Grettir - 21.07.1934, Page 4

Grettir - 21.07.1934, Page 4
Gr ettir ferðalagið: Niðursoðin matvæli, svo sem : Kiöt, fiskabollur, lax, kæfa, lifrarkæfa o. fl. ÁVEXTIR nýir og niðursoðnir, marg- ar teg. SÆLGÆTI, fjölbreytt úrval. Kaupfélag Alþýðu, Vitastíg 8A. Sími 4417. Verkamannabústöðunum. Sími 3507 Kaupið íslenska Ileikfimisskó úr hvítum og gráum striga með krúmieðursbotnum hjá Lárusi. honum nokkur hlutdrægni í dómun- um, með því að dæma stöðugt „hendur“ og fríspörk á K.R., án j)ess að gera slíkt hið sama við Dan- ina, nema að litlu leyti. Þetta á auð- vitað rót sína að rekja til þess, að dómarinn metur það meira, að stuðla að sigri landa sinna, en að dæma rétt, en jíetta afsakar á eng- an hátt það ofstæki, sem greip á- horfendur og leiddi til j>ess, að K.R.-menn fóru af vellinum í miðj- um leik. Hér er þjóðernisofmetnað- ur látinn sitja í fyrirrúmi fyrir fag- urri og fjörugri íþróttakepni. Hér er ekki „íþróttin fyrir iþróttina“, eins og íþróttaleðtogarnir guma me.^l af, heldur að eins hugsað um sigur. Það, sem kórónar þó þetta, er það skrílsæði, sem þjóðernishrokinn hefir í för með sér, jregar annað eins og það kemur fyrir, að áhorf- endur geri aðsúg að erlendum íþróttamönnum. Að lokum nokkur orð til K.R.- mannanna. Það hefði að öllu leyti verið réttara, vegna hinna dönsku íþróttamanna, að rjúka ekki af vell- inum, heldur stöðva leikinn og krefjast þess, að fá nýjan dómara. Einmitt það, að hlaupa af vellinum í miðjum leik, ber vott um, að þjóð- ernisofmetnaður hafi verið bland- inn gremjunni, vegna rangsleitni dómarans. Slíkt má aldrei henda hina vinnandi íþróttamenn. Al- þjóðahyggja verkalýðsins verður ávalt að sitja i fyrirrúmi. Við verk- lýðssinnaðir íþróttamenn fordæm- um alt þjóðernisofstæki. Við for- dæmum þao, að íþróttir sé eingöngu æfðar með það fyrir augum, að ná metum og sigrum. Við viljum að íþróttin verði til að auka hreysti og heilbrigði hinna vinnandi manna, til að gera þá færari í frelsisbaráttu al- þýðunnar. tlm það verða allir vinn- andi íþróttamenn að sameinast. íþróttaverkamaður. íslenskum íþróttamönnum boð- in þátttaka á Parísarmótinu. Undirbúningur undir send- ingu þriggja e'ða fjögra íþrótta- manna er liafinn. Það ríður á að allir íþróttamenn leggist á eitt með það að styrkja þá til fararinnar. Parísarmótið er mót allra þeirra íþróttamanna, sem and- stæðir eru fasisma og stríði, án tillits til pólitiskra flokka. Þeir íþróttamenn, sem vilja fá nánari upplýsingar um mótið og vinna að sendingu íslenskra íþróttamanna, geta gefið sig fram á skrifstofu I. V. og und- irbúningsnefndarinnar í Hafn- arstræti 18, þriðjud., fimtud. og sunnud. kl. 8 */2 - „Sovétvinurinn“ keniur út um næstu mánaðamót og verður liann aðallega helgaður Sovét-íþróttunum, fjölbreyttur að efni og myndum. Hanriliæpsta, óriýrasta og I Iijohlegasta nestið Ier niðursuðuvörur frá Sláturfélagi Suðuplands. Ábyrgðarmaður: Eðvarð Sigurðsson. Félagsprentsmiðjan.

x

Grettir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Grettir
https://timarit.is/publication/1534

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.