Bæjarins besta - 04.02.1998, Side 16
Bæjarins besta
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
BÍLATANGI
Ísafirði
Símar 456 3800 og 456 4580
BÍLATANGI
Ísafirði
Símar 456 3800 og 456 4580
Allir togarar Ísfirðinga eru komnir til hafnar, þeirra á meðal frystitogarinn Júlíus Geirmundsson sem sést að veiðum á myndinni hér að ofan, en eins
og kunnugt er hófst verkfall á fiskiskipaflotanum á miðnætti á mánudagskvöld.
Verkfall sjómanna á íslenska fiskiskipaflotanum er hafið
Verkfallið hefur áhrif á vinnu
fiskvinnslufólks um land allt
Verkfall sjómanna á ís-
lenska fiskiskipaflotanum
hófst á miðnætti á mánu-
dagskvöld. Sáttafundir sem
haldnir voru um helgina og
fram á kvöld á mánudag skil-
uðu ekki árangri og hefur af-
staða deiluaðila til stærsta
ágreiningsmálsins, verð-
myndunar á fiski, lítið breyst.
Verkfallið nær til á fimmta
þúsund sjómanna um land allt
þar af til á annað hrundrað
sjómanna við Ísafjarðardjúp.
Þær upplýsingar fengust hjá
Ísafjarðarhöfn í gærdag að öll
skip sem koma myndu til
hafnar á Ísafirði, væru komin
til hafnar og sömu sögu er að
segja úr öðrum höfnum á
Vestfjörðum. Ef verkfall dreg-
st á langinn getur það haft
víðtæk áhrif, sérstaklega hvað
varðar vinnu fiskvinnslufólks
og hjá þeim fyrirtækjum sem
þjónustað hafa skipin.
Að sögn Jóns Kristmanns-
sonar, yfirverkstjóra hjá Íshús-
félagi Ísfirðinga hf., er til
nægjanlegt magn sjávarfangs
á þeim bæ til að halda úti
atvinnu um þriggja vikna
skeið en hjá Hraðfrystihúsinu
hf., í Hnífsdal er til bolfiskur
til viku vinnslu.
,,Við verðum ekki varir við
verkfallið fyrr en eftir 3-4
vikur. Við eigum nægt magn
til vinnslu út þessa viku og
fram í þá næstu af þeim skip-
um sem lönduðu í dag (þriðju-
dag) og síðan eigum við um
350 tonn af frystum fiski, aðal-
lega Rússafiski. Ég vona að
verkfallið standi ekki lengur
en hráefni er fyrir hendi,"
sagði Jón Kristmannsson.
Hjá Hraðfrystihúsinu hf., í
Hnífsdal er til hráefni í bolfiski
út þessa viku. ,,Við höfum
hráefni út þessa viku í frysti-
húsinu og eitthvað lengur í
rækjuvinnslunni. Það er því
ljóst að það starfsfólk sem
starfar í frystihúsinu verður
atvinnulaust í næstu viku,"
sagði Konráð Jakobsson, hjá
Hraðfrystihúsinu hf., í samtali
við blaðið.
Svipaða sögu mun vera að
segja frá öðrum frystihúsum
á Vestfjörðum ef frá eru talin
frystihús ,,Rauða hersins" en
þar mun vera til nægt magn af
Rússafiski.
Heimilt er að færa starfsfólk
fiskvinnslufyrirtækja af
launaskrá með eins sólar-
hrings fyrirvara vegna hrá-
efnisskorts af völdum verk-
falla og færa það beint yfir á
atvinnuleysisbætur. Fari fólk
á bætur verður þar um álags-
lausan dagvinnutaxta að ræða,
um 50 þúsund krónur á mán-
uði, en í dag fær fiskvinnslu-
fólk að lágmarki um 70 þús-
und krónur á mánuði fyrir dag-
vinnu og fastar uppbætur.
Ríkisstjórnin bíður átekta
með aðgerðir en verkfallið var
rætt á ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun. Dragist verkfallið á
langinn má búast við að sett
verði lög til að stöðva það.