Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.07.2001, Side 7

Bæjarins besta - 18.07.2001, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ 2001 7 inni. En bestu dagana segir hann hafa verið í Furufirði þar sem hann var í sveit til tíu ára aldurs. „Þangað fór ég á vorin strax þegar skóla lauk og kom aftur í október eða nóvember á haustin. Ég vildi helst ekkert fara úr sveitinni. Þarna fékk ég að kynnast búskaparháttum eins og þeir voru áður. Það voru engar vélar en aftur á móti eintóm ævintýri fyrir litla gutta eins og mig. Þetta var stuttu eftir stríð og það mátti alltaf eiga von á því að eitt- hvað sem viðkom stríðinu ræki á fjörur.“ Þar er friður og ró ... Sveinn segir að þarna um slóðir sé ótrúlega lítið af ferða- mönnum. „Það mætti alveg vera meira af þeim en það þarf að búa til betri aðstöðu handa þeim. Á Flæðareyri er komin ágæt aðstaða og það mætti alveg gera svipað á Hesteyri og í Aðalvík, Fljóta- vík og Hornvík og víðar þar sem ferðamenn koma. Hesteyri býður upp á þar sé gert eitthvað fyrir ferðamenn. Þar væri lítið mál að gera bryggju. Það er ekkert sniðugt að vera að fara þangað með fólk, jafnvel roskið fólk, og ferja það í land á litlum gúmmíbát.“ „Ég nýt þess enn þann dag í dag að fara norður á Strandir. Þar er mitt friðland. Ég hef farið víða um svæðið en ég hef alltof sjaldan farið í Furu- fjörðinn. Hann er auðvitað fal- legastur af þessum fjörðum, grösugur og víðáttumestur. Þarna er enginn vélagnýr eða neitt sem er að angra þig. Þar er friður og ró.“ Björn Björnsson á Þórustöðum í Önundarfirði í BB-spjalli Með mörg og ólík járn í eldinum Björn Björnsson bóndi á Þórustöðum í Önundarfirði er fæddur árið 1964 fyrir austan, nánar til tekið á Seyðisfirði. Hann fluttist vestur á firði þriggja ára að aldri með móður sinni, Haf- dísi Sigurðardóttur, og eldri bróður sínum, Einari Erni, þegar móðir hans giftist bóndanum á Þórustöðum. Björn er í sambúð með Jón- ínu Eyju Þórðardóttur. „Ég er fráskilinn eins og margir menn á Íslandi og á þrjú börn af fyrra hjóna- bandi. Jónína Eyja á líka þrjú börn af fyrra hjónabandi og svo eignuðumst við sam- an eina stelpu fyrir þremur mánuðum. Við eigum sem sagt sjö börn samtals þannig að það verður oft mikið fjör á heimilinu þegar allir eru saman komnir.“ Börnin á heimilinu eru Markús Þór Björnsson sem er sautján ára, Sólrún Guð- bjartsdóttir, fimmtán ára, Magni Þór Björnsson, fjór- tán ára, Birgitta Guðbjarts- dóttir, þrettán ára, Þórdís Björnsdóttir, átta ára, Díana Ösp Guðbjartsdóttir, átta ára, og Rakel María Björns- dóttir, sem er þriggja mán- aða. „Sú yngsta, Rakel María, er nýkomin heim frá Boston úr hjartaskurðaðgerð. Að- gerðin tókst alveg ótrúlega vel og hún er ótrúlega hress. Hún þarf að fara aftur út í aðgerð í haust og svo aftur þegar hún er tveggja til þriggja ára gömul. Þá verður búið að gera það sem hægt er að gera en hún verður alltaf með bara eitt neðra hjartahólf ekki tvö eins og við hin. En þótt hún geti ekki stundað íþróttir, þá verður einhver að vera í tímatökunni. Þær sögðu hjúkrunarkonurnar úti að hún gæti átt rólegt og eðli- legt líf. Þá var ég fljótur að skjóta að hún gæti þá til dæmis orðið hjúkrunarkona. Þær vildu nú ekki sam- þykkja að það væri rólegt starf. En sem betur fer gekk þetta allt saman vel og það sem núna var gert var mjög vel gert. Hún er með gervi- æð núna og þegar hún hættir að duga verður farið í næsta áfanga.