Vinnan


Vinnan - 01.03.1997, Blaðsíða 11

Vinnan - 01.03.1997, Blaðsíða 11
Gangur kjaramálanna September 1996 Stéttarfélög innan ASI hefja undirbún- ing að gerð viðræðuáætlana. Itarlegt upplýsingaefni um nýja vinnulöggjöf er kynnt. Kröfugerð undirbúin. Efnt til funda víða urn land. Mikil áhersla lögð á að samningar náist fyrir áramót. 14.-15. Formenn landssambanda ASÍ ræða gerð viðræðuáætlana. Samþykkt að landssamböndin leiti eftir umboð- um aðildarfélaganna til að semja um viðræðuáætlanir. 20.-22. Rafiðnaðarsamband Islands gengur frá kröfugerð sinni á kjara- málaráðstefnu, fyrst landssambanda ASÍ. 30. Formenn aðildarfélaga Verka- mannasambandsins funda um kröfu- gerð og aðkomuna að gerð samninga. Októbep 1996 Ráðherra og þingmenn leggja mikla áherslu á að launafólk sýni hófsemi í kröfugerð, ekki síst eftir stefnuræðu forsætisráðherra. Kröfugerðir félaga og sambanda koma fram. Samninga- nefndir kosnar. Fyrstu viðræðuáætlan- ir undirritaðar. Landssambönd ASI óska eftir samningsumboðum frá að- ildarfélögum sínum. Stærstu stéttarfé- lögin í Reykjavík, VR, Dagsbrún og Framsókn ákveða að semja sjálfstætt. Alþýðusamband Vestfjarða aflar um- boða frá aðildarfélögum sínum. 5. Fiskvinnsludeild VMSÍ heldur fjöl- menna ráðstefnu um kröfur fiskverka- fólks. 9. Fyrsti samningurinn um viðræðu- áætlun undirritaður. LIV, VR og Fé- lag íslenskra stórkaupmanna undirrita áætlun þar sem gert er ráð fyrir að sáttasemjari taki við stjóm viðræðna 13. desember hafi ekki samist fyrir þann tíma. Verslunarmenn leggja áherslu á að stuttur tími sé til stefnu. 23. Fyrsti formlegi samningafundur- inn um endurnýjun kjarasamninga hefst í húsakynnum ríkissáttasemjara þegar fulltrúar Samiðnar og Vinnu- málasambandsins hittast. Nóvember 1996 Umræður um endumýjun kjarasamn- inga fara mjög hægt af stað. Ahersla lögð á að ræða sérkjaramálin fyrst. Samningaviðræður um gildistöku vinnutímatilskipunar ESB í gangi. Frumvarp um Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins vekur miklar deilur um mismunun í lífeyrisréttindum. Sam- bandsstjórn ASÍ fundar og þar eru kynnt drög formanna landssambanda ASÍ að rammasamningi um gerð sér- kjarasamninga á vinnustöðum. Desember 1996 VMSI afhendir kröfugerð sína. Lág- markslaun í landinu verði 70.000 kr. að loknum tveggja ára samningstíma. Verkalýðshreyfingin leggur mikla áherslu á að ná samningum fyrir ára- rnótin en lífeyrismál starfsmanna ríkisins setja strik í reikninginn. Mið- stjóm ASÍ krefst jöfnunar lífeyrisrétt- inda. Undir jól verða harðar deilur um auknar skattbyrðar á launafólk og fá- tækt í landinu. Engir kjarasamningar takast fyrir áramótin og um miðjan desember óska atvinnurekendur eftir samkomulagi um breytingar á við- ræðuáætlunum þar sem viðræðum er frestað fram yfir áramót. 17. Verkalýðsfélögin á Sauðárkróki vinna mál fyrir Félagsdómi en félögin stefndu Fiskiðjunni Skagfirðingi fyrir brot á aðalkjarasamningi vegna ólög- mætra uppsagna. Fyrirtækið bar rang- lega fyrir sig hráefnisskort. 20. Stjórnvöld hækka tekjuskatt ein- staklinga með því að frysta persónu- afslátt og hækka skatthlutfall. Bætur almannatryggingakerfisins eru einnig frystar. Mikil umræða um aukna skatt- heimtu af launafólki fylgir í kjölfarið. 