Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.02.1998, Síða 3

Bæjarins besta - 04.02.1998, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 3 Forsvarsmenn ÍÚ funda með Ísfirðingum um ljósleiðaragjald Landssímans hf. Fjörutíu sinnum dýrara að dreifa sjónvarpsefni á Vestfjörðum en á höfuðborgarsvæðinu Kostnaður við flutning á sjónvarpsefni í gegnum ljósleiðara til Ísafjarðar er um fjörutíu sinnum meiri en til íbúa á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt gjaldsskrá Landssímans. Forsvarsmenn Íslenska út- varpsfélagsins, sem rekur sjónvarpsstöðvarnar Stöð 2 og Sýn og útvarpsstöðvarnar Bylgjuna og Stjörnuna eru væntanlegir til Ísafjarðar í dag til viðræðna við heimamenn um hið háa gjald sem fyrir- tækinu er gert að greiða til Landssímans hf., vegna flutn- ings á sjónvarpsefni til Vest- fjarða. Samkvæmt upplýsing- um blaðsins munu fulltrúar Íslenska útvarpsfélagins m.a. ræða við forsvarsmenn Fjórð- ungssambands Vestfirðinga, bæjarfulltrúa sveitarfélagsins og fleiri aðila auk þess sem þeir verða með opinn borgara- fund um málið kl. 20:30 annað kvöld, fimmtudagskvöld, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu, er mikill áhugi á meðal íbúa á Ísafirði og þá sérstaklega íþróttaunnenda, að ná sjónvarpssendingum Sýnar, en til þessa hafa stjórn- endur Íslenska útvarpsfélags- ins ekki séð sér fært að verða við þeirri ósk sökum mikils kostnaðar við flutning sjón- varpsefnisins. Í viðtali við BB í síðustu viku, sagði Hannes Jóhanns- son, tæknistjóri Íslenska út- varpsfélagsins, að mikill áhugi væri innan fyrirtækisins að hefja útsendingar á Sýn á Ísafirði, en tók fram að þrátt fyrir að Ísafjörður væri nægi- lega stórt markaðssvæði fyrir stöðina, hefðu viðræður við forsvarsmenn Landssímans um lækkun á flutningsgjaldi um ljósleiðarann til Vest- fjarða, engan árangur borið. Hann sagðist þó bjartsýnn á að útsendingar gætu hafist á Ísafirði, eigi síðar en í apríl nk. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er samningur Ís- lenska útvarpsfélagsins við Landssímann hf., (áður Póst og síma) á þann veg að fyrirtækið greiðir ákveðið gjald pr. kílómetra með ljós- leiðara, sem er í raun ekki það sama hvar sem er á landinu. Þannig gildir eitt verð fyrir svokallaða hringtengingu, sem liggur nánast eins og hringvegurinn um landið og síðan er lagt á 20% álag (svo- kallað útkjálkagjald) ofan á kílómetragjaldið fyrir allar tengingar sem liggja út úr hringnum. Gott dæmi um þetta er ljósleiðaratengingin til Vestfjarða. Ljósleiðarinn fer út úr hringnum við Kambs- nes við Dalabyggð og liggur um sunnanverða Vestfirði alla leið til Ísafjarðar. Við Kambs- nes leggst 20% álag á gjaldið sem Íslenska útvarpsfélagið þarf að greiða fyrir ljósleiðar- ann til Ísafjarðar. Af þessu leiðir að dreifingarkostnaður fyrir Stöð 2 á Vestfjörðum er um 9 milljónir króna á ári eða um 7,500 krónur á hvern áskrifanda. Til samanburðar má nefna að dreifingarkostn- aður fyrir Stöð 2 á höfuðborg- arsvæðinu er um 180 krónur á hvern áskrifanda. Það er því rúmlega fjörutíu sinnum dýr- ara að dreifa sjónvarpsefni á hvern áskrifanda Stöðvar 2 á Vestfjörðum, heldur en á hvern áskrifanda á höfuðborg- arsvæðinu. Síðastliðið vor stækkaði Íslenska útvarpsfélagið dreifi- kerfi Sýnar norður um land allt austur til Húsavíkur. Forsendan fyrir þeirri teng- ingu var stærð á nýju mark- aðssvæði og gjald fyrir hring- tengingu, án 20% álags. Þann 15. október síðastliðinn rann út samningur fyrirtækisins við Landssímann sem gerður var 1992, en mánuði fyrr hafði Íslenska útvarpsfélagið óskað eftir viðræðum við Landssím- ann með það að markmiði að semja um flutning fyrir Sýn og Stjörnuna um allt land. Þótt ótrúlegt megi virðast