Vinnan - 01.03.1948, Blaðsíða 32
Aðalfundur Sjómannaíélags Reykjavíkur
Sjómannafélag Reykjavíkur hélt aðalfund sinn 30. jan. s.l.
A fundinum var skýrt frá úrslitum stjórnarkosningar, er staðið
hafði yfir innan félagsins bæði í skrifstofu félagsins og um
borð í skipum frá 27. nóv. s.l. Höfðu 636 félagsmenn greitt
atkvæði af rúmlega 1500 félagsmönnum. Úrslit urðu þau, að
Sigurjón A. Oafsson var kjörinn formaður með 449 atkv.,
Olafur Friðriksson varaformaður með 381 atkv., Garðar Jóns-
son ritari með 471 atkv,, Sæmundur Elías Ólafsson gjaldkeri
með 319 atkv. og Ólafur Árnason varagjaldkeri með 370 atkv.
44 skiluðu auðum seðlum og 24 seðlar voru ógildir.
Aðalfundur Jökuls, Hornafirði
Verkalýðsfélagið Jökull, Höfn í Hornafirði, hélt aðalfund
sinn 25. jan. S.l. I stjórn vöYu kosnir: Benedikt St. Þorsteinsson
formaður, Óskar Guðnason ritari og Halldór Sverrisson gjald-
keri.
Aðalfundur Sveinafélags húsgagnasmiða
Sveinafélag húsgagnasmiða hélt aðalfund sinn 28. jan. s.l.
í stjórn voru kosnir: Þórólfur Beck formaður, Magnús Daníels-
son varaformaður, Guðmundur Samúelsson ritari, Kristján
Sigurjónsson gjaldkeri og Bolli Ólafsson vararitari.
Aðalfundur Dímons
Verkamannafélagið Dimon í Rangárvallasýslu hélt aðalfund
sinn 10. jan. s.l. I stjórn félagsins voru kósnir: Guðjón Ólafsson
formaður, Þórður Tómasson ritari og Eggert Pálsson gjaldkeri.
Aðalfundur Verkalýðs- og sjómannafélags Álftfirðinga
Verkalýðs- og sjómannafélag Álftfirðinga í Súðavík hélt aðal-
fund sinn 25. jan. s.l. X stjórn voru kosnir: Albert Kristjánsson
formaður, Bergmundur Guðlaugsson varaformaður, Ragnar
Þorbergsson ritari, Bjarni Hjaltason gjaldkeri og Jón Þórðarson
fjármálaritari.
Aðalfundur Verkakvennafélagsins Einingar
Verkakvennafélagið Eining á Akureyri hélt aðalfund sinn
1. febr. s.l. í stjórn félagsins voru kosnar: Elísabet Eiríksdóttir
formaður, Margrét Magnúsdóttir varaformaður, Guðrún Guð-
varðardóttir ritari, Jóna Gísladóttir gjaldkeri og Hulda Ingi-
marsdóttir meðstjórnandi.
Aðalfundur Sjómannafélags Akureyrar
Sjómannafélag Akureyrar hélt aðalfund sinn 1. febr. s.l.
Stjórn félagsins var öll endurkosin og skipa hana: Tryggvi
Helgason formaður, Jón Árnason ritari og Aðalsteinn F.inars-
son gjaldkeri.
Aðalfundur Víkings
Verkafýðsfélagið Víkingur Vík i Mýrdal hélt aðalfund sinn
seint í jan. s.l. í stjórn voru kosnir: Helgi Helgason formaður,
Þórður Stefánsson ritari og Einar Bárðarson gjaldkeri.
Aðalfundur Vörubílstjórafélagsins Þróttar
Vörubílstjórafélágið Þróttur hélt aðalfund sinn 25. jan. og
framhaldsaðalfund 3. febr. s.l. í stjórn voru kosnir: Einar
Ögmundsson formaður, Jón Guðlaugsson varaformaður, Svein-
björn Guðlaugsson ritari, Alfons Oddsson gjaldkeri og Guð-
mundur Fr. Guðmundsson meðstjórnandi.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Austur-Eyjafjallahrepps
Verkalýðsfélag A.ustur-Eyjafjallahrepps hélt aðalfund sinn
í byrjun jan. í stjórn félagsins voru kosnir: Sigurjón Guð-
mundsson formaður, Kort Ingvarsson ritari, Andrés Andrésson
gjaldkeri.
