Bæjarins besta


Bæjarins besta - 11.06.1997, Page 5

Bæjarins besta - 11.06.1997, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 1997 5 Gunnar Þórðarson skrifar frá Mexíkó Verkalýðsforystan er að stórskaða samfélagið Eftir á annan mánuð í verk- falli er það þyngra en tárum tekur að fylgjast með atburðum í heimabæ mínum, Ísafirði, þessa dagana. Héðan úr fjar- lægðinni virðist þetta allt enn undarlegra en úr nálægðinni, en eflaust séð í öðru ljósi. Þegar ég las viðtöl við fólk á förnum vegi í Morgunblaðinu á laugar- daginn var, var mér öllum lokið. Eru menn gengnir af göflunum? Halda menn að þetta hafi eitthvað með Reykja- vík eða Reykvíkinga að gera? ,,Reykjavíkurvaldið”- ,,reikni- meistarana að sunnan”. Hvað vakir fyrir mönnum að koma svona kreddum inn í kollinn á fólki. Þetta snýst auðvitað ekkert um höfuðborgina, né þá sem þar búa. Það getur verið ágætt fyrir suma að búa til óvin sem hægt er að kenna um alla skapaða hluti, en í þessu máli bera heimamenn alla ábyrgð. Verkalýðsforystan er að stór- skaða samfélagið og notar til þess jafn ómerkilegan áróður og áður er getið. Ég vona að þetta verið til þess að nauðsyn- leg lög verði sett á verkalýðs- félögin, eins og Tatcher gerði í Bretlandi hér um árið. Einka- réttur þeirra verði afnumin og allir geti stofnað stéttarfélög að uppfylltum skynsamlegum skilyrðum. Hvers vegna þarf verkalýðsforystan að njóta slíkrar einokunar og verndar sem forgangur til atvinnu fyrir félagsmenn er? Ég skil að þeir vilji halda í þetta úrelta kerfi en ekki löggjafann að taka ekki á því. Ef starfsmenn hjá fyrir- tæki vilja stofna stéttarfélag, þá á það að vera þeim frjálst. Þeir semja síðan við fyrirtækið um laun og sleppa við allan þann kostnað sem felst í rekstri þessara úreltu fyrirbæra sem verkalýðsfélögin eru orðin í dag. Þau eru fyrir löngu hætt að snúast um launafólk, heldur um að viðhalda sjálfum sér. Að sefja lýðinn með skrumi Ég starfaði í Kanada fyrir nokkrum árum, fyrir fyrirtæki sem hugðist reisa rækjuverk- smiðju og starfrækja hana. Til stóð að reisa verksmiðjuna í Trepassey á Nýfundnalandi. Þar hafði eina fyrirtækið í þess- um 5000 manna bæ, lokað fimm árum áður. Ríkið hafði gefið samfélaginu sjóð upp á sex milljónir dollara og auð- vitað haldið öllu fólkinu á atvinnuleysisbótum allan tím- ann. Hluti af samkomulaginu við kanadíska ríkið var að halda verkalýðsfélaginu uppi fjár- hagslega. Í stuttu máli sagt, þá reyndist ómögulegt að reisa verksmiðjuna þarna vegna andstöðu verkalýðsfélagsins. Þeir höfðu á sínum tíma orðið til þess að fyrirtækið á staðnum lokaði og nú komu þeir í veg fyrir að aðrir settu upp atvinnu- starfsemi. Það var ekki með hag verkafólks í huga, heldur hagsmuni félagsins. Ég tala sem fyrrverandi verkalýðsformaður og stjórnar- maður í A.S.V. og skil því betur en margir annar hvað um er að ræða. Það er hægt að sefja lýðinn með skrumi eins og áður er bent á, og viðhalda vitleysu mér er þetta hin augljósa aðferð til að bæta hag allra aðila. Það eru einföld sannindi að það er ekki hægt að reka fyrirtæki vel án þess að hafa starfsmenn ánægða. Þannig gengur ekki að kúga verkamenn, né aðra starfsmenn, ef þeir eiga að skila góðu starfi og það þarf ekki verkalýðsfélög í núverandi mynd til að gæta þess. Annað sem er mjög