Bæjarins besta


Bæjarins besta - 04.02.1998, Page 10

Bæjarins besta - 04.02.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1998 eftir, að hefði ég lent fimm sentimetrum til hliðar, þá hefði andlitið á mér höggvist í sundur og þar með hefði ég verið dauður. Ég var ekki orðinn sautján ára. Maður sá kannski lífið í nýju ljósi eftir þetta og hugsaði sinn gang. Ég var skíthræddur við að fara í körfubolta í dálítinn tíma á eftir.“ Klikkaður uppi í stúku í ellinni – Hvað ætlarðu að taka þér fyrir hendur þegar þú ert hættur að spila körfubolta? „Þá ætla ég að vera klikk- aður uppi í stúku! Nei, annars, það liggur vissulega fyrir að halda áfram skólagöngu, en til þess verður maður að hafa áhuga. Það er allt of margt ungt fólk sem hangir í skólum án þess að hafa nokkurn áhuga og lætur bara mömmu og pabba borga. Þá er ekki von á neinum árangri. Ég var um tíma í Reykjavík í námi sem ég hafði nákvæmlega engan áhuga á. Ég vildi bara vera í körfunni.“ – En svo kemur áhuginn einn góðan veðurdag og þá gengur þú í námið með sama kraftinum og kröfuhörkunni og þú sýnir í körfunni... „Ég vona það. Vissulega hefur komið til álita að fara til Bandaríkjanna að læra og vera þar á fullum námsstyrk. Ég hef þann möguleika ennþá, þó að ég geti ekkert sagt um það á þessari stundu. Þetta er allt spurning um áhugann.“ -Hlynur Þór Magnússon. Svo leik ég golf á sumrin, en ég get bara ekki raskat!“ – Ertu ánægður með íþrótta- húsið hér á Ísafirði, Klaka- höllina, Klakann, Ísjakann eða Jakann eða hvað það er nú kallað? „Þetta er frábært hús, eitt af þeim bestu á landinu. Það er hreinn draumur að spila hérna á Ísafirði. Hér er allt sem þarf: Gott gólf, góðar körfur, frá- bærir áhorfendur og mikill áhugi. Þetta er allt sem maður getur óskað sér til að spila körfubolta, að minnsta kosti á Íslandi. Ég spilaði landsleik í Eistlandi í vetur, þar sem voru þúsund áhorfendur. Hér þyrfti ekki nema ef til vill 400 manns til að yfirgnæfa þann hóp og voru þó lætin þar töluverð.“ Nærri dauður hjá KR – Mörgum íþróttagreinum fylgir mikið álag á líkamann, í körfuboltanum ekki síst á fæturna og hnén. Guðni þjálf- ari er til dæmis farinn að vita vel af löppunum á sér eftir langan feril í fremstu röð með félagsliðum og landsliði. Ert þú ekkert hræddur um að slíta þér út fyrir aldur fram með þessu? „Auðvitað fylgja þessu álag og meiðsli. Ég spilaði í fyrra meiddur á ökla og núna er ég meiddur í öxlinni. En þegar ég er orðinn gamall, þá hugsa ég bara til baka hvað þetta hafi nú verið gaman! Þegar ég spilaði með KR lenti ég í slysi, þegar ég reif niður uppistöður á körfu og fékk allt draslið yfir mig. Ég slapp með heila- hristing og 25 cm skurð á hausnum, en mér var sagt á Friðrik Stefánsson. Þorrablót eldri borgara á Hlíf, íbúðum aldraða Ljúffengur þorramatur og ekta harmonikkuball Íbúar á Hlíf, íbúðum aldraða á Ísafirði og starfsfólk Hlífar efndu til síns árlega þorra- blóts síðastliðið föstudagskvöld. Líkt og undanfarin ár var fjölmenni á blótinu en á níunda tug gesta blótuðu Þorra á viðeigandi hátt í húsakynnum Hlífar þetta kvöld. Auk þess sem gestir nutu ljúffengs þorramats, var fjölmargt til skemmtunar, flutt af starfsfólki og íbúum Hlífar. Að lokum var stiginn dans við undirleik félaga úr