Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.07.2001, Síða 5

Bæjarins besta - 18.07.2001, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001 5 smáar Til sölu er bifhjól, Yamaha Dragstar XVS 650A árg. 98. Mjög fallegt hjól sem lítur út sem nýtt. Keyrt aðeins 8 þús. km. Uppl. í síma 456 3481 milli kl. 19-20. Fjölmenningarsetrið á Vestfjörðum óskar eftir ódýrri tölvu til þess að geta boðið fólki aðgang að inter- netinu og ritvinnslu. Uppl. í síma 456 3090. Óskum eftir notaðri þvotta- vél, sjónvarpi og hjóna- rúmi, helst ódýrt eða gefins. Upplýsingar í síma 894 8630 eða 865 4399 (-á ensku eða pólsku). Til sölu er stórt bil í veiðar- færaskemmu að Sindra- götu 9 á Ísafirði. WC, heitt vatn og harðsteypa í gólfi. Uppl. í síma 456 3678. Óska eftir boxdýnu, helst 90 cm á breidd, ódýrt eða gefins. Upplýsingar í síma 867 5161. Óska eftir góðum bíl til kaups á 100-300 þús. kr. Uppl. í síma 848 5746. Til sölu er flottir og kræsi- legir laxaormar á kr. 30 pr.stk. Uppl. í síma 866 9546 (Bjarki) og 866 9839 (Arnar). Mótorsportáhugamenn. Stofnaður verður mótor- sportklúbbur á Ísafirði fimmtudaginn 19. júlí n.k. á Eyrinni kl. 20.00. Allir velkomnir. Til sölu er hjónarúm úr beyki. Stærð 150x200. Selst á góðu verði. Uppl. í síma 456 3884. Til sölu 2ja herb. íbúð með sérinngangi að Urðarvegi 78. Laus 1. ágúst. Uppl. í síma 456 3928 og 456 4323. Til sölu eða leigu er góð 90 fm íbúð að Hrannargötu 8. Laus strax. Uppl. gefur Guffý í síma 868 8464. Til sölu ný 13" sumardekk á felgum. Verð ca. 17 þús. Upplýsingar í síma 869 6731 eða 456 7669. Sá sem tók stigann að Hjallavegi 7 á Flateyri, vinsamlegast skili honum aftur. Til sölu Palomino Colt fellihýsi með fortjaldi. Uppl. í síma 696 7316. Óska eftir ungri kanínu. Uppl. gefur Unnur í síma 456 6110. Óska eftir leiguhúsnæði í Bolungarvík í eitt ár. Uppl. í síma 861 5997. Til sölu Subaru station árg. '87. Þarfnast lagfæringa, selst fyrir lítið. Uppl. í síma 456 4247 eða 848 6037. Gömul myndavél í brúnu hörðu hulstri tapaðist í síðustu viku. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 456 4370 eða 847 1971. Til sölu Dallas hústjald. Selst á hálfvirði eða hugsan- leg skipti á fólksbílakerru. Uppl. í síma 892 1688. Sturla. Til sölu er Palomino Colt fellihýsi, skráð í ágúst '99. Uppl. í síma 456 5054 og 897 5052. Til sölu er barnakerra með skermi og svuntu. Uppl. í síma 456 3014. Til sölu Nissan Terrano II árg. '97. Ekinn 60 þús. Sk. á ód. bíl koma til greina. Uppl. í síma 456 4174. Til sölu er Mitsubishi Gal- ant árg. '89, ekinn 220 þús. Verð 200 þús. Uppl. í síma 891 9423 Stúdíóíbúð í Rvk, heima- gisting. Leigist minnst tvær nætur í senn, allt að 4 persónur. Bókanir í síma 582 3034. Eftir kl. 18, 557 1456 eða 862 9443. Ævar Valgeirsson, 17 ára piltur frá Ísafirði, sem fluttist suður í Kópavog ásamt fjöl- skyldu sinni fyrir tveimur ár- um, var skorinn upp á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði í síðustu viku. Ástæðan fyrir því að hann var skorinn upp hér vestra var sú, að hann hefði þurft að bíða óvinnufær fram