Gisp!

Ataaseq assigiiaat ilaat

Gisp! - 01.12.1995, Qupperneq 14

Gisp! - 01.12.1995, Qupperneq 14
WAFlÐÍ VBLT FVl NYLEéA PYRÍFL YKKUR AT HVERJU ALLT ER. 'A ^EÍO TÍU ■ VlELVlTvS'? JA’3 DATT MÉR EKkl i HLC J 7? V allskonar hlutum sem burtséð frá formi, notkun og inni- haldi búa einnig yfir táknrænni valdamerkingu þeirra sem þau nota. Sem dæmi um stöðutákn sem náð hefur útbreiðslu meðal flestra þjóða sem byggja þessa jörð er eitt sem er áhrifaríkt og einfalt og snýst á mjög áþreifanlegan hátt um staðsetningu viðkomandi einstaklings; því hærra uppi-því valdameiri. T.d. er Guð dæmi um ákaflega valdamikið afl. Hann er svo almáttugur að honum hefur verið úthlutað himninum svo allir, meira að segja páfi og keisarar, verða að líta upp til hans. Fyrr á öldum var hávaxinn líkami, útaf fyrir sig, ákveðinn vitnisburður um að eigandi hans hefði ekki liðið skort og tilheyrði því þeim hópi innan samfélagsins sem hafði nóg að bíta og brenna. Þetta ástand hefur svo einnig verið yfirfært á t.d. híbýli Cþví hærri, því valdameiri eru þeir sem þar búa] og stofnanir. [Af hverju annars allir þessir kirkjuturnar?] Reyndar er ekki erfitt að sjá hvaðan það tákn er runnið því ef einhver er hávaxnari en aðrir verða þeir sem í kringum hann eru að líta upp til hans og að sama skapi lítur viðkomandi niður á þá. Hafi hinn valda- mikli einstaklingur hinsvegar ekki næga líkamlega burði til að skera sig áþreifanlega úr fjöldanum hefur reynst nauðsynlegt að hlaða á hann stöðutáknum svo sem veldissprotum, höfuðbúnaði og hásæti. Einnig hefur samfélagið upp á að bjóða önnur tákn sem réttur ein- staklingur getur hlaðið utan á sig s.s. háborð, háskóla og hámenningu. Því sem stöðutákn er menningin ekki undanskilin. Fram á tuttugustu öld eru valdhafar vestrænna þjóðfélaga í meginatriðum tvennskonar. Annarsvegar hinir veraldlegu s.s. keisarar, konungar og lénsmenn þeirra (greifar, hertogar o.s.frv.J, forystumenn ríkja og eigendur umtalsverðs auðs Ct.d. náttúruauðlinda). Hinsvegar voru andlegir valdhafar sem höfðu úrskurðarvald um andleg málefni einstaklinga: Páfi, biskupar, klerkar og kirkja. Oft á tíðum er skiptingin á milli hins andlega og hins veraldlega valds býsna óljós og reyndar-ef mjög grannt er skoðað-þá snýst ásóknin í andlegt vald oftar en ekki um hið veraldlega. Þannig var t.d. háttað á íslandi í kaþólskum sið að biskupar og valdamiklir kennimenn voru það gjarnan einmitt vegna þess að þeir tilheyrðu veraldlegum valdaættum og gættu þá iðulega hagsmuna ætt- menna sinna umfram hagsmuna kirkjunnar Csem þó voru oft hinir sömu). Eins og áður sagði er hlutverk stöðutákna að sýna valda- stöðu einstaklingsins og eitt af því sem valdhaf- ar hafa notað sem stöðutákn er list. Þetta eru ekki ný sannindi en þegar fjallað er um hugtökin há- og lágmenning verður að hafa í huga hvaðan sú skipting er komin því það er langt því frá að þessi aðgreining hafi orðið til fyrir tilviljun eða á hinn bóginn að hún sé eitt- hvað náttúrulögmál. En hvernig er list notuð til þess að skipa ein- staklingum í valdaröð? Flestir ef ekki allir hafa aðgang að og neyta ýmisskonar lista svo það sem skiptir máli er að skýr aðgreining sé á milli hins háa og hins lága. Samkomulag innan hvers hóps er því grundvallaforsenda fyrir því að ákveðin Calls ekki öll) list tilheyri hinum valdameiri einstaklingum. Ef öll list væri jöfn þá missti hún að sjálfsögðu gildi sitt sem stöðutákn. Því verður að reyna með ýmsum ráðum að koma stöðu- og valdatáknunum fyrir í listinni, annaðhvort í formi hennar eða innihaldi. Þar getur listin sótt í sama brunn og aðrar birtingarmyndir valdsins. Leiðirnar sem list og listneysla geta farið eru fjölda- margar til að öðlast gildi sem stöðutákn hinna valdameiri einstaklinga þjóðfélagsins. Það er t.d. hægt að notast við dýr efni: List sem er búin til úr eða á dýr efni s.s. kálfs- skinn, gull og dýran við hefur að sjálfsögðu forskot á þá list sem búin er til á óstöðug og verðlaus efni. Stærð verksins er oft á tíðum vísbending um vald þess sem neytir verkins eða á það, samanber stórar altaristöflur og miklar freskur. Stærð myndflatarins er líka tákn um að viðkomandi eigandi sé tilbúinn að borga mikið fyrir verki- ið, ekki bara í efniskostnað heldur að híbýlin sem rúma eiga verkið séu í ákveðinu samhengi við það. Lengd tón- verka er einnig vísbending um að þeir sem neyta þeirra hafi nógan tíma til að hlusta Cþurfi þarafleiðandi ekki að eyða tímanum í venjulega vinnu) og geti borgað fyrir að fá svona löng verk samin. Áðurfyrr benti lengd bóka til að höfundurinn hefði haft nægan tíma til að semja og sá sem las hana næga fjármuni til að kaupa bókina og ekki KANNSKÍ, BRU9Í ALLTóF UppTEKÍM 'V VI9 Af) PÆ-LA J YkCKAR Ei6ín LjTÍlTjÖfcL££U ' TlLVEKU? ... MeíNA tVYDj AVBR ÆTTÍ HATA LtÍNN^TA'AHUéA ‘A fcvi, HUH... ’ 12

x

Gisp!

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.