hafa for- svarsmenn Landssímans ekki tekið beiðninni um stóraukin viðskipti, tvöföldun á flutn- ingsmagni, opnum örmum. Beiðni Íslenska útvarpsfé- lagsins hefur enn ekki verið svarað á annan veg að ekki sé hægt að lækka kílómetra- gjaldið. Á sama tíma og Íslenska útvarpsfélagið vildi ræða aukin viðskipti á ljós- leiðarakerfinu um landið hefur Landssíminn eytt dýrmætum tíma í að reyna að selja fyrir- tækinu aðgang að hinu svo- kallaða breiðbandi sem Ís- lenska útvarpsfélagið hefur aldrei beðið um. Við þessar upplýsingar vakna ýmsar spurningar s.s. af hverju er ljósleiðarinn verð- lagður samkvæmt kílómetra- gjaldi? Það eru ekki nema þrír mánuðir síðan tæknimenn Landssímans notuðu þau rök fyrir jöfnun á kostnaði sím- gjalda um allt land að það kostaði í raun og veru ekki meira að hringja út á land en á milli húsa í Reykjavík. Þá má spyrja: Af hverju er 20% álag á kílómetragjaldið út úr hinum svokallaða hringvegi? Gera þingmenn og aðrir ráðamenn sér ekki grein fyrir því að ljós- leiðarinn gegnir bæði öryggis- legu og byggðalegu hlutverki? Af hverju á Landssíminn ljós- leiðarann sem að stórum hluta var kostaður af NATO og restin af almannafé? Einar Kristinn Guðfinns- son, þingmaður Vestfirðinga er formaður samgöngunefnd- ar Alþingis, en undir nefndina falla þessi mál: ,,Ég hef reynt að kynna mér þetta mál og ræða það við forráðamenn Landssímans og Íslenska útvarpsfélagsins. Það er greinilegt að deilan stendur um kostnað við að flytja send- ingar útvarpsstöðvanna um ljósleiðarann sem Landssím- inn á. Þar er um það að ræða að eigandi ljósleiðarans rukk- ar kílómetragjald og bætir síð- an álagi á, þegar farið er út fyrir einhvern tiltekinn radíus og það er þetta álag sem er ágreiningsefnið. Það er mín skoðun að það sé algjörlega óeðlilegt að leggja sérstakt álag á þessar sendingar. Auð- vitað verða þessi fyrirtæki að útkljá þessi mál sín á milli, enda sér hver heilvita maður að það gengur ekki að umtals- verður hluti þjóðarinnar, þar á meðal við á Vestfjörðum, getum ekki notið þess mikla fjölbreytileika sem er í út- varps- og sjónvarpssending- um í landinu út af svona ágreiningi. Það er greinilegt að við erum fórnarlömbin í þessari deilu. Við vitum að bara hlutir eins og þessir eru meðal þess sem fólk hefur í huga þegar það velur sér búsetu. Skoðanakönnun Byggða- stofnunar og Háskólans sýna einmitt fram á þetta. Þetta er þess vegna í mínum huga heilmikið byggðamál. Fyrir nú utan það að þróunin í fjarskiptamálunum í ver- öldinni er öll á þann veg að það skiptir stöðugt minna máli hver fjarlægðin er frá útsend- ingarstað. Hagsmunir eigenda ljósleiðarans eru að fá nógu mikla umferð inn á hann, enda er búið að stofna til fjárfest- ingarinnar. Við höfum líka verið að þróa þetta í þessa átt í símamálunum, eins og við þekkjum. Núna síðast með því að það er búið að gera landið að einu gjaldskrársvæði. Þess vegna finnst mér það skjóta mjög skökku við að hafa þennan mikla kostnaðarmun á því að flytja útvarps- og sjónvarpssendingar frá Reykjavík til Akureyrar og frá Reykjavík til Ísafjarðar, Pat- reksfjarðar eða Hólmavíkur, svo ég taki dæmi. Við verðum að treysta því að fyrirtæki eins og Landssíminn og Íslenska útvarpsfélagið, sem bæði hafa sýnt að þau vilja þjóna okkur á landsbyggðinni vel, nái sam- an í þessari deilu, þannig að við fáum að nýta okkur alla þá fjölbreytilegu kosti sem eru í boði,” sagði Einar Kristinn Guðfinnsson. Gardínubúðin Hafnarstræti 8 - Sími 456 3430 Bútasaumsnámskeið - Saumanámskeið Verða haldin ef næg þátttaka fæst. Námskeiðin hefjast um miðjan febrúar. Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir að hafa samband sem fyrst.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.