“ „Móðir mín býr enn í Ön- undarfirðinum ásamt fóstur- föður mínum, Jóni Friðgeiri Jónssyni eða Jóni á Völlun- um eins og hann er stundum kallaður. Þau búa á Flateyri núna en eru með sumarbú- stað á jörðinni hjá okkur. Þar eru þau meira og minna allt sumarið. Ég er Austfirð- ingur í báðar ættir og á engin skyldmenni fyrir vestan utan nánustu ættingja. Það næsta sem ég komist því að eiga skyldfólk hérna er að ég komst einhvern veginn að því að ég er Svefneyingur einhvers staðar langt fram í ættir. Það er kannski þess vegna sem mér þykir svona gott að sofa. Á heimavist í túnfætinu heima Björn ólst upp í Önundar- firði og hefur lítið yfirgefið sveitina frá þeim tíma þegar hann fluttist þangað með móð- ur sinni nema þegar hann fór á sjó og í búfræðinám á Hvanneyri. Hann fór í Holts- skóla og var sá tími góður. „Grunnskólinn minn var Holtsskóli og það var oft mjög skemmtilegt að vera þar. Það var svolítið merkilegt að fara í skóla í Holti. Ég var í heima- vist frá átta ára aldri þó að ég væri ekki nema um einn kíló- metra að heiman. Guðmundur Ingi var þá kennari og Þura konan hans var ráðskona. Þau voru bara tvö með allan hóp- inn og það var oft mikið fjör. Það voru auðvitað engar tölv- ur og annað slíkt eins og er í dag. Við vorum alltaf úti að leika okkur alla daga fram á kvöld á skautum, skíðum og öllu mögulegu. Ég er búfræðingur frá Hvanneyri og útskrifaðist það- an 1983. Ég fór á sjó einn vetur eftir grunnskóla en fór síðan á Hvanneyri og þaðan beint í búskap. Ég ætlaði nú ekkert alltaf að verða bóndi, þetta bara þróaðist einhvern veginn svona. Ætli þetta hafi ekki verið í manni. Ég hóf búskapinn á loðdýrarækt haustið 1984 og tók síðan við búinu árið 1986 en hætti með loðdýrin árið 1990.“ Vill ekki kalla sig bónda Þrátt fyrir að vera útskrifað- ur búfræðingur vill Björn þó ekki kalla sig bónda. „Ég hef nú aldrei viljað kalla mig bónda þótt ég kvelji nokkrar rollur yfir vetrartímann en ég á víst að heita það að vera bóndi. Ég bý hér alla vega á mjög góðri jörð. Ég er ekki með mikinn búskap, tæplega hundrað rollur og nokkra hesta núna og auk smávegis æðarvarps. Í haust keypti ég trillu sem ég reyni að fara reglulega út á. Ég átti trillu fyrir um tíu árum en seldi hana en sjórinn kallaði aftur. Þetta er nú bara lítill og venjulegur plastbátur og ég veiði með handfærum á dagakerfi. Núna er ég bara á sjó og með mold en svo fer ég stundum að beita á veturna og ýmislegt fleira. Alltaf hefur verið gott að vera með búskap í Önundar- firði en þetta er auðvitað fall- valt eins og margt annað. Jörð- um hefur fækkað mikið síð- ustu fimmtán árin og nú eru menn unnvörpum að losa sig við mjólkurkvóta á svæðinu. Það er hugsanleg einhver að sprikla og vera í alls- konar sporti. Það hafa alltaf verið stundaðar frjálsar íþróttir í Önundarfirði á sumrin og ég spriklaði með. Það voru nú kannski aldrei neinar stífar æfingar heldur frekar leikur. Ég keppti núna síðast að gamni mínu á fyrsta héraðsmóti Héraðs- sambands Vestfirðinga sem haldið var á Þingeyri – ég gat ekki sleppt því. Þar keppti ég í kúlu, kringlu, hástökki, þrístökki og 4x100 m hlaupi. Mig lang- aði nú mikið til að fara á Landsmót UMFÍ á Egils- stöðum enda búa allir ætt- ingjar mínir þar en ég ætla að geyma það þangað til að Landsmótið verður fyrir vestan árið 2004. Þá kemur maður inn af fullum krafti. Ég að heita að vera for- maður ungmennafélagsins í Önundarfirði. Ég hef verið að kúpla mig út úr þessu stjórnandadæmi. Ég hef al- drei verið neinn pappírskall, skipulag og annað slíkt hefur aldrei verið mín sterka hlið. Eftir að skíðahluti Ungmennafélagsins var fluttur yfir í Skíðafélag Ís- firðinga hefur ekki verið heilsársstarf hjá okkur. Ástæðan fyrir því að við ákváðum að gera þetta var ekki sú að við gætum ekki haldið uppi skíðastarfinu heldur fannst okkur vera meiri framtíð í því fyrir okk- ur og Skíðafélag Ísfirðinga að þessir hópar kepptu, æfðu og ynnu saman. Okk- ur fannst vera meira vit í því heldur en að við værum að keppa um fjárveitingar og krakka inn í félögin.