Bæjarins besta - 04.02.1998, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9,
400 Ísafjörður
% 456 4560
o 456 4564
Netfang:
hprent@snerpa.is
Stafræn útgáfa:
http://www.snerpa.is/bb
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinbjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er
óheimil nema heimilda sé getið.
Leiðari
Friðrik Stefánsson, Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar
Friðrik Stefánsson, Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 1997.
Frábær
íþrótta-
maður
og góður
félagii
Hann hefur náð frábærum ár-
angri með liðinu og er ein
helsta ástæða fyrir velgengni
félagsins á liðnum árum og
þá kannski sérstaklega á síð-
asta ári. Í lokahófi Körfu-
knattleikssambands Íslands
sem haldið var í maí á síðasta
ári var hann kjörinn efnilegasti
körfuknattleiksmaður lands-
ins og undirstrikaði sú útnefn-
ing hversu miklum framförum
Friðrik tók á keppnistímabil-
inu. Á síðasta ári var Friðrik
valinn í 20 manna landsliðs-
hóp Íslands í körfuknattleik
sem var að undirbúa sig fyrir
Evrópukeppni landsliða og í
kjölfarið var hann valinn í 10
manna landsliðshóp Íslands
sem keppir við sterkustu
körfuknattleiksþjóðir innan
Evrópu. Í þeim leikjum sem
leiknir hafa verið hefur Friðrik
staðið sig með mikilli prýði
og muna margir stórleik hans
í leiknum gegn Króatíu. Frið-
rik er fyrsti leikmaðurinn frá
Ísafjarðarbæ sem valinn hefur
verið í A-landslið í körfuknatt-
leik og hefur hann verið bæjar-
félaginu til mikils sóma. Frið-
rik, sem er aðeins 21 árs, er
frábær íþróttamaður og býr
yfir miklu keppnisskapi auk
þess sem hann er góður félagi.
Eins og að framan greinir
fengu átta aðrir íþróttamenn
viðurkenningu í hófinu í gær-
kvöldi. Þau eru Anna Soffía
Sigurlaugsdóttir, sem kjörin
var knattspyrnukona Bolta-
félags Ísafjarðar fyrir árið
1997. Auðunn Einarsson, 22
ára golfari, sem stundað hefur
golfíþróttina ásamt öðrum
íþróttagreinum frá unglings-
aldri. Héðinn Ólafsson, 55
ára, félagi í Íþróttafélaginu
Ívari, en hann hefur æft boccia
frá árinu 1995 með góðum
árangri. Besti árangur Héðins
til þessa er 3ja sætið í sinni
deild á Íslandsmótinu í ein-
staklingskeppni sem haldið
var í október á síðasta ári.
Pétur Magnússon, 20 ára
handknattleiksmaður úr
Herði, en hann hefur leikið í
markinu hjá félaginu í vetur
við góðan orðstír og Jóhann
Bæring Gunnarsson, 25 ára
knattspyrnumaður úr Knatt-
spyrnufélaginu Ernir, en hann
var valinn leikmaður félagsins
á síðasta ári.
Þórey Sjöfn Sigurðardóttir,
18 ára frjálsíþróttakona úr
Íþróttafélaginu Höfrungi, en
hún náði frábærum árangri á
síðasta ári og hefur alla tíð
verið öðru íþróttafólki á Þing-
eyri fyrirmynd, bæði hvað
varðar ástundun og fram-
komu. Hún var kjörin Íþrótta-
maður Höfrungs fyrir árið
1997. Arnór Þorkell Gunnars-
son, 26 ára skíðamaður, en
hann hefur æft með Skíðafé-
lagi Ísafjarðar í um 17 ár og
verið fastamaður í A-landsliði
Íslands í nokkur ár. Arnór
hefur verið valinn Íþróttamað-
ur Ísafjarðar og í dag er hann
í 182. sæti í svigi á heimslista
alþjóða skíðasambandsins.
Áttundi íþróttamaðurinn sem
fékk viðurkenningu að þessu
sinni er Guðrún Á. Elvars-
dóttir, 19 ára hestakona úr
Hestamannafélaginu Hend-
ingu. Í júní á síðasta ári varð
Guðrún í 1. sæti í tölti og
fjórgangi á félagsmóti Hend-
ingar og var auk þess kjörin
knapi mótsins. Á fjórðungs-
móti Vesturlands sem haldið
var á Kaldármelum á síðasta
ári hafnaði hún í 5. sæti í fjór-
gangi ungmenna en þetta mót
var eitt hið sterkasta sem
haldið var á árinu í hestaíþrótt-
um.
Knattspyrna
Um síðustu helgi fór
fram í íþróttahúsinu á Torf-
nesi, Íslandsmót í innan-
hússknattspyrnu á milli BÍ
og UMFB í 4. og 5. flokki
karla og á milli BÍ, UMFB
og Ernis í 2. flokki karla.
BÍ sigraði í öllum flokk-
um og er komið í úrslita-
keppnina sem fram fer í
Reykjavík 14. og 15. febr-
úar nk.
BÍ sigraði
Dýrkeypt reynsla
Ef til vill má orða það
svo, að menn séu byrjaðir
að slá eina og eina nótu í
pólitísku hljómhviðunni,
sem hljóma mun eftir því sem nær dregur sveitar-
stjórnarkosningum.
Á yfirborðinu virðast aðstandendur væntanlegra
framboða taka lífinu með ró. Það kemur ekki á óvart
því svo virðist komið í íslenskri pólitík að frambjóðendur
kjósi helst leikhúsaðferðina þ.e. að þeir verði klappaðir
upp að lokinni sýningu. Flokksmiðinn gildi sjálfkrafa
áfram til setu í næstu bæjarstjórn.
