Stefnir - 01.04.1995, Side 17

Stefnir - 01.04.1995, Side 17
SJÁLFSTÆÐAR K O N U R Grettistak í Sjálfstæðisflokknum Fyrir nokkrum misserum kom orðið „bakslag" (bein þýðing enska orðsins backlash“) upp í jafnréttisumræðunni víða um heim. I hnotskurn fóru menn að velta því fyrir sér hvort jafnréttis- barátta undanfarinna áratuga hefði nú orðið fyrir bakslagi, að svoköll- uð kvennabarátta hefði verið farin að renna tvö skref aftur á bak fyrir hvert hálff eða eitt fram á við. A tímum jafnréttis kynjanna til náms og yfirleitt að nýta hæfileika sína í byrjun fullorðinsáranna eru svona vangaveltur nokkuð skrýtnar en því miður fer ekki milli mála að þær eiga rétt á sér - fullan rétt á sér! I stuttri hugleiðingu er erfitt að fara djúpt í ástæðurnar fyrir mögu- legu bakslagi í jafnréttisbaráttunni en í stað þess að líta á heimsmynd- ina í því samhengi er fróðlegt að minnast þess að borið saman við þau lönd, sem eru í framvarðasveit jafnréttisbaráttunnar, stöndum við íslendingar langt að baki þeim. Sama er hvar drepið er niður fæti, alls staðar eru íslenskar konur aftastar á merinni í norrænum samanburði. Jú, við höfum sann- arlega konu í embætti forseta, konu í embætti forseta Alþingis, eftir Ellen Ingvadóttur konum hefur fjölgað lítillega á þingi og í sveitarstjómum og kon- | ur eru að hasla sér völl í auknum i mæli í viðskiptalífinu og opinberri stjómsýslu svo nokkur dæmi séu nefnd. En hvernig má þá vera að í þjóðfélagi sem státar sig af jöfhum ) rétti kynjanna til náms og fram- færslu séu konur almennt með mun lægri laun en karlar fyrir ná- kvæmlega sömu vinnu? Nýlegar j tölur frá Hagstofúnni sýna svo [ ekki verður um villst að launamis- réttið er staðreynd. Hvernig stendur á því að laun hafa tilhneig- ingu til að lækka þegar konum fjölgar í starfsstéttum sem áður | flokkuðust undir það að vera „hefðbundnar“ karlastéttir? Eg minnist þess þegar ég fór að starfa í jafnréttishreyfingunni fyrir nokkrum ámm að mér yngri kon- | ur, sem sumar hverjar vom ný- komnar út á vinnumarkaðinn, voru undrandi á þessu brölti og bentu mér á að það ríkti nú jafn- rétti á íslandi. Þær voru nýkomn- ar úr framhaldsnámi og flestar höfðu fengið starf og vom sáttar við sitt - þá! Eftir nokkurra ára starf eru margar þessara kvenna komnar á kaf í jafnréttisbaráttuna vegna þess að augu þeirra hafa opnast. Þær hafa rekið sig á að jafnrétti er meira í orði en á borði. Laun þeirra em lægri og líkur á stöðu- hækkunum minni en karla. Með slíka reynslu í farteskinu snúast þær til vamar því auðvitað sætta þær sig ekki við lakari kjör en starfsbræður þeirra. Launamis- munun er ekkert nema mannrétt- indabrot. Hveijum er um að kenna eða öllu heldur hverju? Erum við, ís- lenskar konur, eitthvað slakari í jafnréttisbaráttu okkar en stallsyst- ur okkar annars staðar á Norður- löndunum? Höfum við verið með rangar áherslur og litið á okkur sem undirokaðan hóp - kúgaðan hóp? Ekki er hægt að ásaka neinn sérstakan vegna slakrar stöðu ís- lenskra kvenna en þó læðist að mér sá gmnur að ef til vill höfum við konur ekki sýnt nægjanlegt þor, t.d. til að sækja fast í ábyrgð- arstöður á vinnumarkaðinum og í stjómmálaflokkunum, fara í fram- boð til þings eða sveitarstjórna, og yfirleitt að láta að okkur kveða þannig að eftir sé tekið. Það læð- ist að manni sá grunur að við höf- um unnið of dreift og að rödd okk- ar hafi ekki náð því að heyrast vegnaþess. Grundvöllurjafhréttis er framlag einstaklingsins án tillits til kynferðis en þó fer ekki hjá því að sameiginlega sé unnt að lyfta grettistaki - meðal annars í Sjálf- stæðisflokknum. 1 7

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.