Gisp! - 01.12.1991, Blaðsíða 51
Eins og fastir lesendur Gisp! vita var efnt til samkeppni í síðasta
tölublaði um bestu útfærsluna á handriti Þorvalds Þorsteinssonar, „Fríða
fríða". Þátttaka var framar vonum en hefði mátt vera betri. Það voru
helst yngri lesendur blaðsins sem brugðust skjótt við enda eitt af
markmiðunum að „uppgötva feimna og vel geymda snillinga."
UERÐLRUNflSRM-
KEPPNI GISP!
Ekki það að Þórólfur Erpur Eyvindsson sé eitthvað sérstaklega feiminn. En þessi
14 ára vestur-kópavogski hipp-hoppari sem dómnefnd taldi senda inn bestu
tillöguna segist ekki góður í að semja handrit og því hafi hann gripið gæsina
þegar hún gispaðist framhjá. Þar sem verðlaunaúrlausnin birtist á næstu tveimur
síðum höfum við ekki um hana mörg orð en bendum einungis á snjalla
uppbyggingu og góða frásögn.
í spjalli við Gisp! sagðist Þórólfur hafa byrjað að teikna í leikskóla, helst
indjána og kúreka, og í byrjun hafi myndirnar verið stakar en farið að raðast í
myndasögur þegar hann var 6 ára. Þórólfur teiknar mikið og byrjar bráðum í
Myndlistarskóla Kópavogs þar sem hann vill læra meira um skugga og þrívídd.
Sumum af nánustu vandamönnum Þórólfs fannst „Fríða fríða" heldur sóðaleg
saga en sjálfum þótti honum handritið gott enda hændur að myndrænni notkun
„ofbeldis". Áður en vammlausir lesendur af eldri kynslóðinni fara að tala um
spillta æsku er rétt að benda á að ofbeldisáhugi Þórólfs er af sama toga og finna
mátti t.d. hjá bandarísku listamönnunum sem teiknuðu Tomma og Jenna um og
eftir seinna stríð eða í fyrstu Mad-blöðunum upp úr 1950. Þórólfur fæst við
óraunverulegt ofbeldi, fyndið ofbeldi og finnst takmörk fyrir því sem sýna má og
vísar þá til fleygra orða Don Martins um að í lagi sé að teikna ör í rass einhvers en
ekki í auga. Þórólfur stefnir ekki í raunsæið.
Fyrir utan myndasöguna býr Þórólfur til vídeó-kvikmyndir ásamt félögum
sínum í Fés-film. Nýjasta myndin heitir „St-St-St-St-Stami, stamnördið," saga um
fordóma og ofbeldi. í myndinni leikur Þórólfur m.a. kærustu Tóta cool.
Við viljum þakka öllum þeim sem þátt tóku í keppninni. Þórólfur mun að
sjálfsögðu fá áskrift í verðlaun og kleinan í höfuðstöðvum Gisp! er væntanleg en
því miður er teiknari Ferdinands ekki með síma.
Þórólfur Erpur Eyvindsson sigurvegari í
myndasögusamkeppni GISP!
B.H.