Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1987, Blaðsíða 111
Skýrsla eiturefnanefndar
1987
Haldnir voru 18 fundir í eiturefnanefnd. Nefndin gekkst fyrir námskeiði um
meindýraeyðingu í samráði við Hollustuvemd ríkisins dagana 24.-26. mars.
Föst verkefni
Fjallað var um 61 umsókn um leyfisskírteini (blá) til þess að mega kaupa og nota efni og
efnasamsetningar í X og A hættuflokkum. Mælt var með öllum umsóknum (44 frá
garðyrkjumönnum eða garðyrkjubændum, 8 frá meindýraeyðum, 4 frá skógræktarmönnum
og 5 frá öðmm). Fjallað var um 18 umsóknir um leyfísskírteini (gul) til þess að mega kaupa
og nota efiii og efnasamsetningar í A hættuflokki. Var synjað um meðmæli í einu tilviki. Mælt
var með veitingu leyfis til 3 ára í 16 tilvikum (langflest bændur, er stunda matjurtarækt), en í
einu tilviki til 2 ára. Mælt var með öllum umsóknum, 8 að tölu, um leyfisskírteini (rauð) til
þess að mega kaupa og nota tiltekin eiturefni á listum I og II. Mælt var með leyfisveitingu til 3
ára í 7 tilvikum, en til eins árs í einu tilviki. Fjallað var um 9 umsóknir um leyfisskírteini
(rauð) til þess að mega kaupa og nota fenemal og tríbrómetanól til útrýmingar á svartbaki og
hrafni (6 frá umráðamönnum æðavarps, 3 frá trúnaðarmönnum veiðistjóra). Var mælt með
leyfisveitingu til 3 ára í 8 tilvikum, en til eins árs í einu tilviki. Á árinu bárust til umsagnar alls
4 eiturbeiðnir um að mega kaupa takmarkað magn eiturefna á listum I og II. Var mælt með 3
eiturbeiðnum, einni synjað. Frá Vinnueftirliti ríkisins bárust til umsagnar alls 4 umsóknir um
innflutning á asbesti, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 74/1983. Mælt var með innflutningi í öllum
tilvikum. Tvö apótek fengu endumýjað leyfi sitt til sölu á efnum og efnasamsetningum í B
hættuflokki. Baldur Tumason, læknir, Hólmavík, fékk leyfi til sölu á efnum og
efnasamsetningum í B hættuflokki til eins árs. Auk þess fékk Sölufélag garðyrkjumanna
endumýjað söluleyfi sitt til 5 ára (til 1.4.1992). Farið var yfir sölubækur fyrirtækja, er selja
færsluskyld efni og efnasamsetningar, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 455/1975 og síðar
238/1986. Alls bárust 6 mál frá Hollustuvemd ríkisins með beiðni um umsögn um flát og
merkingar. Nefndin afgreiddi samtals 16 umsóknir um skáningu efna og efnasamsetninga í
X, A, B og C hættuflokkum. Mælt var með skráningu 7 samsetninga til nota í landbúnaði og
garðyrkju og til útrýmingar meindýra (3 plöntulyf, 1 plöntulyf, og útrýmingarefni, 2
útrýmingarefni og 1 stýriefni), en synjað að veita meðmæli með 9 umsóknum.
Ýmis mál
Eiturefnanefnd hefur lengi talið nauðsyn bera til þess að setja reglugerð um skráningu og mat
á sótthreinsiefnum og leitað eftir fúlltingi Hollustuvemdar ríkisins til þess. Var heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu sent bréf um málið. Lyfjaeftirliti ríkisins var bent á, að breyta
þyrfti merkingum á flátum undir tjöru, þar eð í tjöm em ýmis krabbameinsvaldandi eftú eða
hjákrabbameinsvaldar (cocarcinogen). Haldið var áfram mælingum á fótóoxídöntum (mælt
sem ózón) í grennd við Reykjavík. Ánnaðist Hörður Þormar þessar mælingar á vegum
eiturefnanefndar. Fjallað var um notkun lindans til böðunar sauðfjár gegn kláðamaur. Var
skoðun nefndarinnar sú, að lindan hefði ýmsa góða kosti, er réttlætir notkun þess til böðunar
sauðfjár. Eiturefnanefnd fjallaði í upphafi árs um drög að nýjum lögum um eiturefni og
hættuleg efni og sendi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti álit sitt að þessu lútandi.
Nefndin sendi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu drög að nýrri reglugerð um flokkun
eiturefna og hættulegra efna. Fjallað var um beiðni Sápugerðarinnar Friggjar um notkun
klórhexidíns til sótthreinsunar. Fjallað var um þingsályktunartillögu um takmöricun á notkim
freonefna að beiðni flytjanda tillögunnar. Lagt var til við heilbrigðis- og
109