Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1987, Page 175

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1987, Page 175
Litningarannsóknir á íslandi Jóhann Heiöar Jóhannsson, sérfræðingur í líffærameinafræöi og barnameinafræöi Litningarannsóknir á íslandi eiga 20 ára afmæli um þessar mundir, en þær hófust að áliðnu sumri 1967. Fyrstu tvö blóðsýnin til litningarannsókna bárust þann 8. sept. 1967. Bæði sýnin voru frá ungum bömum. Annað bamanna var með útlitseinkenni sem benui til mongólisma og rannsóknin sýndi litningagerð 47,XY,+21 eða þrístæðu 21 (trisomy 21). Rannsóknastofa erfðafræðinefndar Háskóla íslands annaðist þessar rannsóknir fyrstu árin í samvinnu við Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði (1,2), en ffá ársbyrjun 1976 hafa litningarannsóknir verið reknar af Rannsóknastofu Háskólans (3). í fyrstu var megináhersla lögð á það að leita að einstaklingum með Down’s syndrome og rannsaka litningagerð þeirra, en jafnframt var veitt almenn þjónusta við lækna og sjúkrahús varðandi rannsóknir á einstaklingum með vanskapnað og/eða vangefni (2). Frá því að rannsóknarverkefni erfðafræðinefndar vegna Down’s syndrome lauk, hefur verið veitt öll almenn þjónusta í litningarannsóknum, en þær em einkum gerðar vegna vangefni, vanskapnaðar, síðbúins kynþroska, ófrjósemi, endurtekinna fósturláta og vissra erfðasjúkdóma. Þá er litningarannsókn á beinmergsfmmum orðin mikilvægur liður í rannsókn hjá sjúklingum með hvítblæði Legástungur til fósturgreininga hófust hér á landi árið 1973. Legvatnssýnin vom í fyrstu send til Danmerkur og þar vom gerðar þær rannsóknir, sem þurfa þótti. Fyrstu árin vom sýnin fá, en brátt varð ljóst að koma þyrfti á fót aðstöðu hérlendis til að sinna fósturgreiningum. Alfa- fósturprótín (AFP) í legvökva hefur verið mælt á Rannsóknastofu Landspítalans í meinefnafræði frá árslokum 1977 (3), en AFP er fyrst og fremst notað til að greina klofnings- galla í miðtaugakerfi (neural tube defects). Litningarannsóknir á legvatnsfmmum hófust hér á landi í júlí 1978, en undirbúningur hafði þá staðið í rúmlega eitt ár. Á árinu 1988 verða því liðin 10 ár frá því að skipuleg leit að litnin- gagöllum hjá fóstri í meðgöngu hófst hér á íslandi. Fyrstu 13 mánuðina vom gerðar 204 litningarannsóknir og litningagallar vom greindir hjá 5 fóstmm, eða í 2,5% rannsóknanna (4). Sérfræðingar Kvennadeildar Landspítalans hafa annast legástungur, og formleg erfðaráðgjöf fyrir verðandi foreldra hefur verið veitt á göngudeild Kvennadeildar frá því í janúar 1982. Legvatnsrannsókn til fósturgreiningar á meðgöngutíma hefur staðið til boða þeim konum, sem em í sérstökum áhættuhópum hvað varðar litningagalla, klofningsgalla í miðtaugakerfí og vissa efnaskiptagalla hjá fóstri (5). Undanfarin ár hafa verið gerðar að meðaltali um 300 litningarannsóknir á legvatnsfrumum á ári (6). Gert hefur verið ráð fyrir að 400 le- gvamsrannsóknir þurfi að gera á hverju ári til þess að allar konur í áhættuhópunum séu rannsakaðar. Á árinu 1983 hófst hérlendis undirbúningur að fylgjuvefsrannsóknum (chorionic villus biopsy) hjá þunguðum konum. Fylgjuvef má nota til greiningar á fósturgöllum á líkan hátt og legvamsfrumur, en fylgjuvefssýni er hægt að taka mun fyrr á meðgöngutíma en legvatnssýni, eða við 8-12 vikna meðgöngulengd. Á fylgjuvef er hægt að gera samskonar rannsóknir og á fósturfmmum, eða liminga-, efnaskipta- og erfðarannsóknir eins og ástæða er til hverju sinni. Fyrsta fylgjuvefssýnið til fósturgreiningar var tekið í ágúst 1984. Litningarannsókn tókst ekki. Eftir það var unnið að því að endurbæta aðferðir við sýnistöku og úrvinnslu og næsta sýni til sjúkdómsgreiningar var tekið í júní 1985. Þá tókst litningarannsókn vel. Síðan hafa fleiri sýni verið tekin, ýmst til að greina limingagalla eða þekkta erfðasjúkdóma. Enn hefur ekki verið ákveðið formlega hverjar verða ábendingar til fylgjuvefsrannsókna. 173
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.