Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1987, Blaðsíða 7
I. ÁRFERÐI
1986
Tíðarfar var lengst af talið gott. Loftvægi var 2,6 mb undir meðallagi. Hiti var 0,7° undir
meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á flestum stöðvum á Austur- og Suðurlandi, við
Eyjafjörð og við sjó fram í Þingeyjarsýslum, en undir meðallagi á flestum öðrum stöðvum.
Sólskinsstundir voru 13-14% umfram meðallag 1971-80 á Reykhólum og Hveravöllum. f
Reykjavík, á Akureyri, Hollormsstað, Hólum og Sámsstöðum voru þær 100-110% af
meðaltalinu. Á Höskuldamesi vantaði 6% upp á meðaltalið 1971-80.
Veturinn (desember 1985 - mars 1986) var góður, en þó talið umhleypingasamt í mars.
Lengst af var snjólétL Hiti var 0,3° undir meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á flestum
stöðvum norðaustantil á landinu og á nokkrum stöðvum suðvestanlands, en annars undir
meðallagi.
Vorið (apríl - maí) var allgott framanaf en gróðri fór lítið fram í maí. Hiti var 0,7° undir
meðallagi. Úrkoma var yfir meðallagi um allt austanvert landið frá Eyjafirði og suður í Öræfi
nema á Grímsstöðum. Hún var undir meðallagi frá Síðu til Skagafjarðar að undanskildum hluta
af Vestfjörðum.
Sumarið (júní - september) var gott og heyskapur gekk vel. Hiti var 0,6° undir meðallagi.
Úrkoma var minni en í meðalári nema á 5 stöðvum í uppsveitum á Suðurlandsundirlendi, 2
stöðvum í innsveitum á Norðvesturlandi og á Hvallátrum.
Haustið (október - nóvember) var kalt og vetur lagðist snemma að. Hiti var 1,9° undir
meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á Austfjörðum og Suðausturlandi, í uppsveitum á
Suðurlandsundirlendi og á flestum stöðvum á Norðurlandi og norðantil á Vestfjörðum. Á
Héraði og Fjöllum var úrkoma minni en í meðalári og einnig víðast hvar á Vesturlandi.
1987
Tíðarfar var gott. Loftvægi var 2,0 mb yfir meðallagi. Hiti var 0,6° yfir meðallagi. Úrkoma
var víðast undir meðallagi. Hún var mest að tiltölu á Norðausturlandi en minnst í Skagafirði, á
Ströndum og í innsveitum vestanlands. Sólskinsstundir voru mjög nálægt meðallagi áranna
1971-80. Flestarað tiltölu, 2% umfram meðallagið, á Hveravöllum, en fæstar, 94% af
meðaltali, á Hallormsstað.
Veturinn (desember 1986 - mars 1987) var talinn rysjóttur og fremur kaldur til áramóta, en
síðan var ágætt tíðarfar, snjólítið og hlýtt fram um miðjan mars, en þá kólnaði. Hitinn var 0,6°
yfir meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á Suðurlandi og á Héraði og á 6 stöðvum annars
staðar á landin var hún í meðallagi eða yfir því, en annars undir meðallagi.
Vorið (apríl - maí). Tíðarfar var allgott. Fyrstu dagana var talsverður snjór norðanlands og
um mánaðamótin apríl-maí snjóaði suðvestanlands. Gróðri fór yfirleitt vel fram, en þó töfðu
þurrkar nokkuð norðaustan- og austanlands. Hiti var 0,9° yfir meðallagi. Úrkoma var lítil á
Norðaustur- og Austurlandi, nema á Raufarhöfn. Á nokkrum stöðvum var hún aðeins um 1/5 af
meðalúrkomu. Á Suðurlandi, við Faxaflóa, á Snæfellsnesi og víðast á Vestfjörðum, var úrkoma
meiri en í meðalári, og einnig á 2 stöðvum á Norðurlandi.
Sumarið (júní - september) var gott en þurrkar þó lélegir í júlí. Grös spruttu vel og
garðávextir og ber fádæma vel. Hiti var 0,1° undir meðallagi. Úrkoma var minni en í meðalári
um mest allt landið. Á Austurlandi og ffá Axarfirði til Eyjafjarðar var hún þó yfir meðallagi og
einnig komst úrkoma í og yfir meðallag á 2 stöðvum á Vestfjörðum.
Haustið (október - nóvember) var hagstætt, nema október norðantil á landinu. Hiti var 0,1°
undir meðallagi. Úrkoma var minni en í meðalári um meginhluta landsins, aðeins á
Norðausturlandi og vestast á Vestfjarðakjálkanum var hún yfir meðallagi. 1)
1) Tekið upp úr Veðráttan, ársyfirliti sömdu afVeðurstofu íslands.
5