Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.02.1998, Qupperneq 5

Bæjarins besta - 04.02.1998, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 5 Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður svarar skrifum Ólafs Kristjánssonar Tveggja heima tal Veruleikinn getur reynst mönnum erfiður að horfast í augu við. Það sannast á Ólafi Kristjánssyni, bæjarstjóra í Bolungavík. Á kjörtímabilinu hefur honum og félögum hans í bæjarfulltrúaflokki Sjálf- stæðisflokksins mistekist herfilega að varðveita það fjöregg sem þeim var falið í síðustu bæjarstjórnarkosning- um að gæta og þar á ég við útgerðarfyrirtækið Ósvör og aflaheimildir þess. Ólafur hefur gripið til þess ráðs að draga upp sína eigin mynd af raunveruleikanum sem er fjarri lagi sem lýsing á því sem gerðist og enn síður rétt lýsing á hlut hans og annarra. Óhjákvæmilegt var að leið- rétta lýsingu Ólafs og draga fram staðreyndir málsins, en sem fyrri daginn er Ólafur í sínu Undralandi í svargrein sinni og það verður að viður- kennast að nokkrum erfiðleik- um er bundið að halda uppi skoðanaskiptum milli tveggja heima, raunveruleikans og Undralands.Ég vil leyfa mér að segja að sá sem ekki getur horfst í augu við sjálfan sig og verk sín þarf ekki á and- stæðingum að halda. Hann er versti andstæðingur sjálfs sín. Framundan eru bæjarstjórn- arkosningar og þeim fylgir að gera upp verk meirihlutans á kjörtímabilinu svo menn verði dæmdir af verkum sínum eins og venja er. Á þessum tíma- mótum þurfa menn að gera sér grein fyrir stöðu mála því það er forsenda þess að unnt sé að taka réttar ákvarðanir um framtíðina. Ólafur svarar engu Það vekur athygli mína að í svargrein sinni neitar Ólafur engu af því sem grein mín snerist um að öðru leyti en því að hann heldur því enn fram að ég hafi verið sam- þykkur því að selja hlutabréf Ósvarar. Hann neitar því ekki að framburður hans fyrir hér- aðsdómi Vestfjarða um sam- þykki hans sem stjórnarfor- manns Ósvarar og stjórnar- innar í heild fyrir leigu á afla- heimildum vorið 1995 hafi verið gerður marklaus þar sem aðrir stjórnarmenn sem vitni báru voru sammála um annað. Ólafur neitaði að viðurkenna að hann og stjórnin í heild hefði veitt samþykki sitt , aðrir stjórnarmenn báru annað. Staðreyndin er sú að fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins var að framfylgja samþykkt stjórnarinnar þegar hann leigði aflaheimildirnar. Málið fór fyrir hæstarétt og niður- staðan varð sú sama. Ólafur fór ekki með rétt mál fyrir dómi. Framkoma hans við samstarfsmenn sína er athygl- isverð. Þá ber Ólafur ekki af sér að hann hafi augljóslega ætlað að hunsa kvaðninguna um að bera vitni fyrir héraðsdómi og hafi verið kominn inn á Ísa- fjarðarflugvöll á leið suður þegar lögreglan sótti hann. Hvers vegna þegir Ólafur um þessi atriði ? Rétt er að hann svari því, en minna má á að málsskjöl tala sínu máli og eru til reiðu, ef á þarf að handa. Þriðja atriðið sem Ólafur þegir um er mat á eignarhluta bæjar- sjóðs í Ósvör þegar bréfin voru seld og hækkun á verð- mæti þeirra síðan þá. Þar hélt ég því fram að verðmæti bréf- anna hefði verið metið á um 120 milljónir kr. þegar þau voru seld fyrir 35 milljónir kr. Von er að Ólafur þegi, það var búið að kynna þetta fyrir honum og félögum hans ræki- lega en án árangurs, Ólafur vildi ekki hlusta. Þá hélt ég því fram að eignarhlutur bæj- arsjóðs væri nú virtur á um 400 mkr. og reyndar teldu fróðir menn að hann gæti verið meira virði jafnvel 500-600 mkr. Ólafur sneiðir alveg framhjá þessu og svarar engu. Tilviljun ? Nei, ég bendi á nýfallin dóm í frægu skilnað- armáli á Vestfjörðum. Kaup- andi bréfanna í Ósvör var annar aðili að því máli og eftir að hann hefur keypt hluta- bréfin rýkur eign hans upp um hundruð milljóna króna. Ástæðan er verðmæti veiði- heimildanna í