30. Samningur landssambanda ASI og VSÍ um framkvæmd vinnutímatilskip- unar ESB undirritaður. Janúan 1997 Þegar ekkert gengur í kjaraviðræðum eftir þriggja vikna hlé fara verkalýðs- félög að ræða hugsanlegar aðgerðir til að ýta á eftir gerð kjarasamninga. Kjaradeilum vísað til ríkissátta- semjara. Formenn landssambanda ASI hittast á vikulegum fundum til að fara yfir stöðu mála. I lok mánaðarins er mikið rætt um jaðarskatta enda lítil hreyfing á störfum svokallaðrar „jaðarskattanefndar“. Stéttarfélög undirbúa aðgerðaáætlanir og fara yfir kjörskrár vegna hugsanlegra atkvæða- greiðslna um verkfallsboðanir. 13. VSI kynnir hugmyndir sínar um vinnustaðasamninga og svarar því loks þeim drögum að rammasamningi sem formenn landssambanda ASI kynntu á sambandsstjómarfundi ASÍ í nóvember. Samninganefnd VMSÍ svarar með því að ítreka tillögur VMSÍ að rammasamningi sem kynnt- ar voru í upphafi kjaraviðræðna. 14. Stóra samninganefnd VMSÍ sam- þykkir að vísa kjaradeilunni til sátta- semjara. Fleiri fylgja á eftir. 17. VSI sendir frá sér greinargerð um kröfur Dagsbrúnar og Framsóknar og spáir efnahagslegri kollsteypu nái þær fram að ganga. Atvinnurekendur segj- ast vantrúaðir á að verkafólk sé tilbúið í átök til að ná fram kjarabótum. 20. Landssambönd ASI mæta ekki til viðræðna við VSI um vinnustaða- samninga vegna samningsbrota gagn- vart rafiðnaðarmönnum í loðnuverk- smiðjunni í Helguvík. Deilan leysist nokkrum dögum síðar með fullnaðar- sigri RSÍ. 23. Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, segir atvinnurekendur og stjórnvöld stefna í átök, komist ekki hreyfing á samningamálin. 26. Forsætisráðherra segist óttast að menn séu að tala sig í verkföll. Um- mælin valda deilum á Alþingi. Febrúar 1997 Samningar takast milli verkalýðsfé- laga og loðnubræðslnanna. Landssam- bönd ASÍ kynna frumkvæði sitt að heildstæðri lausn kjaradeilunnar í landinu og hvetja stéttarfélögin til að hefja undirbúning aðgerða. 14. Landssambönd ASI kynna sam- eiginlega kjarastefnu sína þar sem fléttað er saman launastefnu með sér- staka áherslu á kjarajöfnun og breyt- ingum á skattkerfinu sem eiga að tryggja að markmið stefnunnar um aukinn kaupmátt nái fram að ganga. ítrekað er að þetta sé heildstæð og raunhæf lausn og nú velti það á at- vinnurekendum og stjórnvöldum hvort til átaka komi á vinnumarkaði. Formenn landssambanda ASÍ gefa þessum aðilum tíu daga til að svara því hvort þeir hafi í hyggju að fara þessa leið eða ekki. 25. Að loknum viðræðum við at- vinnurekendur og fundi með fulltrú- um stjórnvalda er það sameiginlegt mat formanna landssambanda ASÍ að ekki hafi komið fram í verki vilji til að fara þá leið sem landssamböndin lögðu til. Þeir skora á aðildarfélögin að hefja boðun aðgerða í samræmi við áætlanir sínar. Fyrstu atkvæðagreiðsl- umar, hjá RSÍ og Dagsbrún og Fram- sókn, hefjast sama dag. Rafvirkjar hjá Reykjavíkurborg samþykkja með öll- um greiddum atkvæðum að boða verkfall frá 9. mars. 27. Framsókn og Dagsbrún boða til fjölmenns félagsfundar. Þar er mikil stemmning og kynntar niðurstöður atkvæðagreiðslna um verkfallsboðun hjá Mjólkursamsölunni og ísgerð MS. Verkfallsboðun samþykkt með tæplega 90% greiddra atkvæða. Mars 1997 Mikið annríki í Karphúsinu. Rætt um tæknilegar leiðir við að færa taxta að greiddu kaupi og hvfldartíma. Hreyf- ing virðist komast á viðræður eftir boðun fyrstu verkfalla. Boðun aðgerða hellist inn: Hlíf boðar verkfall hjá Eimskip í Hafnar- firði frá 13. mars, Verkalýðsfélag Vestmannaeyja boðar yfirvinnubann í loðnuverksmiðjum frá 10. mars, Félag járniðnaðarmanna, Rafiðnaðarsam- bandið og Dagsbrún og Framsókn boða verkfall vegna félagsmanna hjá Eimskip og Samskip frá 12. mars, Bíliðnafélagið boðar verkfall hjá Eim- skip frá 12. mars, Dagsbrún boðar verkfall hjá Löndun frá sama tíma, Rafiðnaðarsambandið boðar verkfall hjá RARIK frá 17. mars, Hlíf boðar verkfall félagsmanna við bensínaf- greiðslu frá 17. mars, Dagsbrún boðar verkfall vegna félagsmanna sem vinna við bensínafgreiðslu og olíudreifingu frá 17. mars. 1. VR og Félag íslenskra stórkaup- manna undirrita kjarasamning. 