Blossi - 01.09.1933, Síða 1

Blossi - 01.09.1933, Síða 1
1. ápgangur, 1. íbl. f~S. F. B.“j 1. seplembep 1933 BI.OSSI petta lilað á að varpa skærum blossa. yfir þau mál, sem snerta æskulýðinn og lífskjör hans. Fé- lagið, sem gefur það út, er ekki gamalt, en því, eins og Blossa, er ætlað að vaxa og eflast hraðfari. S. F. R. og „Blossi“ vilja vekja æskulýðinn til hugsana. Stjörn- málaflokkar gera allt til að þyrla upp ryki og blinda æskulýð- inn annaðhvort með svæfandi værð eða með óskapaorðum um ofbeldi. Sjaldan heyrast raddir frá æskulýðnum sjálfum, enda er allt gert til að kæfa þær eða blanda þær hreim frá úreltum stjórn- málaskoðunum eða örvita skril- stefnum. „Blossi" berst fyrir frjáisum, djörfum og starfsfúsum æsku mönnum. Hann berst gegn eyði- leggingaráhrifum atvinnuleysis- ins, sem gera augu æskumanns- ins sljó, hendur hans mjúkar af iðjuleysi og hugsanimar skemdar af örvita vantrú á allt gott. — „Blossi“ berst fyrir því a3 æsku- lýðurinn segi ekki sínum eigin heimilum stríð á hendur, heldur taki þátt í erfiðleikum þeirra, stigi fyrstu skrefin til bjargar og efli þau i trú á sinn eigin mátt „Blossi“ berst fyrir göfgi í orði og verki, gegn skrílræði •— kom- múnisma — nazisma. LANG Hann berst gegn blindu höfð- ■ingjavaldi, gegn hálaunuðum iðju- leysingjum, einkabraski og íhaldi. „Blossi“ berst fyrir alþýðuheim- ilin, fyrir menningu þeirra, mætti þeirra og valdtöku þeirra. Kjör æskunnar í þessari borg það e.r sjaldan skrifað um kjör unga fólksins i þessari borg. Stjórn málaflokkarnir virðast ekki vita um ástandið eins og það er, eða öllu heldur: þeir eru svo upptekn- ir af öðru, að þeir veita því ekki athygli. ,Hið eina, sem unga fólk- ið fær frá stjórnmálaflokkunum, eru nokkur meiningarlaus kjass- yrði. En á þeim lifir æskan ekki. Fyrsta skilyrðið er að unga fólk- ið fái að vinna. Annað skilyrðið er, að það eigi lcost á góðum skólum — nútíma- skólum. þriðja skilyrðið er, að því sé hjálpað til að skilja nauðsyn lík- amsræktar. Og fjórða sltilyrðið er, að því sé varnað frá löstum auðvalds- þjóðfélagsins, eiturnautnum og skrílmenningu. En hvernig uppfyllir þjóðfélag- ið þessar skyldur sínar við unga fólkið? pað hugsar ekki um þær.

x

Blossi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blossi
https://timarit.is/publication/1537

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.