Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1987, Page 7

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1987, Page 7
I. ÁRFERÐI 1986 Tíðarfar var lengst af talið gott. Loftvægi var 2,6 mb undir meðallagi. Hiti var 0,7° undir meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á flestum stöðvum á Austur- og Suðurlandi, við Eyjafjörð og við sjó fram í Þingeyjarsýslum, en undir meðallagi á flestum öðrum stöðvum. Sólskinsstundir voru 13-14% umfram meðallag 1971-80 á Reykhólum og Hveravöllum. f Reykjavík, á Akureyri, Hollormsstað, Hólum og Sámsstöðum voru þær 100-110% af meðaltalinu. Á Höskuldamesi vantaði 6% upp á meðaltalið 1971-80. Veturinn (desember 1985 - mars 1986) var góður, en þó talið umhleypingasamt í mars. Lengst af var snjólétL Hiti var 0,3° undir meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á flestum stöðvum norðaustantil á landinu og á nokkrum stöðvum suðvestanlands, en annars undir meðallagi. Vorið (apríl - maí) var allgott framanaf en gróðri fór lítið fram í maí. Hiti var 0,7° undir meðallagi. Úrkoma var yfir meðallagi um allt austanvert landið frá Eyjafirði og suður í Öræfi nema á Grímsstöðum. Hún var undir meðallagi frá Síðu til Skagafjarðar að undanskildum hluta af Vestfjörðum. Sumarið (júní - september) var gott og heyskapur gekk vel. Hiti var 0,6° undir meðallagi. Úrkoma var minni en í meðalári nema á 5 stöðvum í uppsveitum á Suðurlandsundirlendi, 2 stöðvum í innsveitum á Norðvesturlandi og á Hvallátrum. Haustið (október - nóvember) var kalt og vetur lagðist snemma að. Hiti var 1,9° undir meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á Austfjörðum og Suðausturlandi, í uppsveitum á Suðurlandsundirlendi og á flestum stöðvum á Norðurlandi og norðantil á Vestfjörðum. Á Héraði og Fjöllum var úrkoma minni en í meðalári og einnig víðast hvar á Vesturlandi. 1987 Tíðarfar var gott. Loftvægi var 2,0 mb yfir meðallagi. Hiti var 0,6° yfir meðallagi. Úrkoma var víðast undir meðallagi. Hún var mest að tiltölu á Norðausturlandi en minnst í Skagafirði, á Ströndum og í innsveitum vestanlands. Sólskinsstundir voru mjög nálægt meðallagi áranna 1971-80. Flestarað tiltölu, 2% umfram meðallagið, á Hveravöllum, en fæstar, 94% af meðaltali, á Hallormsstað. Veturinn (desember 1986 - mars 1987) var talinn rysjóttur og fremur kaldur til áramóta, en síðan var ágætt tíðarfar, snjólítið og hlýtt fram um miðjan mars, en þá kólnaði. Hitinn var 0,6° yfir meðallagi. Úrkoma var meiri en í meðalári á Suðurlandi og á Héraði og á 6 stöðvum annars staðar á landin var hún í meðallagi eða yfir því, en annars undir meðallagi. Vorið (apríl - maí). Tíðarfar var allgott. Fyrstu dagana var talsverður snjór norðanlands og um mánaðamótin apríl-maí snjóaði suðvestanlands. Gróðri fór yfirleitt vel fram, en þó töfðu þurrkar nokkuð norðaustan- og austanlands. Hiti var 0,9° yfir meðallagi. Úrkoma var lítil á Norðaustur- og Austurlandi, nema á Raufarhöfn. Á nokkrum stöðvum var hún aðeins um 1/5 af meðalúrkomu. Á Suðurlandi, við Faxaflóa, á Snæfellsnesi og víðast á Vestfjörðum, var úrkoma meiri en í meðalári, og einnig á 2 stöðvum á Norðurlandi. Sumarið (júní - september) var gott en þurrkar þó lélegir í júlí. Grös spruttu vel og garðávextir og ber fádæma vel. Hiti var 0,1° undir meðallagi. Úrkoma var minni en í meðalári um mest allt landið. Á Austurlandi og ffá Axarfirði til Eyjafjarðar var hún þó yfir meðallagi og einnig komst úrkoma í og yfir meðallag á 2 stöðvum á Vestfjörðum. Haustið (október - nóvember) var hagstætt, nema október norðantil á landinu. Hiti var 0,1° undir meðallagi. Úrkoma var minni en í meðalári um meginhluta landsins, aðeins á Norðausturlandi og vestast á Vestfjarðakjálkanum var hún yfir meðallagi. 1) 1) Tekið upp úr Veðráttan, ársyfirliti sömdu afVeðurstofu íslands. 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.