Bæjarins besta - 04.02.1998, Side 1
- segir Friðrik E. Stefánsson, nýkjörinn Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar
í viðtali við blaðið. Sjá nánar frétt á bls. 3 og viðtal í miðopnu
Bæjarins besta
Miðvikudagur 4. febrúar 1998 5. tbl. 15. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Nýt mín best fyrir
framan mikið af fólki
Heilbrigðisstofnunin
Starfsfólk í
eldhúsi hætt
Allt starfsfólk eldhúss Heil-
brigðisstofnunar að Torfnesi
að matreiðslumeistaranum
undanskildum hætti störfum
á föstudag vegna deilna við
stjórnendur stofnunarinnar
um breytt verksvið og launa-
kjör. Allt starfsfólkið tilkynnti
veikindi á fimmtudag og einn
starfsmaður var látinn hætta
störfum vegna ummæla sem
hann hafði frammi um stjórn-
endur stofnunarinnar.
Guðjón Brjánsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðis-
stofnunarinnar gekk sjálfur til
verka í eldhúsinu á fimmtudag
og föstudag og hafði þá uppi
vonir um að það tækist að
ráða í stöðurnar í þessari viku.
,,Ég sé eftir öllum þessum
starfsmönnum en það gilda
ákveðnar reglur, bæði siða-
reglur og reglur varðandi
vinnubrögð og stjórnun á
vinnustað. Þessir starfsmenn
verða eins og allir aðrir að
sætta sig við það að einn
verður að stjórna," sagði Guð-
jón í samtali við DV.
Ísafjarðarbær
Íhuga kaup
á nýrnavél
Nokkrir aðilar í Ísafjarðar-
bæ undir forystu Sturlu Hall-
dórssonar íbúa á Hlíf á Ísa-
firði, eru um þessar mundir
að kanna undirtektir á meðal
Vestfirðinga um kaup á nýrri
nýrnavél sem færa á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Ísafirði að
gjöf. Vélin mun kosta rúmar
tvær milljónir króna með virð-
isaukaskatti og vonast gefend-
urnir til að hann fáist endur-
greiddur.
Söfnunaraðilarnir hafa sent
fyrirtækjum, félagasamtökum
og einstaklingum bréf þar sem
óskað er eftir stuðningi og
standa vonir þeirra til að af
kaupunum geti orðið. Í bréfi
sem sent hefur verið framan-
greindum aðilum segir m.a.:
,,Það hafa komið upp nokkur
tilfelli hér í bæ þar sem sjúkl-
ingar hafa þurft að fara til
Reykjavíkur í þetta bráðnauð-
synlega tæki og hafa tilvik
ráðið því hvort komist er á
réttum tíma sökum veðurs eða
annarra landfræðilegra að-
stæðna að ótöldum öllum
þeim aukakostnaði sem slíkri
ferð fylgir.
Við teljum að meiri líkur
séu á að sjúklingar sem þurfa
að fara í þessar vélar fái meiri
ró með ættingja og vinir ná-
lægt sér, að minna rask verði
á högum þeirra og þá væntan-
lega betri bati ef hægt er að
hafa slíka vél hér til staðar,"
segir m.a. í bréfinu sem sent
var frá söfnunaraðilum.