3. Sjö verkalýðsfélög úr öllum lands- homum boða stuðningsaðgerðir vegna mjólkurverkfalls Dagsbrúnar í Reykjavflc. Forysta ASÍ ræðir við for- sætisráðherra til að gera honum grein fyrir stöðunni í kjaraviðræðunum og ítreka kjarastefnu landssambandanna. Menn hafa þungar áhyggjur af því að upp úr viðræðum slitni enda hafa atvinnurekendur ekki enn svarað kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar. 4. VR og Rafiðnaðarsambandið undir- rita kjarasamning við Islenska út- varpsfélagið hf. Viðræður um fyrir- tækjasamninga langt komnar í karp- húsinu en ekki er enn farið að ræða launaliði. 5. Sjómenn vinna mikilvægan sigur fyrir Félagsdómi þegar dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að svoköll- uð tonn á móti tonni viðskipti með veiðiheimildir séu brot á kjarasamn- ingi þeirra. Fréttir berast af því að hag- vöxturinn í efnahagslífinu '96 sé sá mesti frá 1987. Enn er beðið svars at- vinnurekenda við kröfugerð verka- lýðshreyfingarinnar. 6. Samtök atvinnurekenda leggja loks fram svar sitt við kröfugerð verkalýðs- hreyfingarinnar. Landssambönd ASI gagnrýna svarið harkalega og segja það að óbreyttu ekki grundvöll áfram- haldandi viðræðna. I fyrsta lagi eru launahækkanir fjarri því að vera ásættanlegar og í öðru lagi er verið að leggja til ýmsar grundvallarbreytingar, svo sem lækkun yfirvinnuálags og heimild fyrirtækja til að láta einstak- linga vinna á dagvinnukaupi til klukk- an 19 á kvöldin. Þá er gert ráð fyrir samningi til þriggja ára, í stað tveggja, og launahækkunum í prósentum í stað krónutölu. Rafiðnaðarmenn segja til einskis að halda áfram viðræðum á þessum grundvelli enda dónaskapur við fé- lagsmenn RSI að kynna þeim slíkt til- boð. Önnur landssambönd halda áfram viðræðum til að setja fram at- hugasemdir sínar og fá frekari svör og skýringar. Mikið ber á milli aðila. 7. VSI ýjar að því að leggja til hliðar þá leið landssambanda ASI að hækka sérstaklega lægstu laun með því að færa taxta nær greiddu kaupi og fara þess í stað út í einfalda prósentuhækk- un allra launa. Þessum hugmyndum er tekið mjög fálega. 8. VR semur við 10-11 verslanimar og RSI við Félag íslenskra stórkaup- manna. Um hádegi slitnar upp úr við- ræðum Dagsbrúnar og Framsóknar við samtök atvinnurekenda. 9. Verkfall Dagsbrúnar í Mjólkursam- sölunni skellur á um miðnætti. Samn- ingaviðræður í Karphúsinu við VR, RSI og Landssamband iðnverkafólks standa fram á nótt. Samtök atvinnu- rekenda falla frá kröfu sinni um lækk- un yfirvinnuálags. Rafiðnaðarmenn hjá borginni fresta boðuðu verkfalli. 10. Þrír kjarasamningar nást aðfarar- nótt mánudagsins. Landssamband iðn- verkafólks semur frá I. mars til 15. október 1999. RSÍ semur við aðra en Reykjavíkurborg til febrúar árið 2000 og VR semur við VSÍ og VMS til sama tíma. ISLENSKT ATVINNULIF Nýbýlavegi 12 Sími: 554 4433 HITAVEITA REYKJAVÍKUR KFFB KAFFI TÁR KAUPFELAG FÁSKRÚÐSFIRÐINGA Holtsgötu 52 Ytri Njarðvík Sími: 421 2700 Fax: 421 2735 KAUPFELAG HERAÐSBUA- KAUPVANGI6 -700 EGILSSTAÐIR PÓSTHÓLF180 - SÍMI471-1200- MYNDSENDIR 471-2035 ŒtegfEfíBim /KVH KAUPFÉLAG VESTUR- HÚNVETNINGA HVAMMSTANGA ORKA UR AVÓXTUM Vinnan 11

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.