sem voru að
brautskrást góðs gengis í
framtíðinni. Þá tók „dux
scholae“ Arna Vigdís Jóns-
dóttir til máls fyrir hönd ný-
stúdenta.
Áður en athöfninni lauk bað
Ólafur Helgi Kjartansson, for-
maður skólanefndar Mennta-
skólans á Ísafirði um orðið.
Ávarpi sínu beindi hann sér-
staklega til skólameistara. Fór
hann stuttlega yfir feril Björns
Teitssonar í skólanum og
nefndi meðal annars mikil-
vægi þess starfs sem skóla-
meistari hefur með höndum.
„Hann þarf að vera stjórnandi
leiðtogi kennara og starfsliðs,
fást við fjármál, starfsmanna-
hald og ráðningar og jafnframt
vera yfirmaður nemenda,
veita þeim aðhald og aga,
hvatningu og vera fremstur til
þess að koma þeim til nokkurs
þroska.“ Einnig nefndi Ólafur
Helgi þá staðreynd að á þeim
22 árum í starfi sínu sem
skólameistari hefur Björn
útskrifað 496 stúdenta eða um
hálft þúsund og því væri kom-
inn tími til að hann yrði út-
skrifaður og veitti Ólafur hon-
um bók sem viðurkenningu
fyrir vel unnin störf. Að lokum
þakkaði Ólafur Helgi honum
fyrir vel unnin störf í þágu
skólans og samfélagsins og
óskaði honum og eiginkonu
hans velfarnaðar og gæfu á
nýjum stað og í nýjum störf-
um.
Ólafur Helgi Kjartansson formaður skólanefndar Menntaskólans færi Birni Teitssyni bókagjöf fyrir gott starf.
24.PM5 19.4.2017, 09:346