athug- andi fyrir verkamenn en það er að 0,75% af nettó tekjum þeirra fara í að fóðra þessi einokun- arfélög. Enda eru flest öll verkalýðsfélög í landinu orðin stórrík og þau stærstu með meiri hagnað en velflest stærstu og best reknu fyrirtæki lands- ins. Sjúkra- og orlofssjóður sem atvinnurekendur og verka- lýðsfélög misnota með þegj- andi samkomulagi, er auðvitað ekkert annað en hluti af launum starfsmanna, sem þeir hafa ekkert um að segja. Þarna er ein smuga til að hækka laun verkamanna, þ.e.a.s. að færa þennan hluta launa þeirra til þeirra sjálfra. Ég stóð sjálfur fyrir verkfalli sem verkalýðsformaður hér um árið en vil líta á það sem bernskubrek í dag. Ég þekki þetta því betur en margur annar og svíður því tilgangsleysið og tortímingin sem á sér stað í heimabæ mínum, Ísafirði. Tónninn sem ég heyri frá fólki að heiman er allur á sömu lund, örvænting og uppgjöf. Ég vil kalla þá til ábyrgðar sem að þessu standa. Mexíkó 2. júní 1997, Gunnar Þórðarson. Gunnar Þórðarson. sem aðeins er til niðurrifs. Það veit það hver sem vill vita að málefni verkafólks á Ísafirði snúast ekki um hundrað þúsund króna mánaðarlaun með þeim hætti sem krafist er. Flest öll fyrirtæki á staðnum standa mjög illa og mega síst við auknum kostnaði eins og er. En ég er sammála mönnum um að launin eru of lág. Það er ein ástæðan fyrir því að framlegð er lægri á Íslandi í fiskiðnaði en t.d. í Danmörku. Hver maður skilur einfaldlega of litlu og gæti gert miklu betur. Og þar held ég að hundurinn liggi grafinn. Kalla skal fólk til ábyrgðar Ef verkalýðsforystan hefði áhuga á að bæta kjör fisk- vinnslufólks, þá ætti hún að sameinast atvinnurekendum í að bæta framlegð starfsmanna í vinnsluhúsum, bæði háum sem lágum. Síðan ættu menn að skipta hagnaðinum af þessu bróðurlega á milli sín. Fyrir Bæjarstjóri Vesturbyggðar um ákvörðun Flugleiða Þjónustuskerðingin er áhyggjuefni Eins og greint var frá í síðasta blaði, þá hafa Flugleiðir skilað inn sérleyfi til áætlunarflugs á Patreksfjörð og hætti félagið öllu flugi þangað eftir að sumaráætlun gekk í gildi. Farþegum á leiðinni hefur fækkað mikið á undanförnum árum eða úr um 4.500 árið 1993 í 2.700 á síðasta ári. Þann 1. júlí verður innanlandsflug gefið frjálst og samkvæmt heimildum blaðsins hyggjast Flugleiðir (Flugfélag Íslands) nota vélarkost sinn á öðrum og arðbærari leiðum. Jón Gauti Jónsson, bæjar- stjóri Vesturbyggðar, sagði í samtali við blaðið að þessi ákvörðun Flugleiða myndi hafa slæm áhrif á svæðið. „Í fyrsta lagi þá hverfur samkeppnin. Þó ég hafi ekkert nema gott um þjónustu Íslands- flugs á Bíldudal að segja, þá vitum við að það er önnur staða ef samkeppnin er ekki fyrir hendi. Þú skikkar engan til að veita meiri þjónustu en menn eru tilbúnir að kaupa, en þessi þjónustuskerðing er vissulega áhyggjuefni. Það er hérna 1500-1600 manna byggð og fulkominn flugvöllur ásamt tilheyrandi aðstöðu, þannig að það er ástæða til að skoða þessi mál vel og ég á von á að bæjar- stjórnin taki þetta til umfjöll- unar á júnífundi sínum,“ sagði Jón Gauti. Hann sagði að þrátt fyrir batnandi vegasamband þá væru vegalengdir það miklar, að íbúar svæðisins myndu alltaf þurfa að byggja töluvert mikið á flugsamgöngum. „Við ætlum að bæta þjónust- una á Bíldudal með auknu sæta- framboði