Bæjarins besta - 11.06.1997, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997
Pantanasíminn
er 456 3367
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
HAFNARSTRÆTI 1 • ÍSAFIRÐI • % 456 3940 & 456 3244 • o 456 4547
Fasteignaviðskipti
Fasteignir í þessari auglýsingu eru aðeins
sýnishorn af söluskrá skrifstofunnar. Allar frekari
upplýsingar varðandi söluskrá fasteigna eru veittar
á skrifstofunni að Hafnarstræti 1, 3. hæð.
Bolungarvík
Hlíðarstræti 7: 110m² einbýlishús á
einni hæð ásamt háalofti og tvö-
földum bílskúr. Verð: 7.600.000,-
Holtastígur 22: Einbýlishús á einni
hæð með bílskúr. Húsið er laust.
Verð: 6.500.000,-
Heiðarbrún 4: 140m² einbýlishús á
einni hæð ásamt bílskúr. Verð
8.900.000,-
Skólastígur 21: 3ja herbergja íbúð á
neðri hæð í fjórbýlishúsi. Verð
3.800.000,-
Hafnargata 124: 85m² einbýlishús
einangrað og klætt á einni hæð ásamt
kjallara og bílskúr. Verð: 2.500.000,-
Hólsvegur 7: Einbýlishús á tveimur
hæðum. Tilboð óskast.
Ljósaland 4: 291m² einbýlishús á
fjórum pöllum ásamt bílskúr. Tilboð
óskast.
Stigahlíð 4: 64m² 3ja herbergja íbúð
á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Mikið uppgert.
Verð: 3.000.000,-
Traðarland 12: 140m² einbýlishús á
einni hæð ásamt bílskúr. Tilboð
óskast.
Vitastígur 17: 105m² 4ra herbergja
íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi. Verð
4.500.000,-
Þuríðarbraut 9: 127m² einbýlishús á
einni hæð ásamt 60m² bílskúr. Verð:
6.900.000,-
Þjóðólfsvegur 14: Einstaklingsíbúð
á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Tilboð óskast.
hæð tvíbýlishúsi ásamt 35m² bílskúr.
Mögulegt að taka bíl uppí. Verð:
5.400.000,-
Pólgata 6: 55m² risíbúð á 3. hæð,
suðurenda í fjölbýlishúsi. Mikið
endurnýjuð. Verð: 3.900.000,-
Seljalandsvegur 67: 107m² íbúð á
neðri hæð í tvíbýli. Verð: 6.000.000,-
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 1. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Verð:
5.100.000,-
Stórholt 7: 74,6 m² íbúð á 3. hæð
fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Verð:
4.900.000,-
Stórholt 9: 74,6m² íbúð á 1. hæð fyrir
miðju í fjölbýlishúsi. Verð: 5.300.000,-
Stórholt 11: 80m² 3ja herbergja íbúð
á 3 hæð í fjölbýlishúsi. Verð:
6.000.000,-
Stórholt 11: 80 m² 3ja herbergja
íbúð á 2 hæð í fjölbýlishúsi ásamt
innbyggðum bílskúr. Verð: 6.900.000,-
Stórholt 11: 72,6m² 3ja herbergja
íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Verð:
4.500.000,-
2ja herbergja íbúðir
Hlíf II: 50,4m² íbúð á 2. hæð í
Dvalarheimili aldraðra Verð:
6.100.000,-
Hlíf II: 50,4 m² íbúð á 4. hæð
í Dvalarheimili aldraðra. Verð:
5.900.000,-
Sundstræti 24: 69m² íbúð á jarðhæð
í þríbýlishúsi. Íbúðin er mikið upp-
gerð. Verð: 5.200.000,-
þremur hæðum. Verð: 9.500.000,-
Hlíðarvegur 43: 186m² raðhús á
þremur hæðum ásamt bílskúr. Verð
10.200.000,-
Hlíðarvegur 48: 146,4m² einbýlishús
á þremur pöllum, mjög fallegt útsýni.
Verð: 7.000.000,-
Miðtún 31: 190m² endaraðhús í
norðurenda á tveimur hæðum. Tilboð
óskast.
Silfurgata 9: 150m² einbýlishús, 4ra
herbergja á tveimur hæðum, ásamt
garði, kjallara og geymsluskúr.
Tilboð óskast.
Skipagata 11: 78 m² einbýlishús á
tveimur hæðum. Húsið er laust strax.
Tilboð óskast.
Stakkanes 4: 144 m² raðhús á 2
hæðum ásamt bílskúr og sólstofu.
Einbýlishús / raðhús
Brautarholt 12: 161,2m² einbýlishús
á einni hæð ásamt 56m² bílskúr. Verð:
11.300.000,-
Dalbraut 13: 120,7m² einbýlishús á
einni hæð ásamt bílskúr. Verð:
9.500.000,-
Hafraholt 14: 144,4m² raðhús á
tveimur hæðum, ásamt bílskúr. Verð:
9.500.000,-
Heiðarbraut 6: 133,3m² einbýlishús
á einni hæðásamt bílskúr. Verð:
10.700.000,-
Hliðarvegur 26a: 120m² einbýlishús
á tveimur hæðum ásamt kjallara.
