Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.06.2001, Page 7

Bæjarins besta - 13.06.2001, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2001 7 Hafiði séð hann Jón ó Jón bæjarins „besta“ erki....? Í grein í BB 30. maí sl. fer Jón Fanndal Þórðarson mik- inn og heggur á bæði borð. Vegur hann sérstaklega að íbúum og bæjarstjórn Vestur- byggðar og hefur allt á horn- um sér í þeirra garð, sérstak- lega er varðar málefni Orku- búsins, og í minn garð vegna vegamála. Sem íbúa í Vesturbyggð þykir mér illt að sitja undir ómaklegum áburði Jóns, og hreyfi því þessum andmælum, en tek jafnframt skýrt fram að ég mun ekki skrifast á við hann á þessum vettvangi. Orkubúið Fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar 1998 settu sjálfstæð- ismenn í Vesturbyggð það fyrstir á stefnuskrá sína að selja hlut Vesturbyggðar í Orkubúi Vestfjarða í þeirri viðleitni að leita allra leiða til þess að lækka skuldir bæjar- félagsins. Til að byrja með mættu hug- myndirnar nokkrum andbyr, m.a. hjá sumum sveitarstjórn- armönnum í fjórðungnum. Hins vegar brá svo við að þeg- ar ríkið hafði sett verðmiða á Orkubúið kom annað hljóð í strokkinn, og nú vilja allir Lilju kveðið hafa. Allar sveitarstjórnir á Vest- fjörðum báru á endanum gæfu til að samþykkja að breyta félagsformi Orkubúsins úr sameignarfélagi í hlutafélag. 1. júní sl. var síðan haldinn stofnfundur Orkubús Vest- fjarða hf., og segja mér fróðir menn að þar hafi jafnvel ríkt meiri samhugur en þegar Orkubúið var stofnað á sínum tíma. Nú getur bæjarstjórn Vest- urbyggðar tekið sjálfstæða ákvörðun um að selja ríkinu 8,57% eignarhlut sinn í Orku- búinu. Með sama hætti getur hver hinna 11 sveitarstjórna á Vestfjörðum tekið ákvörðun um hvort þær selji hlut sinn eða ákveði að eiga hann áfram. Ef Jón Fanndal óttast svo mjög að framtíð Orkubúsins og Vestfjarða sé stefnt í voða við það að Vesturbyggð selji ríkinu sinn litla hlut í Orkubúi Vestfjarða hf, hvers vegna leggur þessi ráðagóði maður þá ekki eitthvað raunhæft til málanna um það með hvaða öðrum hætti bæjarstjórn Vest- urbyggðar skuli bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélags- ins? Býður Jón Fanndal kann- ski betur en 394,2 milljónir? Af lestri laga nr. 40/2001 um stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða verður ekki annað séð en þar sé leitast við að tryggja framtíð Orkubúsins og Vestfirðinga í hvívetna. Þetta hefði Jón Fanndal auð- vitað getað lesið í frumvarpinu áður en hann reit grein sína, þó hrakspár hans um afleið- ingarnar bendi til annars. Sjálfstæðismenn í Vestur- byggð eiga hrós skilið fyrir það frumkvæði sem þeir tóku í þessu máli, og nú hefur haft þessar farsælu lyktir. Bæjar- stjórn Vesturbyggðar á hrós skilið fyrir að hafa fylgt mál- inu eftir af festu. Íbúar Vest- urbyggðar eiga hrós skilið fyr- ir æðruleysi sitt í málinu og fyrir að láta ekki glepjast af stóryrðum vindhana sem telja sig allt vita öðrum betur. Vegirnir Þótt undirritaður sé íbúi í Vesturbyggð, sé ég ekki þörf- ina á því að Jón Fanndal skeyti skapi sínu á öllum íbúum Vest- urbyggðar fyrir það eitt að ég hafi skoðanir á vegamálum sem hugsanlega fara ekki saman við skoðanir hans. Sýnu verra er þó að hann skuli gera mér upp áform og skoð- anir. Á 41. Fjórðungsþingi Vest- firðinga í apríl 1996 var kosinn starfshópur til að endurskoða hina 20 ára gömlu stefnu- mörkun sem mótuð var í vega- málum fjórðungsins á Fjórð- ungsþingi í Reykjanesi árið 1976. Var ég formaður starfshóps- ins, en auk mín skipuðu starfs- hópinn Ólafur Kristjánsson í Bolungarvík, Ágúst Kr. Björnsson í Súðavík, Smári Haraldsson á Ísafirði, Jónas Ólafsson á Þingeyri, og frá Hólmavík fyrst Stefán Gísla- son og síðan Daði Guðjóns- son. Starfshópurinn var sam- stíga og lagði fram tillögur sínar um stefnumótun í vega- Þórólfur Halldórsson á Patreksfirði skrifar ,,Sé ekki þörfina fyrir því að Jón Fanndal skeyti skapi sínu á öllum íbúum Vesturbyggðar“ málum á Vestfjörðum á 42. Fjórðungsþingi í ágúst 1997 og mælti eindregið með því að þær yrðu samþykktar. Skemmst er frá því að segja að tillögurnar voru samþykkt- ar samhljóða og mótatkvæða- laust, sem „skýr viljayfirlýs- ing og stefna Vestfirðinga um forgangsröðun í nýbyggingu vega á Vestfjörðum næstu 10 árin”. Þegar vinna starfshópsins hófst var staða mála þannig samkvæmt vegaáætlun að aðeins eitt stórverkefni í vega- gerð var skilgreint á Vestfjörð- um, sem