Ósvör, annað ekki. Öllum ofangreindum þrem- ur efnisatriðum víkur Ólafur sér undan að svara. Ástæðan er einföld, staðreyndirnar tala sínu máli og hann fær engan til þess að horfa með sér á þær úr Undralandinu. Tillaga Jóhanns Þegar sala hlutabréfanna kom til afgreiðslu lagði Jó- hann Hannibalsson fram til- lögu um að leita eftir tilboðum í bréfin og selja þau hæst- bjóðanda. Þá stóðu mál þann- ig að fyrir lá undirritaður samningur við Bakka um sölu bréfanna fyrir brot af sannvirði og engar tryggingar fyrir yfirráðum heimamanna yfir aflaheimildunum. Þá var líka ljóst að ekki var vilji til þess að selja heimamönnum bréfin og þeim ekki treyst fyrir rekstri fyrirtækisins eins og fram kom skömmu síðar þegar Heimaafl var stofnað og það keypti óseld hlutabréf í Ósvör. Þá lögðu þeir sjálfstæðismenn með stuðningi Alþýðuflokks- ins mikið á sig að koma í veg fyrir yfirráð heimamanna og tryggja Aðalbirni Jóakimssyni meirihlutayfirráð í fyrirtæk- inu. Við þessar aðstæður var tillaga Jóhanns eðlileg og ég studdi hana. Hins vegar vildi Ólafur ekki fá sannvirði fyrir bréfin og hann vildi ekki að heimamenn réðu því. Það sama gildir um félaga hans og alþýðuflokksmanninn. Það er mikil ógæfa að á þessum tímamótum skyldu hafa ráðið ríkjum í Bolungavík menn sem ekki treystu heimamönn- um og gengu jafnvel svo langt að hrinda af stað málaferlum á hendur heimamönnum fyrir þær sakir að þeir stóðu vörð um upphafleg markmið bæjar- stjórnar, að halda yfirráðum yfir aflaheimildum í höndum heimamanna. Hvernig er staðan nú ? Búið er að selja Heiðrúnu og Flosa og aflaheimildir þeirra að nokkru leyti seldar en megnið af þeim komnar á togara úr Grindavík. Afla- heimildir Dagrúnar á Hrafns- eyri ÍS eru það eina sem eftir er í plássinu af upphaflegum veiðiheimildum Ósvarar og heimamenn ráða engu um ráðstöfun þeirra. Ekki er rekstur frystihússins tilkomu- mikill, í Morgunblaðinu 17. des. sl. segir Gunnar Tómas- son ,,þegar við komum að fyrirtækinu í sumar voru þar um 60 manns í vinnu, en áætlað er að þeir verði 20 í byrjun næsta árs. Við komum ekki til með að auka rekstur- inn þar fyrr en búið verður að snúa honum og ná hagnaði. Ef við fáum ekki hagnað munum við loka.” Nú eru liðin tæplega þrjú ár síðan óhappaverk Ólafs og félaga var unnið. Það sér hver maður að staðan er ekki glæsi- leg, frystihúsareksturinn sem farið var út í hefur reynst botn- laus taprekstur og er enn. Verðmætið í Ósvör var fólgið í veiðiheimildunum og Aðal- björn bjargvættur stunginn af suður með verðmætin sem í þeim voru eftir. Ég skora á Ólaf að upplýsa hversu mikið hann telur að Aðalbjörn hefur haft upp úr krafsinu á þessum rúmum tveimur árum sem hann var aðaleigandi Ósvarar. Ég get hjálpað honum aðeins, Kristinn H. Gunnarsson. þær tölur sem ég hef fengið eru á bilinu 280 - 600 milljónir króna, algengasta matið er um 500 milljónir kr. Þetta er eignin sem Bolvíkingar áttu og Ólafi var trúað fyrir að varðveita. Þessa eign lét hann í hendur helsta kvótabraskara landsins sem er sennilega enn að hlæja að Ólafi og öðrum Bakkabræðrum í bæjarstjórn- inni. Þá svíður mörgum hvernig komið var fram við ýmsa starfsmenn Ósvarar. Þeir rekn- ir eða flæmdir burt og mætti Ólafur skoða stöðu sjómanna- stéttarinnar nú og bera hana saman við stöðuna fyrir tæp- um þremur árum. Hvernig var staða Ósvarar ? Í grein Ólafs er nokkuð vikið að stöðu Ósvarar og hann gerir hana sem hrak- smánarlegasta og færir það fram sem rök fyrir því að selja fyrirtækið. Staða fyrirtækisins í lok maí 1995 var þannig að reksturinn var í járnum, tap af rekstri var um 17 milljónir kr. Tekjurnar stóðu undir öllum rekstri og afskriftum og var hagnaður um 8 mkr. fyrir fjármagnskostnað. Fyrirtækið var að mestu í skilum. Skuldir voru miklar enda skipin keypt ásamt veiðiheimildum fyrir markaðsverð á