Vinnan


Vinnan - 01.03.1997, Síða 12

Vinnan - 01.03.1997, Síða 12
Ríkisstjórnin leggur til að hátekjuskattur lækki um 2% en tðkst að kalla það 2% hækkun! Málið er að almenna skattþrepið á að lækka um 4% en viðbótarþrep hátekjuskattsins sem leggst ofan á það aðeins um 2%. Að auki hækka viðmiðunar- mörkin þar sem hátekjuskattur byrjar að leggjast á. Hvernig væri að tala bara mannamál? bllémoyoll Samningar RSÍ, i: nverkaf ólks og VR Aðfararnótt mánudagsins 10. mars voru gerðir þrír kjara- samningar í kjölfar þess að at- vinnurekendur féllu frá kröfu sinni um lækkun yfirvinnu- álags. Samið var um hækkun lægstu taxta,færslu taxta nær greiddu kaupi og að auki al- mennar launahækkanir á bilinu 12 -13%. Gildistíminn er til 15. október 1999 hjá iðnverka- fólki en 15. febrúar árið 2000 hjá rafiðnaðarmönnum og verslunarmönnum. Kjarasamningur milli Iðju, félags verksmiðjufólks, og Landssam- bands iðnverkafólks, annars vegar, og Vinnuveitendasambands íslands og Vinnumálasambandsins, hins vegar, felur í sér að 1. mars 1999 verður lægsti taxti allra sem hafa eins árs starfsreynslu eða eru 22 ára og eldri kominn í 70.000 krónur. Samið er um nýtt kauptaxtakerfi þar sem taxtar eru færðir nær greiddu kaupi með hækkun dagvinnulauna. Stéttarfélag getur ekki gert tilkall til eigna landssambands Hæstiréttur hefur staðfest dóm undirréttar í máli Vél- stjórafélags íslands gegn Far- manna- og fiskimannasam- bandinu. Vélstjórafélagið, sem var eitt stofnfélaga Farmanna og fiskimannasambandsins, sagði sig úr sambandinu árið 1991 og gerði í kjölfarið tilkall til hluta af eignum þess. Dómur- inn féllst ekki á kröfur Vélstjóra- félagsins og dæmdi það til greiðslu málskostnaðar. í niður- stöðu dómsins segir meðal annars að eignir sambandsins hafi myndast áþekkt því sem algengast er í stéttarfélögun- um, og virðast ekki vera aðrar en þær sem tengja megi við venjulegt starf að almennum til- gangi sambandsins. Véistjóra- félagið geti ekki sannað að þær hafi orðið til með þeim hætti að byggja megi á sérstakt tilkall til þeirra og geti ekki sýnt fram á að venjuleg eignarréttarleg sameign hafi myndast með aðildarfélögunum. Lokaorðifl Varlega! í bráfum sem berast Irá reykmettuðum bakherbergjum Karphússins, í skjóli nætur, geta leyust óvæntar sendingar. Til viðbótar eru almennar launa- hækkanir sem hér segir: Frá og með 1. mars 1997 hækka öll laun og launataxtar um 4,2%, 1. janúar 1998 um 4,0% og um 3,5% 1. janúar 1999. Mikilvægasti þátturinn í samningi Landssambands iðnverkafólks er að grundvallaratriði kjarastefnu lands- sambanda ASI um 70.000 króna lágmarkslaun og færslu taxta að greiddu kaupi nær fram að ganga að mati Guðmundar Þ Jónssonar, for- manns Li. Lægstu taxtar hækka úr tæplega 50 þúsund krónum á mán- uði og upp í um 70 þúsund en að sögn Garðars Vilhjálmssonar, skrif- stofustjóra Iðju, eru hlutfallslega flestir á þessum lágu töxtum innan Landssambands iðnverkafólks, sam- anborið við hin landssamböndin innan ASI. Þá náðist fram flýting á auknum orlofsrétti og réttur til að sækja starfsmenntanámskeið í vinnutíma en á móti eru nám- skeiðsálög almennt felld inn í taxta. Gjörbreytt kauptaxtakenfi Kjarasamningur Rafiðnaðarsam- bands íslands við VSÍ, VMS og Landssamband íslenskra rafverk- taka felur í sér að lægstu launataxtar rafiðnaðarmanna verða komnir í 90.000 krónur 1. janúar 1999. Taxtar eru færðir að greiddu kaupi og auk þess eru almennar launa- hækkanir sem hér segir: Öll laun og launataxtar hækka um 4,7% frá undirskriftardegi, um 4% 1. janúar 1998 og um 3,65% 1. janúar 1999. Grunntölur afkastahvetjandi launa- kerfa taka sömu prósentuhækkun- um. Kjarasamningur