Stefnir - 01.04.1995, Side 24

Stefnir - 01.04.1995, Side 24
s F N I R neytenda fyrir þeirra eigin kostn- aði og kostnaði við að veita þjónustuna. Eignarformið á þeim aðilum er veita þjónustuna þ.e. hvort það er í einkaeigu eða opinberri skiptir ekki megin máli fyrir virkni þjónustugjalda held- ur að samkeppnin sé til staðar. Nefnd um opinbera stjómun inn- an OECD ríkjanna skilgreinir markaðstæki í veitingu opinberr- ar þjónustu sem tæki þar sem að lágmarki eitt einkenni markaðar- ins er virkt, t.d. samkeppni eða verðlagning. Rannsóknir sem nefndin hefur framkvæmt hafa leitt í ljós að notkun mark- aðstækja leiðir til meiri virkni í dreifíngu þjónustu og lægri til- kostnaðar. (4) Að síðustu má benda á að notkun markaðslausna dregur úr valdi stjórnmálamanna til að skipta sér af því hverjir fá hvað, hvenær og hvemig. Því er nú- tímavæðing jákvæð viðbót við einkavæðingu sem dregur einnig úrvaldi stjómmálamanna. Beiting markaðslausna á íslandi Þegar ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tók við stjórnar- taumunum var ætlunin að auka notkun þjónustugjalda til að efla kostnaðarvitund almennings og þeirra sem veita opinbera þjón- ustu. Jafnframt var tilgangurinn sá að freista þess að hafa áhrif á neyslustig viðkomandi þjónustu. I samanburði við skatta voru þjónustugjöld talin virkari, sann- gjamari og ekki hafa sömu letj- andi áhrif á hagkerfið. Sjúkling- ar þurfa nú að greiða fyrir stærri hluta þjónustunnar og fyrir fleiri verk en áður. Þó svo að upptaka þjónustugjalda hérlendis hafi dregið úr eftirspurn eftir t.d. heil- brigðisþjónustu þá virðast fyrstu vísbendingar gefa það til kynna að um umframeftirspurn hafi verið að ræða. Sé það rétt þá hafa þessar breytingar skilað þeim árangri að draga úr kostn- aði án þess að draga úr þjónustu eða öryggi þegnanna. Hér er því um raunverulega hagræðingu að ræða í miklu ríkara mæli en þeg- ar niðurskurður átti sér stað á vissum liðum án þess að nokkur kerfisbreyting ætti sér stað. (5) Sambærilegir hlutir hafa gerst varðandi lyfjakostnað i kjölfar breyttra reglna um kostnaðar- þátttöku, með svokölluðum „bestukaupa listum“ og ekki síst með notkun þjónustugjalda. All- ar rannsóknir sýna að þær breyt- Framtíð okkar Islendinga getur að stórum hluta ráðist afþví hversu vel tekst að draga úr rekstri hins opinbera. ingar sem gerðar hafa verið á lyfjaverslun á íslandi hafa ekki haft neikvæð áhrif á heilsufar, ekki leitt til þess að verðmunur á milli höfuðborgar og lands- byggðar hafi komið fram og ekki leitt til þess að jöfnuði hafi verið hætt. Utboð em samkvæmt ofan- greindum skilningi markaðstæki þar sem þau hleypa inn sam- keppni þar sem engin var fyrir áður og neyðir stjómendur til að huga meir að kostnaði. Á íslandi ná útboð til aðfanga, þjónustu og almennra fjárfestinga. Þrátt fyrir það að útboðsstefna ríkisstjóm- arinnar hafi engan lagalegan gmnn þá hefur árangurinn orðið umtalsverður og útboð em að verða regla fremur en undan- tekning hérlendis. (6) Hvers vegna nútímavœðing? Betri rekstur hins opinbera er | lykilatriði í því að skapa okkar | þjóðfélagi forskot í þeirri sam- j keppni sem á sér stað á milli þjóðanna. Betri rekstur hins op- inbera getur þannig aldrei leitt til annars en að skapa þeim fyrir- j tækjum sem starfa innan þeirra I betri aðstæður. Þar sem rikis- valdið hefur framkvæmt gagn- gerar breytingar á sínum opin- j bera rekstri og bætt þannig notk- ! un sína á gæðum með beitingu þeirra aðferða sem þróaðar hafa verið í einkageiranum, t.d. eins j og bresk stjómvöld hafa gert, hefur þeim tekist að breyta sín- um aðstæðum og leiða til aukins hagvaxtar. ÖIl umræða um um- bætur og nýskipan í ríkisrekstri bæði hérlendis og erlendis hefur í seinni tíð beinst að aukinni markaðsvæðingu innan ríkis- kerfisins og sterk rök hniga að því að takist slíkar breytingar á Islandi þá felist í þeim aðgerðum hagvaxtarbroddur. Síðustu ára- tugir hafa einkennst af mikilli stækkun hins opinbera m.a. vegna síaukinna krafna um vel- ferðarþjónustu. Framtið okkar Islendinga getur að stómm hluta ráðist af því hversu vel tekst að draga úr rekstri hins opinbera. Við þau umskipti er þörf á því nýja verklagi sem lagður hefur verið grunnur að á síðast Iiðnum ijómm ámm. Gagnrýni vinstri- manna hefur hvorki átt við rök né reynslu að styðjast. Heimildir: (1) Gemmell, N., (1993) „The Growth of the Public Sector. Theories and Intemational Evidence.“, Edward Elgar Publishing, London.- (2) Le Grand (1991), „The Theory of Govemment Failure: Decentralisation and Quasi-Markets.“, SAUS, Bristol. (3) OECD Public Management Committee(1993), „Stmctural Adjustment: Contribution of Public Mana- gement Reforms.“, OECD, Paris. (4) OECD Public Management Committee (1994), „Govemance in Transition. Public Management Reform inOECDCountries",OECD, Paris. (5) Amar Jónsson (1994), „A Comparative Study on the use of Market-Type Mechanisms in Public Service Provision in the Unitcd Kingdom and Iceland.“, óbirt MA ritgerð frá Birmingham háskóla. (6) Einar Magnússon (1992), „Lower Dmg Consumption in Iceland.", Nordic Statistics on Med- icine. 24

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.