Stefnir - 01.04.1995, Side 40

Stefnir - 01.04.1995, Side 40
S T E F N R Er stjórnmálaspilling víðtækari á Íslandi EN í GRANNRÍKJUNUM? JQH B ó k i n m „Embættismenn I menn. Skipula« J*WL og vinnubrögð í íslenskri stjórn- sýslu“ eftir Gunnar H. Kristinsson, dósent í stjómmálafræði, kom út haustið 1994 hjá Heimskringlu, háskólaforlagi Máls og menningar. Þar er höfúndur ómyrkur í máli: „Það er meira en bara illur grunur, að nokkuð hafi skort á fagmennsku í opinberu lífi á íslandi," segir hann. Fullyrðir hann, að Islendingar hafi „tamið sér ýmsar spilltar venjur í opinberu lífi umfram næstu nágranna sína“. Og í bókarlok segir Gunnar: „Sú athugun á stöðu embættismanna og stjómmálamanna, sem ffam hefur farið í þessu riti, bendir ekki til þess, að vel haft tekist til um uppbyggingu stjómsýslukerfisins á íslandi.“' í kynningu á bókarkápu segir, að rannsókn höíúndar hvíli á „traustum fræðilegum grunni“. Þetta hlýtur að merkja, að Gunnar geti lagt ffam áreiðanleg gögn til stuðnings þessum afdráttarlausu staðhæfmgum. En þrátt fyrir vandlegan lestur fann ég hvergi ffambærileg gögn um það, að óeðlileg fyrirgreiðsla eða spilling væri meiri á Islandi en í grannríkjunum í Norðurálfúnni. Gunnar vitnar að vísu í þá alkunnu staðreynd, að kunningsskapur skiptir miklu máli á íslandi; hann tilgreinir ummæli íslenskra stjóm- málamanna um fýrirgreiðslu, sem þeir hafa veitt kjósendum sínum; og hann endursegir fjömgar umræður um spillingu í íslenskum eftir Hannes H. Gissurarson stjómmálum. En slíkar athugasemdir og sögur geta vitaskuld ekki komið í stað kerfisbundins samanburðar stjórn- arfars á Islandi og í öðrum löndum eða í stað mælingar á spillingu á íslandi miðað við spillingu erlendis. Spilling liáð kostinum á spillingu Lítum nánar á þetta mál. Gunnar H. Kristinsson skilgreinir spillingu svo, að „einstaklingar, sem gegna opinberum skyldustörfúm, reyna að öðlast fjárhagslegan ávinning, virðingu eða völd fýrir sig sjálfa eða þá, sem næst þeim standa, á kosmað skyldustarfa sinna".2 Má ætla, að spilling í þessum skilningi sé meiri á íslandi en í grannrikjunum? Gunnar svarar því til, að spilling hafi lengi verið útbreidd í íslenskum stjómmálum. Það á við, hvort sem litið er á gjafir, leynd yfir fjármálum stjórn- málaflokka, mannaráðningar, verksamninga, opinber innkaup, hagsmunaárekstra eða fýrir- greiðslupólitík. Þótt eðli málsins samkvæmt sé erfitt að leggja nákvæmt mat á útbreiðslu spillingar, virðist líklegt, að spillt vinnubrögð hafi verið mun algengari á íslandi en í mörgum nágrannalandanna, svo sem í Skandinavíu. En það, sem Gunnar nefnir, sannar ekkert. Þótt stjóm- málaflokkamir íslensku veiti ekki upplýsingar um §ármál sín, er óleyfilegt að álykta annað af því en það, að áreiðanleg gögn liggi ekki fýrir um spillingu þar, aðeins illur grunur Gunnars sjálfs. Klíkuskapur við mannaráðningar og verk- samninga kann einnig að vera mikill á íslandi, eins og Gunnar fúllyrðir. En það sannar ekkert um það, að slíkur klíkuskapur sé minni í Danmörku, sem Gunnar velur oftast til samanburðar í riti sínu3 (eins og eðlilegt er, þar eð stjóm- sýsluhefðir okkar em þaðan runnar). Stjómmálamenn em ekki einu mennimir, sem geta verið í klíku eða kunningjasambandi. „Eitthvað er rotið innan Danaveldis,“ lét Shakespeare eina söguhetju sína í Hamlet, Marsellus, segja forðum.4 Vitaskuld geta deildir í dönskum háskólum misnotað ráðningar-vald eins og stjórnmálamenn uppi á Islandi: Þegar danskur prófessor ræður skjólstæðing sinn til kennslu, en leyfir öðrum ekki að keppa við hann um lausa stöðu fýrr en eftir mörg ár, er hann sekur um spillingu í skilningi Gunnars H. Kristins- sonar. Félagsmálastofnanir í dönskum kaupstað geta misnotað úthlutunarvald eins og stjóm- málamenn uppi á íslandi: Þegar danskur félagsráðgjafi lætur bróður einnar samstarfskonu sinnar fá íbúð á lágri leigu gegn því, að samstarfskonan geri sér svipaðan greiða einhvem tíma síðar, er félagsráðgjafinn sekurum spillingu í skilningi Gunnars. Þótt kjördæmi í Danmörku séu fjölmennari en á 40

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.