Stefnir - 01.04.1995, Qupperneq 22

Stefnir - 01.04.1995, Qupperneq 22
S T E F N R um það, margir hverjir. Hanna Birna: Nei, öðru nær leggja Sjálfstæðar [ konur grundvallaráherslu á að hagsmunir kvenna og karla fari saman. Konur eru ekki kúgaður j minnihlutahópur og karlar ekki [ andstæðingar þeirra, líkt og vinstri kvennapólitík hefur í of | miklum mæli gengið út ffá. Við viðurkennum hins vegar þann félagslega mun sem hlýtur að | vera á kynjunum. Sá munur felur þó ekki í sér að konurséuffemrikörlumeðakarlar | ífemri konum, því innan hvors kynjahóps er jafnmikil breidd í j hæfdeikum og getu. Sjálfstæðiog [ ffelsi er allra hagur og þess vegna eru hagsmunir kvenna og karla ekki einasta samrýmanlegir, held- j ur samofnir. Er þörf á þviaó starfandi séu sér- stakir stjórnmálajlokkar fyrir konur, svo sem Kvennalistinn, eða aó konur starfi í sérstökum félögum innan stjórnmála- Jlokka? JÓNA Valgerðu r: Já, þegar aðstæður í þjóðfélaginu j kalla á úrbætur, þá verður að leita lausna. Þannig myndast þörf sem þarf að svara. Kvennalistinn varð [ til vegna þess að konur flmdu þessa þörf. Þar vom konur að verki sem ekki fundu lausnina í öðmm stjómmálaflokkum. Að [ konur hafa einnig myndað sérstök félög innan annarra stjómmála- flokka bendir til að þær finni ! einnig þessa þörf. Hanna Birna: Nei, því ef konur starfa í sérstök- um stjórnmálaflokkum ganga j þær um leið út frá því að konur og karlar hafi ekki sömu hags- muni og markmið. Með því | skapast hættan á að milli kynj- [ anna myndist pólitisk gjá sem hlýtur að draga úr líkum þess að jafnrétti náist. Það er hins vegar j löng hefð fyrir því að konur starfi í sérstökum félögum innan stjómmálaflokka, þó vonandi sé [ slíkt fyrirkomulag ffekar á und- anhaldi. Hvenœr teljið þið að „full- komnu“jafnrétti veröi náð, t.d. í launamálum? JÓNA Valgerður: Jafnrétti í launamálum næst ekki fyrr en hin hefðbundnu kvenna- störf eins og umönnunarstörfm, em metin til jafns í launum á við hefðbundin karlastörf. Sem dæmi má nefna að það að gæta fólks sé ekki minna metið en það að gæta ljármuna. „Fullkomið“ jafnrétti er ennþá fjarlægur draumur. Hanna Birna: Eg tel að ásættanlegu ástandi verði aðeins náð þegar allir ein- staklingar verða, óháð kyni, metnir út ffá eigin verðleikum. Anægð getum við ekki orðið fyrr en bæði konur og karlar hafa sömu forsendur til að velja sér farveg í lífinu og taka ákvarðanir um eigin menntun, starf eða Qöl- skyldulíf. Einungis með þá kröfu að leiðarljósi getum við talist á réttri leið og vonast eftir raunverulegum og varanlegum árangri, í launamálum sem og öðmm réttindamálum.

x

Stefnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.