“ Markús Þór stundar skíðin af krafti Þrátt fyrir að fara oft á skíði í skóla og í leik æfði ég aldrei skíði en elsti sonur minn hefur hins vegar verið á fullu á gönguskíðunum. Hann vann Fossavatns- gönguna óvænt í vetur og persónulega finnst mér það vera miklu meiri sigur en Íslandsmeistaratitillinn. Hann sat líka og horfði á bikarinn þrjá daga á eftir. Hann átti ekkert von á þessu drengurinn, hann ætlaði bara að fara og vera með enda hafði hann aldrei gengið þessa vegalengd áð- ur. Í vetur ætlar hann að fara út til Noregs í skíðaskóla. Þessi skóli er reyndar ekki bara með skíði. Hann er með ýmsar íþróttagreinar en það komast bara fjórtán krakkar í hverja grein á ári. Það verður gaman hjá hon- um að geta klárað þetta. Ég er stoltur af honum eins og hinum börnunum og styð hann heils hugar“, sagði Björn. fjölgun á fé en kindum hefur fækkað mikið hérna miðað við hvernig þetta var. Það eru ekki nema um þúsund kindur á fóðrum í öllum Önundar- firði. Menn eru líka farnir að vinna meira með heldur en var. Það hafa ekki verið neinar byltingar í hefðbundnum bú- skap núna. Menn fóru eitthvað út í loðdýrarækt á sínum tíma þegar allir áttu að fara í loð- dýrarækt en þetta datt síðan niður og menn hættu á meðan þeir gátu. Það eru nú sem betur fer einhverjir sem starfa við þetta ennþá þannig að kunn- áttan hverfur ekki. Þrátt fyrir allt hef ég nánast aldrei unnið tímavinnu á æv- inni. Það var farið í akkorð í sláturhúsinu á haustin og svo hef ég auðvitað verið á sjónum en ekki í þessari dæmigerðu tímavinnu.“ Ætlaði að verða „moldríkur“ Björn hefur alltaf haft nóg að gera um ævina og það nýj- asta hjá honum núna er mold- arsala. „Hugmyndin að mold- inni er auðvitað sú að verða moldríkur, þetta var nú bara einhver hugdetta eins og oft áður. Við ákváðum að prófa þetta og byrjuðum á þessu. Það átti aldrei að verða nein fjárfesting en er orðið það núna. Það er komin ágætis hreyfing í þetta núna. Hún mætti auðvitað vera meiri en ég er nú enginn bísnissmaður og kann ekki mikið inn á aug- lýsingar og annað slíkt. Ég hef verið að reyna að auglýsa eitthvað í Svæðisútvarpinu. Moldin virðist þó hafa auglýst sig ágætlega sjálf á milli garða þannig að það er alltaf eitthvað að gera hjá okkur. Þetta er mjög góð mold og við erum búin að gera mikið fyrir hana. Við blöndum hana með skeljasandi og myljum hana síðan niður. Ég fór út í það að blanda hana með skeljasandi vegna þess að þessi mold sem við höfum fyrir vestan er almennt of súr sem gróðurmold. Skeljasand- urinn er hins vegar 70-80 prós- ent kalk og hann færir sýru- stigið í æskilegt horf. Ég lét efnagreina moldina og hún kom ágætlega út. Aðalvandamálið hefur ver- ið að flytja moldina á milli staða. Þess vegna byrjuðum við að bjóða upp á að setja hana í poka sem taka um einn rúmmetra. Við erum líka kom- in með umboðsmenn á þess- um helstu stöðum í kring, sem eru Jón Reynir á Þingeyri, Hilmar í Súgandafirði, Einar Halldórsson á Ísafirði og Vélsmiðjan Mjölnir í Bolung- arvík. Verðið er misjafnt eftir því hvort fólk sækir hana sjálft eða til umboðsmanna. Ef fólk kemur hingað og sækir mold- ina er rúmmetrinn á 1500 krónur kominn á bíl og á 2500 krónur í pokanum. Ef fólk kaupir hjá umboðsmanni á einhverjum af hinum stöðun- um, þá kemur flutningskostn- aðurinn inn í verðið. Í íþróttum til að vera með Björn er þekktur fyrir dugn- að og þátttöku í íþróttum. Hann gefur lítið þó út á það og segist bara vera með fyrir gamanið. „Ég hef nú aldrei verið neinn afreksmaður í frjálsíþróttum. Hjá mér snýst þetta nú meira um að taka þátt heldur en að vinna. Ég hef óskaplega gaman að því 29.PM5 19.4.2017, 09:377

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.