var Djúpvegur við Ísafjarðardjúp, og ekkert stofnframlag var til Vest- fjarðavegar frá Flókalundi í Bjarkalund. Þetta taldi ég mikið ójafnvægi milli þessara tveggja samgöngusvæða, sem yrði að jafna, ekki með því að taka peninga úr Djúpinu held- ur með því að setja nýtt vegafé til nýbyggingar Vestfjarða- vegar, sem og varð raunin. Í stuttu máli voru aðal til- lögur starfshópsins þessar: Stórverkefni í vegagerð verði tvö; Djúpvegur og Vestfjarða- vegur milli Flókalundar og Bjarkalundar. Hringvegur með bundnu slitlagi verði um Vestfirði sem tengi allar byggðir fjórðungsins saman. Nýr vegur verði lagður um Arnkötludal milli Hólmavíkur og Reykhólasveitar, sem loki hringvegi um Vestfirði í austri og hringveginum verði endan- lega lokið í vestri með gerð jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Þannig var nú þessu háttað, hvað sem líður hálkunni á sannleikssvelli Jóns Fanndal. Hver er sinnar gæfu smiður Þrátt fyrir öflugan mótbyr undanfarin ár hafa íbúar Vest- urbyggðar nú loksins landsýn bæði hvað varðar fjárhags- stöðu sveitarfélagsins og vegamálin. Patreksfirði, á hvítasunnu 2001, Þórólfur Halldórsson. Ályktun frá stjórn Eldingar og Strandveiðifélagsins Króks Handahófskenndum vinnubrögðum mótmælt Stjórnir Eldingar og Króks mótmæla harðlega handahófskenndum vinnu- brögðum sjávarútvegsráð- herra til lausnar á vanda vest- firskra byggða og eigenda krókabáta. Ákvörðun ráð- herrans um að gefa veiðar á steinbít frjálsar og telja þar með málið afgreitt er vart meir en vesælt kattarklór og bendir til vanþekkingar á þeim mikla vanda sem við er að etja. ,,Gangi ákvörðun ráð- herra eftir er hún ávísun á skemmdarverk á viðkvæmum steinbítsmiðum úti fyrir Vest- fjörðum. Á undanförnum ár- um hefur hlutur steinbíts sem veiddur hefur verið á línu auk- ist. Röskun á búsvæðum hans við hrygningu hefur því verið í lágmarki og vísbendingar nú uppi um að auka megi aflann á komandi árum. Óábyrgt inn- grip sjávarútvegsráðherra mun snúa við þessari jákvæðu þróun og gera að engu einu sérveiðar Vestfirðinga. Gildir það jafnt fyrir krókabáta og önnur skip sem lagt hafa áherslu á steinbítsveiðar á undanförnum árum. Stjórnir Eldingar og Króks benda sjávarútvegsráðherra á að slæm reynsla er af núver- andi starfsaðferðum Hafrann- sóknastofnunar. Farsælla er að leita til aðila á vettvangi við mótun hugmynda sem miða að því að koma í veg fyrir fullkomlega óþörf vandamál hjá þúsundum Íslendinga sem skapast að öðrum kosti. „Étið það sem úti frýs“ hefur aldrei verið talið til góðra siða. Stjórnir Eldingar og Króks skora á stjórnvöld að grípa inn í þá óheillavæn- legu þróun sem blasir við hinum dreifðu byggðum landsins með kvótasetn- ingu krókabáta. Það verður best gert með því að festa núverandi veiðikerfi króka- báta í sessi,“ segir í ályktun- inni. Magni Guðmundsson, Kristján Jóakimsson og Össur Pétur Össurarson við kvína. Rörtækni og Netagerð Vestfjarða smíða þorskeldiskví Hraðfrystihúsið – Gunnvör kaupir kvína og setur upp í Álftafirði Össur Pétur Össurarson hjá Rörtækni ehf. á Ísafirði og Magni Örvar Guðmundsson hjá Neta- gerð Vestfjarða afhentu í síðustu viku, þorskeldiskví sem fyrirtækin hafa verið að smíða undanfarnar tvær vikur. Miklir mögu- leikar virðast vera í þorsk- eldi á Vestfjörðum og var því ákveðið að ráðast í þessa tilraunasmíði. Kvíin er öll úr plasti og er að mestu leyti smíðuð hjá Rörtækni, en Netagerðin útvegaði netið. Hraðfrystihúsið- Gunnvör hf. kaupir kvína og tók Kristján Jóakims- son við henni fyrir hönd fyrirtækisins. Kvíin er 16 metrar að þvermáli og 200 fermetrar að flatarmáli og verður hún sett upp í Álftafirði. Ekki er búið að ákveða hversu mikill þorskur verður alinn upp í kvínni, en veitt verður í hana í sumar og þorskur- inn fitaður í vetur. Ef notkunin gefur góða raun verður haldið áfram með smíði á fleiri kvíum. SKRÁNING NEMENDA Í GRUNNSKÓLA Foreldrar barna á grunnskólaaldri eru hvattir til að skrá nemendur í skóla bæjarins sem fyrst. Skráningareyðu- blöð fást hjá skólunum eða hjá Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæj- ar, Hafnarstræti 1, og skulu send við- komandi skóla. Einnig eru foreldrar sem ætla að nýta sér skóladagvist Grunnskólans á Ísa- firði (Dægradvöl) minntir á að skrán- ingu lýkur 15. júní nk. Skóla- og fjölskylduskrifstofa Ísafjarðarbæjar. 24.PM5 19.4.2017, 09:347

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.