Önnur skýring kann að vera á værðinni. Að þessu
sinni er óvenju mikil sambræðsla flokka og flokksbrota
í gangi. Sambræðsla er að öllu jöfnu tímafrekari en
hreint flokksframboð þ.e.a.s. ef flokkurinn á þá ekki
við einhverja innvortis krankleika að stríða, sem erfitt
er að sjúkdómsgreina og lækna.
Lengi hefur því verið haldið fram að sveitarstjórnar-
menn eigi ekki að velja eftir flokkspólitískum línum. Í
sveitarstjórn eigi að kjósa menn, ekki flokka. Einhverra
hluta vegna hafa talsmenn þessa sjónarmiðs aldrei bent
á ásættanlega leið að markinu. Það er helst að umræðan
hafi leitt af sér svokölluð óháð framboð, sem hafa verið
einkar vinsæl hjá misskildum stjórnmálamönnum, sem
flokkurinn kunni ekki að meta.
Vitað er að fjölmargir óbreyttra kjósenda vilja hafa
áhrif á skipan framboðslista. Þeir kæra sig hins vegar
ekki um fyrirframgefin loforð um ráðstöfun atkvæðis á
kjördegi, en þá kemur venjulega í ljós að flokksvélin
sló ekki feilpúst frekar en fyrri daginn og væntingar
hinna nýju liðsmanna um breyttan lista farnar út um
víðan völl. Því miður hafa stjórnmálaflokkarnir ekki
borið gæfu til að koma til móts við óskir kjósenda að
neinu marki í þessum efnum.
Ein leið til að ná til kjósenda í prófkjöri án þess að
draga þá í pólitíska dilka er sameiginlegt prófkjör allra
flokka. Þetta var gert hér á Ísafirði fyrir 16 árum og
tókst vel að því er sögur herma. Með þessu fyrirkomulagi
geta óflokksbundnir kjósendur tekið þátt í prófkjöri án
eyrnamerkinga eða skuldbindinga, sem þeir samvisku
sinnar vegna eiga erfitt með að standa við á kjördegi.
Enn er ekki vitað um framboð í Ísafjarðarbæ, hve
mörg framboðin verða, hver býður fram með hverjum,
hverjir verða einir á báti. Reynslan sýnir að allt getur
skeð. Hætt er við að margur telji reynsluna frá
kjörtímabilinu sem nú er að ljúka æði dýrkeypta.
s.h.
Ísafjarðarbær
Bensínstöð á Skeiði
Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar hefur fallist á að veita
Jóni Fannberg Þórðarsyni á Ísafirði lóð á Tunguskeiði undir
bensínafgreiðslu. Leyfið er háð því að Veðurstofa Íslands
veiti samþykki sitt til að byggja á lóðinni en eins og kunn-
ugt er, er umrædd lóð talin á snjóflóðahættusvæði. Óvíst er
því á þessari stundu hvenær framkvæmdir hefjast.
Bolungarvík
Eldur í Lada bifreið
Friðrik Stefánsson, körfu-
knattleiksmaðurinn snjalli hjá
KFÍ var í gærkvöldi útnefndur
Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar
fyrir árið 1997. Útnefning
hans var kunngerð í hófi sem
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar,
fræðslunefnd bæjarins ásamt
Íþróttabandalagi Ísfirðinga og
HVÍ efndu til í félagsheimil-
inu á Þingeyri. Auk Friðriks
fengu átta aðrir íþróttamenn
viðurkenningu fyrir árangur
sinn og ástundun en það voru
þau Anna Soffía Sigurlaugs-
dóttir sem tilnefnd var af
Boltafélagi Ísafjarðar, Auð-
unn Einarsson, sem tilnefndur
var af Golfklúbbi Ísafjarðar,
Héðinn Ólafsson, sem til-
nefndur var af Íþróttafélaginu
Ívari, Pétur Magnússon, sem
tilnefndur var af handknatt-
leiksdeild Knattspyrnufélags-
ins Harðar, Jóhann Bæring
Gunnarsson, sem tilnefndur
var af Knattspyrnufélaginu
Ernir, Þórey Sjöfn Sigurðar-
dóttir, sem tilnefnd var af
Íþróttafélaginu Höfrungi,
Arnór Þorkell Gunnarsson,
sem tilnefndur var af Skíða-
félagi Ísafjarðar, Guðrún Á.
Elvarsdóttir, sem tilnefnd var
af Hestamannafélaginu Hend-
ingu og Arnar Björgvinsson
sem var tilnefndur af UMF
Önundi.
Íþróttamaður Ísafjarðarbæj-
ar fyrir árið 1997, Friðrik E.
Stefánsson, spilar með KFÍ.
Vélarrúm Lada Sport bifreiðar varð skyndilega alelda
um kl. 13:15 á föstudag. Bíllinn var í gangi fyrir utan hús í
bænum meðan eigandinn fór inn með barn. Þegar hann
sneri út á ný eftir fáeinar mínútur stóð vélarrúmið í ljósum
logum. Kallað var á slökkvilið en búið var að slökkva
eldinn þegar það kom á vettvang.
Ísafjörður
Sigga í 2. sæti
Sigríður Þorláksdóttir, skíðakonan snjalla frá Ísafirði,
hafnaði í 2. sæti á svigmóti sem haldið var í Lambrecht í
síðustu viku. Fyrir frammistöðuna fékk Sigríður 57 punkta
en hún var með 70 styrkleikapunkta á síðasta lista. Sigríður
er um þessar mundir að undirbúa ferð á ólympíuleikana í
Nagano í Japan þar sem hún keppir ásamt Arnóri Gunnars.