á haust eftir því að komast í aðgerð syðra. Óneitanlega stingur það í stúf við það sem almennt er talið, að læknisþjónusta skuli vera skjótari og betri úti á landi en á Reykjavíkursvæð- inu. Í dægurmálaútvarpi Rásar 2 í síðustu viku var einmitt fjallað um skort á læknum og læknisþjónustu og þá bið sem er eftir því að fá svo mikið sem samtal við heimilislækni syðra, hvað þá frekari þjón- ustu. Ævar hlaut fyrir skömmu slæmt kviðslit og þegar hann komst til læknis var honum sagt, að hann gæti komist í aðgerð með haustinu. Ljóst var að hann yrði óvinnufær meðan á biðinni stæði. Móðir Ævars átti símtal við dr. Þor- stein Jóhannesson, yfirlækni og nefndi þetta ófremdar- ástand. Þorsteinn er í sumarfríi en sagði henni að senda piltinn vestur með fyrstu ferð. Aðgerðin gekk fljótt og vel. Myndin af Ævari á spítalanum var tekin síðdegis þegar hann var að vakna af svæfingunni. Hann hélt síðan suður aftur með áætlunarflugi morguninn eftir. Ævar Valgeirsson að vakna eftir aðgerðina á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísafirði. Skjót læknisþjónusta á Fjórðungssjúkrahúsinu – hefði þurft að bíða óvinnufær fram á haust syðra Brottfluttur Ísfirðing- ur kom vestur í aðgerð Framkvæmdir bæjarins hefjast um leið og menn eru tilbúnir til að byrja að byggja Eins og hér kom fram í síð- ustu viku hefur Hermann Þor- steinsson múrari f.h. Múr- krafts ehf. í Ísafjarðarbæ sótt um átta byggingarlóðir fyrir einbýlishús á hinu nýja bygg- ingasvæði á Tunguskeiði inn- an við verslunarmiðstöðina Ljónið á Ísafirði. Skorið var úr því í fyrra að leyfilegt væri að byggja á svæðinu. Að sögn Halldórs Halldórssonar bæj- arstjóra þykja lóðaumsóknir Hermanns vera hið besta mál. „Þessar umsóknir þýða, ef allt gengur eftir, að bærinn fer í framkvæmdir um leið og menn eru tilbúnir til að byrja að byggja.“, segir bæjarstjóri. „Það verður byrjað á að gera svokallaða Safnbraut, sem reyndar er ekki endanlegt nafn. Einnig verða gerðar lagnir við götuna sem húsin koma til með að standa við og gengið verður frá henni. Það verður síðan lagt í aðrar götur jafnóðum og lóðir vantar. Það fer fljótlega að vanta húsnæði á Ísafirði og að sjálfsögðu mun fólk byggja hérna. Ísa- fjarðarbær er einn af helstu stöðum landsins, það er ekki spurning. Ísafjarðarbær er stærsti byggðakjarni utan Akureyrar þegar talað er um landsbyggðina utan höfuð- borgarsvæðis. Hér er gott að búa“, sagði Halldór. Fyrirhugað íbúðarhverfi á Tunguskeiði á Ísafirði Byggðastofnun Níu styrkir til verkefna á Vestfjörðum Níu aðilar á Vestfjörðum fengu á síðasta ári styrki frá Byggðastofnun, samkvæmt ársskýrslu stofnunarinnar sem er nýkomin út. Þessir aðilar og upphæð styrkja eru sem hér segir: Magnús Ólafs Hansson, Bolungarvík, vegna mál- þings um sérkenni Vest- firðinga, kr. 600.000. Vilmundur Reimarsson, Bolungarvík, vegna gisti- skála á Hornströndum, kr. 300.000. Óskar Friðbjarnarson, Hnífsdal, vegna vöruþróun- ar í hákarlsvinnslu, kr. 300.000. Vélsmiðja GJS, Þingeyri, vegna varðveislu á elstu vélsmiðju landsins, kr. 500.000. Önfirðingafélagið