Grettir

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Grettir - 21.07.1934, Qupperneq 2

Grettir - 21.07.1934, Qupperneq 2
Grettir Borg'aralega íþróttalífið er greinilega i afturför. Það er ekki hægt að segja, að verulegt líf sé nú í nema einni iþrótta- grein, þ. e. knattspyrnunni. — Þátttakan i öðrum greinum er mjög lítil og jafnvel í hinni merkilegu íþróttagrein, íslensk glímunni, er óhætt að segja að aðeins örfáir menn taki þátt i, þó að borgararnir gumi ekki • af nokkurri íþróttagrein eins mikið. Við viljum nýjan anda og nýj- an kraft inn í íþróttalífið, þann kraft, sem býr í fjölda hinna vinnandi íþróttamanna. Við vilj- um safna fjölda verkalýðsæsk- unnar til íþróttaiðkana. Við skorum á alla íþróttamenn að sameinast um, að bætt verði skilyrðin til íþróttaiðkana, að sundhöllin verði fullgerð og að fuilkominn íþróttavöllur (stad- ion) verði bygður. Ferðamenn! Neðarataldar nauðsynjavörur í ferðalög og útilegur; Gúmmístígvél allskonar. Olíuklæðnaður, svartur og gulur, allskonar. Ullarteppi. Ullarsokkar. Ullarpeysur. Sportpeysur. Skinnhanskar. Hitaflöskur. Ferðaprimusar. Dolkar og vasahnífar margar teg. Þurt spritt. Tjöld, tilbúin og eftir pontun. Silunganet. Fiskilinur. Smábátar. Prammar. O. m. fl. kaupið þér langbest og um leið ódýrast lijá O. Ellingsen. París er reiðubíiin! Eftirfarandi grein er eftir fél. Chatron, formann undirbún- ingsnefndarinnar fyrir alþjóð- legu íþróttamóti gegn fasisma og stríði, í París. Dagana 11.—15. ágúst efnir Rauða iþróttaalþjóðasambandið til alþjóðlegs íþróttamóts í Par- ís, gegn fasisma og stríði. París býr sig undir virðulega mót- töku íþróttamanna frá hinum ýmsu löndum. Or öllum áttum fáum við til- kynningar um stærð íþrótta- nefndanna. Enda þótt tilkynn- ingafresturinn sé ekki útrunn- inn og þátttakendalistarnir því enn þá ófyltir, þá er þó komið yfir markið, sem skipulags- nefndin hafði sett sér, nefnilega 1000 útlendir og 9000 franskir iþróttamenn. Frá íþróttalegu og íþrótta- pólitísku sjónarmiði séð, mun þetta verða mesta mótið, sem liingað til hefir verið haldið. Hér hittast íþróttaiðkandi verkamenn og' konur án tillits til þjóðerna, kynflokka eða pólitískrar sannfæringar. Allir eru tengdir saman af viljanum til baráttu gegn stríði og fas- isma, fyrir verndun Sovétlýð- veldanna. Þetta eru aðalkjörorð mótsins, en mótið er tengt við þing með kosnum fulltrúum. Parísar-íþróttamótið er mál allrar verkalýðsstéttarinnar. Við hliðina á rauðu íþróttamönnun- um taka þess vegna einnig só- síaldemókratiskir íþróttamenn og mikill fjöldi vinnandi íþróttamanna úr borgaralegu íþróttahreyfingunni þátt í mót- inu og bindast sameiginlegvim baráttuböndum. Þátttakendurnir koma ekki að tómum kofunum þó bara sé litið á íþróttahliðina. íþrótta- dagskrá mótsins inniheldur ekki færri en 14 íþróttagreinar. Á stærstu iþróttastöðvunum og íþróttavöllunum í París og umhverfi hennar munu liinir bróðurlegu kappleikar þessara þúsunda íþróttaverkamanna frú 20 löndum verða þreyttir. í sundhöll borgarinnar, i sund- stöðinni í Tourelles, á íþrótta- stöðinni i Pershing, í Arena von Lutéce, í vetrarhlaupsstöðinni, í St. Denis, Vitrey, Bobegny,

x

Grettir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Grettir
https://timarit.is/publication/1534

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.