Gisp! - 01.12.1995, Blaðsíða 3

Gisp! - 01.12.1995, Blaðsíða 3
e (gisp!) 7 tbl 1995 7. 2 Silfurskottumaðurinn: Sannar sögur Steingrímur Eyfjörð 5 Poppið kveðið í kútinn! Bjarni Hinriksson, S. Lee og J. Kirby 11 Hátt og lágt Þorri Hringsson 20 Hvar er þetta?! Laura Valentino 22 Gaga og Púkó Halldór Baldursson 29 Tveir góðir Jólasveinninn (JAP) 30 Ástarfuni Freydís Kristjánsdóttir 32 Sýnishorn Ómar Örn Hauksson 36 Teddy Transformer Þorri Hringsson 38 Timber Jean Antoine Posocco Aldarafmæli Ef einhver þykist sjá goðsagnafuglinn mynd- líkingahandhæga rísa úr ösku þegar þetta blað er opnað skal ritstjórnina ekki undra. Ef kötturinn hefur níu líf fylgir Gisp! honum fast á hæla með amk. sjö.* Það er einbeittur vilji aðstandenda blaðsins að samkeppnin við köttinn aukist á næsta ári. Frá því að fyrsta tölublaðið kom út, haustið 1990, hefur Gisp!-hópurinn ríslað við ýmislegt er viðkemur myndasögum. Nokkur reynsla og hefð er komin fyrir samvinnu við sýningarstaði um myndasögusýningar og útgáfu þeim tengdúm. Nægir þar að minna á fimmta tölublaðið og Kjarvalsstaði 1992. Samkvæmt bandarísku tímatali fæddist mynda- sagan þar í landi fyrir hundrað árum. Fjarri sé það okkur að véfengja þann listburð eða blanda okkur í deilur gamla og nýja heimsins um land- fræðilega staðsetningu fyrstu skrefanna. Hins vegar er þetta afmæli þörf áminning um langa tilveru myndasögunnar. Lengri en margan grun- ar. Kannski ætti að bjóða henni fast sæti í öldungadeildinni og ótakmarkaðan ræðutíma? Það er að segja ef hún kærir sig um að hverfa úr fjörlegri alvöru húllumhæsins í neðri deildinni. Þegar saman fer stórafmæli myndasögunnar og vilji margra til að sýna, gefa út og ræða myndasöguna er nokkur von til að vel takist. Því er það okkur sönn ánægja að kynna þetta sjöunda tölublað Gisp! sem öðrum þræði sýningarskrá tveggja sýninga er bera yfirskriftina „M og M“. Efni blaðsins er þannig að nokkru leyti helgað þessu þema, bæði í langri grein Þorra Hringssonar og í sumum myndasagnanna, en að öðru leyti byggir það á nýjum sögum höfunda sem allir hafa áður birt verk í Gisp!, að einum undanskildum, Ómari Erni Haukssyni. Hann leitar fyrir sér vestan hafs og sagan í blaðinu er ekki saga í hefðbundnum skilningi heldur sýnishorn sem hann sendi nýlega hasarblaðaútgefanda. BH ‘Athugulum lesanda sem telur síg hafa fylgst með uppvaxtarárum Gisp! og rekurekki minni til sjötta lífsins skal bent á Lýðveldisblað Gisp! og Eintaks sem út kom 17. júní 1994 og ritstjórnin leyfir sér að tölusetja eftir á. Útgefandi: GISP! útgáfufélag, Barmahlíð 56, 105 Reykjavík, sími 5623413 Ritnefnd: Bjarni Hinriksson, Halldór Baldursson, Þorri Hringsson Ábyrgðar- og umbrotsmaður: Bjarni Hinriksson Filmugerð: Repró Prentun: Prentsmiðjan Rún Káputeikning: Halldór Baldursson 1

x

Gisp!

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.