Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.02.1998, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 04.02.1998, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 „Útkastari“ segir frá Hvernig ímyndum við okkur hinn dæmigerða útkastara á skemmtistað? Sjáum við ekki fyrir okkur svakaleg vöðvafjöll á borð við Magnús Ver eða Hjalta Úrsus Árnason, Arnold Schwarz- enegger á sínum yngri árum eða Ívar handrukkara? Ímyndun eða klisjur eru ekki nærri alltaf eins og raunveruleikinn. Ingi Guðnason vinnur sem útkastari á skemmtistöðunum Sjallanum og Krúsinni á Ísafirði. Starfsheiti hans er þó í rauninni dyravörður en ekki útkastari og hann gerir miklu fleira en gæta dyranna, því að hann er jafnframt eftirlitsmaður og sér um að allt fari vel og skikkanlega fram innan dyra og allir fari út þegar klukkan kallar lögum samkvæmt. Ingi er enginn lyftingaboli eða steratröll að sjá. Hann er alls ekki tröllvaxinn, hvorki á lengdina né þverveginn. Þvert á móti er hann frekar lágvax- inn, kurteis og hægur og rólegur og heldur meinlítill að sjá. Hann er lifandi dæmi um það, hvernig lempni og hlýleg og manneskjuleg fram- koma geta fengið miklu meira áorkað en belgingur og krafta- læti. En vafalítið leynir hann á sér, enda langhertur og stæltur í erfiðum sveitastörf- um alla sína tíð. Hann hefur stundað lyftingar, ekki samt með lóðum í þar til gerðu lík- amsræktarstúdíói, heldur með hrútum og rollum á fengitíma í þar til gerðu fjárhúsi. Og svo hefur hann lagt stund á júdó, rétt til vonar og vara. Ekki samt vegna hættunnar á fang- brögðum við bölvandi naut í sveitinni, heldur við sálufé- laga þeirra sem stöku sinnum villast inn á skemmtistaðina. Frá Bæjum á Snæ- fjallaströnd að Kirkjubæ í Skutulsfirði Frá því að Ingi var um tveggja ára aldur og næsta aldarfjórðunginn átti hann heima í Bæjum á Snæfjalla- strönd, í Hærribæ, ásamt fóst- urforeldrum sínum, Jens heitnum í Kaldalóni Guð- mundssyni og Guðmundu konu hans. Sumarið 1989 brá Jens í Kaldalóni búi á Strönd- inni og fluttist að Kirkjubæ í Skutulsfirði ásamt konu sinni og fóstursyni og búpeningi og bjó þar til dauðadags á síðasta ári. Búskapur aflagður í Kirkjubæ Nú eftir andlát Jens í Kalda- lóni er búskapur aflagður í Kirkjubæ. Íbúðarhúsið er til sölu. Allar skepnur farnar nema kötturinn. „Sem betur fer gátum við selt allar kýrnar á fæti og til ásetnings“, segir Ingi. „Ég hefði séð mikið eftir þeim hefði þurft að slátra þeim. Kýrnar fóru víða hér um sveitir, sumar í Arnardal, aðrar í Engidal, að Hattardal í Álftafirði, að Botni í Súganda- firði, í Valþjófsdal í Önundar- firði og ein inn í Vigur. Þetta voru mjög góðar kýr og skiluðu úrvals mjólk alla tíð frá því að við komum í Kirkju- bæ og fram til þess síðasta og fengu verðlaun á hverju ári mörg undanfarin ár. Líklega var mjólkin úr þeim sú allra besta í Mjólkursamlaginu hér á seinni árum.“ Auk mjólkur- kúnna voru Jens og fjölskylda hans með um þrjátíu fjár í Kirkjubæ og eitthvað af hross- um. Á meðan þau bjuggu í Bæjum var fjárstofninn miklu stærri, eða hátt í þrjú hundruð fjár, enda sauðland með af- brigðum gott þar um slóðir. Kýrnar voru um tuttugu og annað eins af kálfastóði. Í Sjallann og Krúsina Það var um páskana árið 1991 sem Ingi byrjaði að vinna sem dyravörður á veit- ingastöðunum sem Steinþór Friðriksson (Dúi) og Gróa kona hans reka á Ísafirði og þar hefur hann síðan starfað undanfarin sjö ár. En hvað ætli hafi orðið til þess að hann fór að vinna þar? „Það voru óneitanlega tals- verð viðbrigði að koma hingað til Ísafjarðar úr einangruninni í Bæjum. Ég hafði góðar frí- stundir frá bústörfunum í

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.