Verð: 6.700.000,-
Hlíðarvegur 38: 183,2m² raðhús á
Sundstræti 11: 74m² einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt kjallara. Verð: 3.400.000,-
2 hæð í þríbýlishúsi ásamt litlum
bílskúr. Verð: 5.500.000,-
Seljalandsvegur 20: 161,2m² 5-6
herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt stórum bílskúr. Mjög fallegt
útsýni. Verð: 10.700.000,-
Seljalandsvegur 20: 125,2m² 4ra
herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli.
Verð: 7.900.000,-
Sólgata 5: 102m² 6 herbergja íbúð á
tveimur hæðum í norðurenda í tvíbýl-
ishúsi. Verð: 5.000.000,-
Stórholt 7: 116m² 4ra herbergja íbúð
á 3. hæð. t.h. í fjölbýlishúsi. Verð
7.400.000,-
Stórholt 11: 103m² 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi ásamt
bílageymslu. Íbúðin er laus fljótlega.
Verð: 7.800,000,-
Túngata 12: 98,9m² 4ra herbergja
íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi. Mikið
uppgerð. Verð: 6.700.000,-
Túngata 21: 77,5m² 4ra herbergja
risíbúð í þríbýlishúsi. Verð: 5.600.000,-
Urðarvegur 25 - Hraunprýði: 155m²
5-6 herbergja íbúð á 2 hæðum að
hluta í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr. Skipti
á ódýrari eign möguleg. Tilboð
óskast.
3ja herbergja íbúðir
Hjallavegur 12: 113,9m² 3ja - 4ra
herbergja íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi.
Verð: 5.500.000,-
Hlíðarvegur 27: 76m² íbúð á efri
Skipti möguleg á Eyrinni. Verð:
9.900.000,-
Stakkanes 6: 144 m² raðhús á
tveimur hæðum ásamt bílskúr og
sólstofu. Skipti minni eign möguleg.
Verð: 10.900.000,-
Tangagata 6a: 99,7m² einbýlishús á
tveimur hæðum ásamt litlum kjallara.
Verð: 6.800.000,-
Urðarvegur 26: 236,9m² raðhús á
tveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Verð: 11.800.000,-
Urðarvegur 58: 209m² raðhús á
þremur pöllum ásamt innbyggðum
bílskúr. Verð: 12.500.000,-
4-6 herbergja íbúðir
Engjavegur 21: 132,2m² 4-5 her-
bergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi
ásamt kjallara. Verð: 8.500.000,-
Engjavegur 31: 92,1m² 4ra her-
bergja íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Mikið uppgerð. Skipti á stærri eign
möguleg. Verð: 5.900.000,-
Fjarðarstræti 4: 120m² 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð í fjöbýlishúsi. Verð kr.
6.500.000,-
Fjarðarstræti 14: 191m² 4ja her-
bergja íbúð á neðri hæðí tvíbýlishúsi
ásamt kjallara. Verð: 6.200.000,-
Fjarðarstræti 38: 130m² 5 herbergja
íbúð á 2 hæðum í þríbýlishúsi. Hag-
stæð lán fylgja. Verð: 7.000.000,-
Pólgata 4: 136 m² 5 herbergja íbúð á
Fjarðarstræti 13: 80m² íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi, tvö
aukaherbergi í risi og kjallara. Verð 5.700.000,-
Urðarvegur 80: 82m² íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi
ásamt sér geymslu. Verð 6.800.000,-
Atvinnuvegasýning
Vestfjarða sem haldin var
um helgina í íþróttahúsinu
á Torfnesi á Ísafirði, tókst
mjög vel að mati Elsu
Guðmundsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða
og telst henni til að um
5000 gestir hafi sótt hana.
Hún sagði í samtali við
blaðið, að þátttakendur
og sýningargestir hefðu
verið mjög ánægðir með
þá miklu fjölbreytni í
vestfirsku atvinnulífi sem
svo bersýnilega kom í ljós
á sýningunni. Elsa sagðist
hafa saknað sjávarút-
vegsfyrirtækjanna á
sýningunni, en þau hafi í
sjálfu sér verið löglega
afsökuð vegna verk-
fallsins. Þau yrðu vafa-
laust með að ári ásamt
fyrirtækjum sem ekki sáu
sér fært að vera með
núna.
Markmiðinu var náð
Elsa telur að markmið-
inu með sýningunni hafi
verið náð, en það hafi
fyrst og fremst verið að
koma saman fyrirtækjum
til að sýna Vestfirðingum
sjálfum hversu fjölbreytt
atvinnulíf þrífst í fjórð-
ungnum. Aðspurð sagðist
hún hafa orðið fyrir
töluverðum vonbrigðum
með áhugaleysi stóru
fjölmiðlanna á sýningunni.
