Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.06.2001, Síða 11

Bæjarins besta - 13.06.2001, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2001 11 Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson lagði blómsveig að minnisvarða um látna sjómenn á Ísafirði. Hátíðarhöld sjómannadagsins á Vestfjörðum Víðast hvar mjög góð þátttaka Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um Vestfirði um helgina. Hátíð- arhöld voru að mestu með hefðbundnu sniði og var keppt í viðurkenndum íþróttagrein- um eins og netabætingu, kappróðri og koddaslag. Á Flateyri var keppt í baujukasti, en slíkt hefur ekki verið gert áður. Víðast hvar var keppt í þessum greinum á laugardegi, en á Suðureyri og í Bolungar- vík var það þó gert á sjó- mannadeginum sjálfum. Vestfirski fiskiskipaflotinn sigldi með landkrabba og sjó- vana menn út með fjörðum og víkum. Einmuna veður- blíða var á svæðinu og þótti þátttaka almennings í hátíðar- höldunum víðast hvar mjög góð. Venja er að heiðra sjómenn við hátíðarmessu í Ísafjarðar- kirkju og að þessu sinni voru það þeir Halldór Hermanns- son og Björn Björnsson urðu þess heiðurs aðnjótandi. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sótti norð- anverða Vestfirði heim á sjó- mannadag. Gekk hann með viðstöddum frá Hnífsdalskap- ellu til kirkjugarðs og lagði blómsveig að minnisvarða um látna sjómenn. Hann hélt síð- an hátíðarræðu í Ísafjarðar- kirkju og skoðaði listasýningu í Slunkaríki. Forsetinn heiðr- aði Bolvíkinga með nærveru sinni og þáði að lokum kakó og kökur í Gamla apótekinu, kaffi- og menningarhúsi ungs fólks. Áhafnarmeðlimir af síðu- togaranum Sólborgu komu saman á laugardag, en nánar er sagt frá þeirri samkomu annars staðar í blaðinu. Að kvöldi laugardags var snædd- ur hátíðarkvöldverður í íþróttahúsinu á Torfnesi og haldið ball á eftir. Um 350 manns voru við borðhaldið, en ívið fleiri á ballinu. Hátíðarhöld í Bolungarvík á sjómannadag þóttu takast með miklum ágætum og er það mál manna að sjaldan hafi jafn margir tekið þátt í þeim. Daginn áður, á laugardag var siglt með þá sem vildu út á Djúpið á bátunum Þorláki, Gunnbirni og einum átta trill- um. Á sjómannadaginn sjálfan var gengið frá Brimbjót til kirkju þar sem var messað. Þar voru sjómennirnir Guð- mundur Jakobsson og Jón M. Egilsson heiðraðir og eigin- konum þeirra afhentir blóm- vendir. Karlakór söng undir stjórn Guðrúnar Magnúsdótt- ur, en að messu lokinni var lagður blómsveigur að minn- isvarða í kirkjugarði. Klukkan hálf tvö hófst útiskemmtun á hafnarbakkan- um. Keppt var í róðri á tveimur bátum, Ægi og Rán, og sigraði Líkamsrækt Steingríms í karlaflokki, en Líkamsrækt- arsveit Elínbetar í kvenna- flokki. Hlaupið var á fiski- körum og keppt í jafnvægislist á staur yfir sjó og í því að stíma saman snæri og hnýta á. Einnig var keppt í nagla- boðhlaupi og hefðbundnu boðhlaupi. Kvennadeild Slysavarnarfélagsins seldi kaffi í húsi félagsins. Mjög gott veður var í Bol- ungarvík, eins og víðar á Vest- fjörðum, á sjómannadaginn. Að sögn aðstandenda tókust hátíðarhöldin mjög vel, enda er talið að nefndir hafi unnið sína vinnu vel. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Gríms- son, heiðraði Bolvíkinga með nærveru sinni um daginn. Guðmundur Jakobsson með eiginkonu sinni Guðfinnu Magnúsdóttur og Jón M. Egilsson með eiginkonu sinni Guðmundu Högnadóttur. Halldór Hermannsson (Dóri Hermanns) og Björn Björnsson (Bubbur) voru heiðraðir á Ísafirði í ár. Frá hátíðarhöldum sjómannadagsins í Bolungarvík. Margir fengu kalt bað í koddaslagnum við höfnina á Ísafirði. 24.PM5 19.4.2017, 09:3411

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.