Bæjarins besta - 18.07.2001, Page 1
„Ég er Dokkupúki
og er hreykinn af því“
– sjá svipmynd af Sveini Guðbjartssyni, verkstjóra í Hnífsdal i miðopnu
Miðvikudagur 18. júlí 2001 • 29. tbl. • 18. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 200 m/vsk
Stefnir í málaferli
milli fyrirtækjanna
Samkvæmt óstaðfestum
heimildum Bæjarins besta
stefnir í málaferli milli tölvu-
fyrirtækjanna Snerpu og Vest-
marks á Ísafirði í framhaldi af
riftun samkomulags um sam-
einingu þeirra, sem gert var í
vor, sbr. frétt hér í blaðinu í
síðustu viku. Samkomulagið
Sameining Snerpu og Vestmarks út um þúfur
um sameininguna var undir-
ritað 25. apríl sl. og var þá
greint frá því, að hið samein-
aða fyrirtæki yrði rekið undir
nafni Snerpu.
Um ástæður riftunarinnar
segir Björn Davíðsson, stjórn-
arformaður Snerpu: „Við
vorum búnir að gera sam-
Magnús Böðvar Eyþórsson, stjórnarformaður Vestmarks,
og Björn Davíðsson, stjórnarformaður Snerpu.
komulag um að fjármagn frá
Vestmark kæmi inn í Snerpu.
Það var ekki staðið við þær
tímasetningar sem talað hafði
verið um, þannig að við riftum
viðræðum.“
Magnús Böðvar Eyþórs-
son, stjórnarformaður Vest-
marks, vildi sem minnst gefa
út um málið að svo stöddu en
sagði þó: „Þessi riftun af hálfu
Snerpu kom okkur algerlega í
opna skjöldu, sérstaklega þar
sem búið var að gera sam-
komulag og samninga.“
29.PM5 19.4.2017, 09:371