Þeir einbeittu sér greini-
lega um of að neikvæð-
um þáttum og skelltu
skollaeyrum við því sem
jákvætt væri. Hún vildi þó
undanskilja Ríkisútvarpið
sem hún sagði hafa verið
til fyrirmyndar í umfjöllun
sinni um sýninguna.
Svæðisútvarp Vestfjarða
hafi reyndar verið með
kynningarbás á sýning-
unni og starfsmenn þess
staðið fyrir útsendingum
þaðan sýningardagana,
sem vakið hafi mikla
athygli.
Elsa sagðist vona að
sýningin yrði þáttur í því
að efla sjálfsímynd
Vestfirðinga. Við erum
ekki bara barlómur og
væl. Við erum atorkusöm,
fjölbreytt og metnaðar-
full, sagði Elsa sem sagði
að stefnt yrði á að hafa
sýningu aftur að ári. Hún
gerir ráð fyrir að öll
fyrirtækin sem voru með
núna verði með þá, auk
þeirra sem nú naga sig í
handabökin yfir að hafa
ekki verið með. Aðspurð
um hvort ætlunin væri að
fara víðar með sýninguna
sagði Elsa:
Við erum svona rétt að
ná áttum en við munum
koma til með að setjast
niður og skoða hvað kom
út úr þessu. Það er inn í
umræðunni þótt ekki hafi
verið tekin ákvörðun enn
um slíkt. Ef um það
verður að ræða að fara
með sýninguna annað þá
verðum við að fjármagna
það sérstaklega. Þessi
sýning var erfið fjárhags-
lega og stóð ekki undir
sér og kannski vegna
þess að við vildum setja
hana eins vel fram og
kostur var. Vegna þess
hve viðbrögð hafa verið
jákvæð þá eru allir
möguleikar opnir og verða
skoðaðir vandlega. Þessi
umræða um að fara með
sýninguna suður sýnir það
stolt sem býr í okkur. Við
erum stolt yfir þeirri atorku
og fjölbreytni sem við
höfum yfir að búa.
Vestfirðingar
standa uppréttir
Sigurður Atlason var
einn af þeim aðilum sem
sáu um kynningarbás
Strandamanna á Atvinnu-
vegasýningunni, en hann
var mjög ánægður með
aðstöðuna og aðsóknina.
Strandasýslubásinn var sá
eini af Ströndum að sögn
Sigurðar en hann sagði
tilganginn með þátttöku á
sýningunni vera að kynna
ferðaþjónustu á Ströndum
sem hefur upp á mjög
margt að bjóða fyrir hinn
almenna ferðamann.
Hann sagði að mikið hefði
verið að gera og að ekki
hefði hafst undan við að
miðla upplýsingum til
áhugasamra sýningar-
gesta. Aðspurður um
hvað honum þætti
merkilegast á sýningunni
sagði Sigurður:
Persónulega finnst mér
Póls hf. vera merkilegast
og það er stórkostlegt
hvað þetta vestfirska
fyrirtæki er að gera. Það
flytur út vörur sínar um
allan heim og þetta vekur
einhvern veginn upp í
manni þjóðarstoltið.
Hann kvað ánægjulegt að
sjá hvað mikill áhugi
almennings væri á
vestfirskum fyrirtækjum
og sagðist sannfærður
um að sýningin myndi
auka sjálfstraust atvinnu-
rekenda og fólks á Vest-
fjörðum sem væri að
reyna að vera skapandi.
Hér eru engin fisk-
vinnslufyrirtæki, m.a.
vegna verkfallsins sem nú
er leyst sem betur fer og
þess vegna kemur á óvart
hvað mikil gróska er í
öðru en fiskvinnslu. Þetta
sýnir okkur að við höfum
ýmislegt annað en fisk og
ég verð mjög mikið var
við ánægju fólks sem er
að uppgötva þá stað-
reynd hér á sýningunni.
Ég tel að forsvarsmenn
sýningarinnar ættu að
athuga vel þann mögu-
leika að fara með hana
víðar, t.d. í Perluna í
Reykjavík. Það myndi
styrkja okkur Vestfirðinga
gífurlega ef við færum
með þessa sýningu suður
því það myndi sýna að við
erum ekki bara í einhverju
voli og væli. Við höfum
orðið fyrir miklum áföllum
en stöndum upprétt eins
og sýningin gefur svo
sterklega til kynna, sagði
Sigurður að lokum.
Atvinnuvegasýning
Vestfjarða
Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
félags Vestfjarða.
Sigurður Atlason kynnti ferðaþjónustu í Strandasýslu fyrir
sýningargestum.
Fimm þúsund
gestir kynntu
sér fjölbreytt
atvinnulíf