Harmonikku- félagi Vestfjarða, sem voru upp á sitt besta á þorrablótinu. Ljós- myndari blaðsins kom við á þorrablótinu og tók þar meðfylgjandi myndir. Starfsfólk Hlífar skemmti sér vel á þorrablótinu. Björney Björnsdóttir og Helga Pálsdóttir kunnu vel að meta þorramatinn. Það gerðu einnig þær Hulda Guðmundsdóttir, Elín Árnadóttir og Margrét Guðbjartsdóttir. Ísfirsk ungmenni stofna Listafélagið Andrúm Kynnir lista- og menningar- starfsemi unga fólksins Síðastliðinn laugardag fór fram í Tjöruhúsinu á Ísa- firði, formlegt stofnhóf Listafélagsins Andrúms, sem er félag ungs fólks á Ísafirði, sem hefur það að markmiði að efla áhuga ungs fólks á hvers kyns list- um, koma ungu vestfirsku listafólki á framfæri sem og að efna til listviðburða þar sem Vestfirðingum gefst kostur á að kynnast listum ungs fólks víðsvegar að af landinu. Í stofnhófið mættu nokkrir tugir ungmenna auk fulltrúa frá bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar og annarra gesta og var góður rómur gerður að framtaki aðstand- enda félagsins. Í fréttatilkynningu sem blaðinu barst frá félaginu segir: ,,Hugtakið tími er alls ekki einfalt hugtak. Tími er mælistika okkar á fram- vindu rýmisins, og fræg eru orð Albert Einstein um að heimurinn sé fjórvíð sam- fella tíma og rúms. Tími og rúm eru sem sagt undirstaða Sigríður Steinunn Axelsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir bæjarfulltrúi, Ólafía Aradóttir og Helga Friðriksdóttir voru á meðal gesta í stofnhófinu. landið. Félagið á í viðræðum við ákveðna aðila hér á Ísafirði um leigu á húsnæði undir starfsemina en á þessari stundu er ekki hægt að greina nánar frá því,” sagði Kristján Freyr í samtali við blaðið. Hann sagði ennfremur að fyrsta verkefni félagsins yrðu tónleikar með þremur stór- hljómsveitum sem haldnir verða í kaffisal Norðurtangans kl. 21 á laugardagskvöld. ,,Við ætlum að slá til tónleika- alls. Ef framvinda rýmis er stöðvuð er hin fjórvíða sam- fella Einsteins stöðnuð. Virkja þarf rýmið til þess að koma í veg fyrir stöðnun, því þegar saman koma orkuríkt rými og hin eilífa framvinda hugans, þá skapast hið eftirsóknar- verða ástand; menning. Og til þess að skapa rými fyrir þessa framsæknu framvindu andans höfum við blásið í herlúðrana og stofnað félagsskapinn Andrúm.” Einn af forkólfum Listafé- lagsins Andrúms er Kristján Freyr Halldórsson, bæjarfull- trúi Funklistans í Ísafjarðar- bæ. ,,Tilgangur félagsins er að efla hverskyns lista- og menningarstarfsemi ungs fólks í sveitarfélaginu. Það er fjöldi ungmenna í sveitarfé- laginu í allskonar listsköpun og þeirra hængur er að koma sér á framfæri. Andrúmi er ætlað að bæta þar úr sem og að gefa vestfirskum ungmenn- um kost á að kynnast þeirri listsköpun sem ungt fólk er að vinna að víðsvegar um halds þar sem kynntar verða þrjár góðar hljómsveitir af höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta skal nefna Maus, sem gaf út góða og metnaðarfulla plötu fyrir síðustu jól, Kolrössu Krókríðandi og hljómsveit sem notið hefur mikillar at- hygli í Reykjavík og er talin með framsæknustu sveitum í dag en það er hljómsveitin Sigurrós. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Nem- endafélag Framhaldsskóla

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.