í Reykjavík, vegna á Sól- bakka í Önundarfirði, kr. 2.000.000. Einar V. Skarphéðinsson, Patreksfirði, vegna hand- verks, kr. 500.000. Minjasafn Egils Ólafs- sonar, Hnjóti í Örlygshöfn, vegna minjasafns, kr. 500.000. Strandagaldur, Hólma- vík, vegna Galdrasýningar á Ströndum, kr. 1.000.000. Samstarfshópur um end- urbyggingu Riis-húss, Hólmavík, vegna endur- byggingar Riis-húss á Borð- eyri, kr. 300.000. Heilsubæjarverkefnið í Bolungarvík hefur verið í gangi í hálft annað ár Gallup kannar árangurinn og viðhorf bæjarbúa félagsins í heild. Það er nauðsynlegt að vita þetta, svo að við getum í framtíðinni gert betur og náð þá ennþá meiri árangri. Við þurfum líka að vita hvaða áhrif fólk vill að heilsu- bæjarverkefnið hafi og hvort það vill yfirleitt að þessi stefna verði áfram hjá bæjarfélaginu. Við erum ekki með neina forsjárhyggju og ætlum ekki að segja fólki hvað það á að gera. Við viljum finna leiðir í samvinnu við fólkið en það verður sjálft að segja til um hvað það vill. Fólk í dag er vel upplýst og hefur alla Gallup á Íslandi ætlar að gera könnun meðal Bolvík- inga um viðhorf þeirra til heilsubæjarverkefnisins sem þar hefur staðið síðastliðið eitt og hálft ár. „Við settum okkur ákveðið markmið í byrjun og til þess að við vitum hvort þau hafi verið raunhæf og hvort verkefnið hafi skilað einhverju til bæjarbúa og skilað árangri í heild sinni, þá verðum við auðvitað að mæla árangurinn“, segir Sigrún Gerða Gísladóttir, hjúkrunar- forstjóri í Bolungarvík. „Við buðum þessa könnun út og það voru bæði Gallup og fleiri aðilar sem höfðu áhuga á þessu.“ Könnun Gallup verður gerð meðal Bolvíkinga á aldrinum 18-80 ára. „Við vonumst til að þátttaka verði góð og hvetjum alla til þess að bregð- ast vel við. Því fleiri sem taka þátt í könnuninni, þeim mun marktækari verður hún og sýnir okkur meira“, segir Sigrún Gerða. „Könnunin á að leiða í ljós hvort þróunar- verkefni sem þetta eigi rétt á sér og hverju það hafi skilað til einstaklinganna og bæjar- Starfsmaður óskast Vífilfell á Ísafirði óskar eftir starfsmanni í áfyllingar um helgar. Upplýsingar veittar á staðnum. Vífilfell, Vestrahúsinu við Suðurgötu möguleika á því að breyta því sem það vill.“ Sigrún Gerða segir að heilsuverndarráðstefna verði haldin í Reykjavík í haust og þar verði verkefnið og jafn- framt niðurstöður Gallup- könnunarinnar kynntar. Sig- rún vill einnig vekja sérstaka athygli á ratleik sem heilsu- bæjarverkefnið stendur fyrir. „Megináhersla leiksins er að fjölskyldan geti verið saman og átt ánægjulega útiveru. Gönguleiðirnar hafa verið miserfiðar en það er gaman að reyna á sig og hver og einn getur valið þá leið sem hann telur henta sér. Ástæðan fyrir því að ég minni á þessar gönguleiðir er sú, að það er útiveran og samveran sem við viljum hvetja fólk til að njóta.“ Sigrún vil hvetja Bolvík- inga og gestir þeirra til að skella sér í gönguferð og endilega að hafa samband við forsvarsmenn heilsubæjar- verkefnisins ef eitthvað kemur upp á. 29.PM5 19.4.2017, 09:375

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.