VR við VSI og VMS felur í sér nýtt kauptaxtakerfi, sérstaka hækkun lægstu launa auk ramma um fyrirtækjasamninga. Öll laun og launataxtar hækka um 4,7% frá undirskriftardegi, urn 4% 1. jan- úar 1998 og um 3,65% 1. janúar 1999. Hamstrað fyrir verkfall. Dagsbrúnarmenn í Mjólkursamsölunni lögðu niður vinnu á miðnœtti þann 9. mars, en hátt í 90% þeirra höfðu greitt atkvæði með verkfallsboðuninni. Starfsmenn MS stöðva dreifingu mjólkur til Hagkaupa Tveimur dögum áður en verkfall starfsmanna Mjólkursamsölunnar í Reykjavík skall á, var öll dreifing mjólkur til verslana Flagkaupa stöðvuð tímabundið. „Það sem gerðist var að Flagkaupsmenn voru búnir að flytja mikið magn af mjólkurvörum að norðan til að byrgja sig upp fyrir verkfallið," segir Ólafur Ólafsson trúnaðarmaður starfsmanna í Mjólkursamsölunni. „Við höfum talið að við séum með samninga um mjólkurdreifingu og þeim fylgi forgangsréttur. Því töldum við ekki hægt að líða þetta og ákváðum að stöðva mjólkursendingar til þeirra fram eftir degi.“ Ólafur bendir á að starfs- fólk mjólkurbúanna fyrir norðan standi fyllilega með starfsmönnum MS en hins vegar hafi það ekki getað veitt aðstoð fyrr en verkfall væri hafið. Ólafur ítrekar að aðgerðirnar hafi átt að vekja athygli á alvöru kjaradeiln- anna, hvorki hafi átt að skaða Mjólkursamsöluna né Flagkaup. Mikil sam- staða sé meðal starfsmanna MS og menn fyllilega tilbúnir í slaginn, enda hafi hátt í 90% stutt tillöguna um verkfall í kosningum. Mikilvægur sigur í Félagsdómi Félagsdómur hefur úrskurðað að þátttaka sjómanna í kvóta- kaupum, svokölluð tonn á móti tonni viðskipti, séu óheimil þar sem sjómenn fái ekki hlut af hæsta verði aflans eins og kjarasamningar kveða á um. Sjómannasambandið fagnar niðurstöðu dómsins og telur hana marka tímamót í barátt- unni gegn kvótabraski. Tonn á móti tonni viðskiptin fara þannig fram að útgerðin semur um peningagreiðslu fyrir hluta aflans en tekur kvóta upp í sem hluta af greiðslu. Skiptahlutur sjómanna er þá ekki reiknaður af heildarverðmæti aflans, eins og kjarasamningar kveða á um, heldur aðeins af þeim hluta sem greitt er fyrir með peningum. Þessari kjaraskerðingu hefur Sjó- mannasamband Islands mótmælt harðlega. Sævar Gunnarsson, for- maður Sjómannasambandsins, segir niðurstöðu dómsins mjög þýðingar- mikla. „Þetta staðfestir að við höfum haft rétt fyrir okkur sl. 5 ár, bæði hvað varðar tonn á móti tonni við- skiptin og bein kvótakaup. Önnur niðurstaða hefði þýtt að stoðunum hefði verið kippt undan kjarasamn- ingum sjómanna.“ Sævar segir að túlkun LÍÚ á niðurstöðu dómsins sé hrein markleysa. „Þeir líta svo á að með því að fá skriflegt samþykki áhafnarinnar fyrir kvótakaupum sé málið leyst. Það er ekkert til í því,. við höfum hæstaréttardóm (mál nr. 416/1994) sem féll sjómönnum í vil þrátt fyrir að fyrir lægi skriflegt sam- þykki áhafnarinnar fyrir kvótakaup- um og eins er skýrt kveðið á urn það í kjarasamningum að sjómenn eigi að fá skiptahlut af heildarverðmæti afla. Félagsdómur hefur nú staðfest þetta enn frekar.“ Sjómannasambandið hefur krafist þess að allur afli fari á fiskmarkað og segir Sævar að þessi niðurstaða ýti sterklega undir kröfur sambandsins. ,,Nú er ekkert eftir nema að klára þessa deilu sem við höfum staðið í frá ‘90-’91,“ segirhann. 4ÉÉí PIZZA PASTA 554 6600 „Þeir eru með bestu pizzur sem ég hef nokkurn tímann smakkað“ Edward Becker Sama símanúmer fyrir báða staðina Hlíöasmára - Austurströnd Æk pizza yB8r pasta 554 6600 RAFRUN Smiðjuvegi 11 e - 200 Kópavogur Sími 564 1012 Myndriti 5641021 Alhliða rafvirkjaþjónusta

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.