sínum tíma. Þar var ekkert gefið. Eðlilega vakti endurskoðandi athygli á fjárhagsstöðunni í áritun sinni. En þess ber að geta að markasverð veiðiheimilda hafði stigið allnokkuð á liðn- um tveimur árum og því var verulegt dulið eigið fé í fyrir- tækinu. Að teknu tilliti til þess stóðu eignir undir öllum skuldum og vel það. Ólafi bregður ekki við svona áritun ef ég veit rétt, hann fengið svipaða áritun hjá endurskoðanda bæjarsjóðs og þá vildi hann gera lítið úr því. Segja má að fyrirtækið hafi haldið sjó og það er mitt álit að stjórnendur þess hafi staðið sig afbragðs- vel við erfiðar aðstæður. Deilur í bæjarfélaginu trufl- uðu mjög uppbygginguna, þannig héldu fjárfestar nokk- uð að sér höndum af þeim ástæðum. Þeir sem vildu veðja á landvinnsluna stofnuðu sitt fyrirtæki, Þuríði hf og stöð- ugar kröfur voru uppi á Ósvör um að það útvegaði Þuríði hráefni á verði sem kaupandi vildi ráða. Þetta voru kröfur um að reka fyrirtækið öðruvísi en hagkvæmast var og efna- hagur Ósvarar var ekki þannig að hann leyfði það. Rekstur landvinnslunnar síðan hefur einfaldlega staðfest að það var ekki skynsamlegt að gera hana að þungamiðju starfseminnar. Þuríður fór á hausinn og Bakki stefndi sömu leið þegar hluthafarnir undir forystu Kolkrabbans tóku sig til og keyptu Aðalbjörn út. Til þess að styrkja rekstur Ósvarar voru uppi hugmyndir um að setja frystibúnað í Dagrúnu og fór svo að það var sam- þykkt í stjórninni. Ólafur var þá stjórnarformaður og einn af þeim sem samþykktu þetta. Því er lýsing hans á stöðu Ósvarar þá alveg óskilj-anleg og satt best að segja hreinn þvættingur. Ekkert benti til annars en að vandræðalaust yrði að fjármagna þá aðgerð og nauðsynlegar viðgerðir á skipinu m.a. vegna vélarbil- unar og fráleitt að selja þyrfti Heiðrúnu ásamt aflaheimild- um hennar eins og Ólafur heldur fram. Hitt er nauðsynlegt að undirstrika að þegar ráðist var í það stórvirki að kaupa toga- rana fyrir hátt verð voru menn meðvitaðir um það að svo kynni að fara að heimamenn réðu ekki við fjárfestinguna og einhvert tíma kynni að koma til þess að selja þyrfti veiðiheimildir eða skip til þess að létta skuldum af fyrirtæk- inu. Hins vegar höfðu mál þróast þannig þessu tvö ár sem Ósvör hafði starfað að minnk- andi líkur voru til að svo færi og verð veiðiheimilda hafði hækkað mikið og það gerði að verkum að auðvelt var að selja lítinn hluta kvótans fyrir mikið verð. Það eru allar líkur til þess að í dag ættu Bolvíkingar báða togarana og megnið af afla- heimildum þeirra ef þeir sem stóðu fyrir rekstri fyrirtæk- isins á útmánuðum 1995 hefðu fengið að halda áfram ótruflaðir af ístöðulitlum stjórnmálamönnum og hugs- anlega hefði fyrirtækið getað fengið hundruð milljóna í nýtt eigið fé með hlutafjárútboði t.d. á svipuðum tíma og Bása- fell á Ísafirði. Ólafi og félög- um er hollt til þess að hugsa hversu hörmuglega þeir hafa farið að ráði sínu. Ætlaði Ólafur ekki að hætta? Svona í lokin má ég til með að minna Ólaf á kosninga- loforðið sem hann gaf fyrir fjórum árum. Þá lýsti hann því yfir að hann ætlaði að hætta að loknu þessu kjör- tímabili. Þrátt fyrir það fékk hann ekki nema um 40% atkvæða í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Um 60% vildu hann ekki. Mér finnst að hann skuldi sínum mönnum skýringu á því hvers vegna hann gengur nú á bak orða sinna eða var hann í Undralandi þegar yfirlýsingin var gefin? Kristinn H. Gunnarsson. ,,Nú eru liðin tæplega þrjú ár síðan óhappaverk Ólafs og félaga var unnið. Það sér hver maður að staðan er ekki glæsileg, frysti- húsareksturinn sem farið var út í hefur reynst botnlaus taprekstur og er enn. Verðmætið í Ósvör var fólgið í veiðiheimildunum og Aðalbjörn bjargvættur stunginn af suður með verðmætin sem í þeim voru eftir."

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.