Aðalfundur Bjarma ó Stokkseyri
Verkalýðs- og sjómannafélagið Bjarmi á Stokkseyri hélt aðal-
fund sinn 8. jan. s.l. Stjórn félagsins var öll endurkosin og
skipa hana: Björgvin Sigurðsson formaður, Helgi Sigurðsson
varaformaður, Frímann Sigurðsson ritari, Gísli Gíslason gjald-
keri og Guðmundur Ingjaldsson fjármálaritari.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Tólknafjarðar
Á aðalfundi Verkalýðsfélags Tálknafjarðar var fyrrverandi
stjórn öll endurkosin og skipa hana þessir rnenn: Sigurður Á.
Eiríksson formaður, Guðmundur Sveinsson ritari, Guðmund-
ur Þorsteinsson gjaldkeri, Þórarinn Jónsson og ' Einar Guð-
mundsson meðstjórnendur.
Aðalfundur Verkamannafélags Arnarneshrepps
A aðalfundi Verkamannafélags Arnarneshrepps voru þessir
menn kosnir í stjórn félagsins: Karl Sigurðsson formaður, Jón
Kristjánsson ritari og Valgarður Sigurðsson gjaldkeri.
Aðalfundur Þórs ó Selfossi
Verkamannafélagið Þór á Selfossi hélt aðalfund sinn 7. febr.
s.l. I stjórn voru kosnir: Björgvin Þorsteinsson formaður, Sig-
ursteinn Olafsson ritari og Guðmundur Guðjónsson gjaldkeri.
Varastjórn: Guðbjörn Sigurjónsson varaformaður, Sigurður
Olafsson vararitari og Sigurjón Stefánsson varagjaldkeri. Sam-
þykkt Var að hækka inntökugjaldið úr 5 kr. í 25 kr. Guð-
mundur Vigfússon erindreki Alþýðusambandsins flutti á fund-
inum erindi um ástand og horfur i verkalýðsmálum.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Norðfirðinga
Verkalýðsfélag Norðfirðinga hélt aðalfund sinn 8. febr. s.l.
I stjórn voru kosnir: Bjarni Þórðarson formaður, Sigurjón
Ásmundsson varaformaður, Jakob Hermannsson ritari, Sigurð-
ur Jónsson gjaldkeri og A^aldimar Eyjólfsson meðstjórnandi.
Samþykkt var á fundinum að segja upp kjarasamningum fé-
lagsins við atvinnurekendur og eru þeir útrunnir 1. maí n. k.
Aðalfundur Verkalýðsfélags Dyrhólahrepps
Verkalýðsfélag Dyrhólahrepps hélt aðalfund sinn 27. jan.
s.l. Stjórn félagsins var öll endurkosin og skipa hana: Gunnar
Stefánsson formaður, Vigfús Olafsson ritari og Sigurður B.
Gunnarsson gjaldkeri.
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Esju
Verkalýðsfélagið F.sja í Kjósarsýs] u hélt aðalfund sinn að
Brúarlandi 8. febr. s.l. í stjórn voru kosnir: Lárus Halldórsson
formaður, Brynjólfur Guðmundsson ritari, Guðmundur Þor-
kelsson varaformaður, Hans Guðnason gjaldkeri og Ingimund-
ur Bjarnason aðstoðargjaldkeri. Samþykkt var að hækka taxta
félagsins lir kr. 2,65 í kr. 2,80 á klst.
Aðalfundur Iðju, Hafnarfirði
Iðja, félag verksmiðjufólks, Hafnarfirði, hélt aðalfund sinn
8. febr. s.l. í stjórn voru kosnir: Magnús Guðjónsson formaður,
Magnús Jónsson ritari og Þóroddur Gissurarson gjaldkeri.
60
VINNAN