og teljum að með því getum við þjónað allri Vestur- byggð ásamt Tálknafirði,“ sagði Sigfús Sigfússon, mark- aðsstjóri Íslandsflugs, í samtali við blaðið. Íslandsflug ætlar að fjölga ferðum á Bíldudal og verður flogið beint til Reykja- víkur alla daga vikunnar og tvisvar á miðvikudögum og föstudögum. Þar með hættir félagið millilendingum á Flat- eyri. Sigfús segir að félagið hafi byrjað að fljúga beint á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur þann 9. júní og að flogið sé tvisvar á dag alla daga vikunnar á þeirri leið. Vegna þessara breytinga hjá flugfélögunum fækkar flug- völlum á Vestfjörðum sem eru í notkun um þrjá, þ.e.a.s. um völlinn í Holti í Önundarfirði, Patreksfjarðarflugvöll og Þing- eyrarflugvöll, sem nú er aðeins notaður sem varavöllur fyrir flugvöllinn á Ísafirði. Frá Patreksfirði. Kvennahlaup ÍSÍ Skráning er hafin Sunnudaginn 15. júní munu konur um allt land sameinast og taka þátt í Kvennahlaupi Íþróttasam- bands Íslands. Konur á Ísa- firði og nágrenni ætla að fjölmenna eins og oftast áður og taka þátt í hlaupinu en það hefst við íþróttahúsið á Torfnesi kl. 14:00. Skráning og forsala á bolum er hafin í Sporthlöðunni, Ísport, Olíu- búðinni við Hafnarstræti, Kaupfélaginu Súðavík, Vöruval Hnífsdal og hjá Rannveigu Pálsdóttur, Mjó- götu 7. Konur eru hvattar til að skrá sig strax til að forðast örtröð á hlaupadaginn. Ísafjarðarbær Gunnar til sýnis Hinn nýi björgunarbátur Vestfjarða, bs. Gunnar Frið- riksson, verður ásamt dóttur- bát til sýnis á Þingeyri Flateyri og Suðureyri sunnu- daginn 15. júní n.k. eins og hér segir. Á Þingeyri frá kl. 11:00-12:30, á Flateyri frá kl. 13:30-14:30 og á Suður- eyri frá kl. 15:30-16:30. Allir velkomnir. Verslunin Basil á Ísafirði hefur skipt um eiganda. Inga Jónasdóttir sem hóf rekstur verslunarinnar fyrir fjórum árum hefur nú selt reksturinn Sigrúnu Baldursdóttur sem tók við á laugardaginn. Að sögn Sigrúnar mun hún reka verslunina á svipaðan hátt og verið hefur, a.m.k. til að byrja með, en verslunin hefur sérhæft sig í tískufatnaði fyrir ungt fólk. Eigandaskipti á Basil Ísafjörður Breiðafjarðarferjan Baldur mun verða í daglegum ferð- um næsta vetur á milli Brjánslækjar og Stykkis- hólms, en hingað til hafa ferðir verið 5 daga vikunnar yfir vetrartímann. Ferjan er samgönguæð íbúa í Vestur-Barðastrand- arsýslu við aðalakvegakerfi landsins yfir vetrartímann og því mikilvægt fyrir svæðið að ferðum sé haldið uppi daglega. Þörfin fyrir Baldur hefur vaxið mjög á undan- förnum árum og var svo komið að oft var upppantað í ferðir skipsins. Kostnaður vegna fjölgunar ferðanna er áætlaður um sjö milljónir króna á ári og þar af er kostnaður vegna snjó- moksturs yfir Kleifarheiði ein og hálf milljón króna. Daglegar ferðir næsta vetur Breiðafjarðarferjan Þessa mynd tók ljósmynd- ari blaðsins í síðustu viku þegar verkfallsfólk reyndi að hindra að skip leggðu úr Ísafjarðarhöfn eftir sjó- mannadagsstopp. Sjómenn- irnir sem í nokkrum tilvikum eru eiginmenn verkfalls- kvenna, brugðu á það ráð að sleppa landfestum til að sleppa úr klóm - „sinna heitt- elskuðu.“ „Það er naumast hvað þessar konur leggja á sig til að halda körlunum sínum í landi,“ hafði einhver á orði. Setið á endanum

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.