Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1971, Side 107
105 —
1971
Rvík. 1 marsmánuði tók til starfa geðdeild barna í sambandi við
Barnaspítala Hringsins. Pláss er fyrir 10 börn og 6 til dvalar allan sól-
arhringinn.
Blönduós. Fyrirhugað er, að á næsta ári fari fram alger endurbót á
sjúkradeild Héraðshælisins.
Húsavíkur. Vorið 1964 var hafin nýbygging sjúkrahúss á Húsavík.
Er um að ræða u. þ. b. 630 m2 byggingu á þremur hæðum ásamt kjall-
ara, sem er örlítið stærri. Á annarri hæð er almenn sjúkradeild með til-
heyrandi aðstöðu fyrir 28 sjúklinga og fæðingardeild fyrir 4 konur
ásamt barnastofu og fæðingarstofu. öll starfsemi gamla sjúkrahússins
var nú flutt yfir í hið nýja hús, en nokkrar breytingar gerðar á því gamla
og það nú notað sem starfsmannabústaður. Beðið er eftir heimild til
þess að Ijúka efstu hæð hússins eða hluta hennar, þar sem væntanlega
verður sjúkradeild fyrir 35 sjúklinga. Er aukið sjúkrarými brýnt, þar
sem nýting og álag á sjúkradeildina á II. hæð er langt umfram það, sem
eðlilegt og æskilegt geti talist.
Austur-Egilsstaða. Læknamiðstöð, sem er í byggingu, fokheld í byrj-
un október.
Vestmannaeyja. Læknamiðstöð og heilsuverndarstöð fluttu í þann
hluta nýja sjúkrahússins, sem tilbúinn var.
Gerð hefur verið framkvæmdaáætlun, sem miðast við, að allt sjúkra-
húsið verði fullbúið 1973, og er heildarkostnaður áætlaður 150 millj. kr.
Selfoss. Ekki verður talið, að rekstri sjúkrahússins hafi verið eins
háttað og nauðsyn ber þó til. Eins var samvinna mjög stirð við sjúkra-
húsið, sem greinilega er rekið á alltof lausum grundvelli. I dag geta
læknar og starfslið sjúkrahússins næstum sjálft ákveðið, hvað tilheyrir
þeirra verksviði og hvað ekki, sem að sjálfsögðu býður heim vandræðum
og misklíð.
Keflavíkur. Aðsókn að Sjúkrahúsi Keflavíkur hefur verið svo mikil
allt árið, að til stórra vandræða horfir. Fullkomin röntgenþjónusta er nú
við sjúkrahúsið undir stjórn og yfirumsjón röntgensérfræðings.
Rannsóknarstofa Háskólans.
Yfirlit yfir rannsóknir.
Berklaveiki :
Jákv. Neikv. Alls
Hrákar, smásjárskoðun 16 898 914
Ræktun úr hráka 1565 1624
— - magaskoli 9 74 83
— - þvagi 717 732
— - brjóstholsvökva 65 65
— - lunga 12 14
— - lungnapípu 58 60
14