Lindin - 01.04.1989, Qupperneq 5
mer
Eins og allir Skógarmenn á ég
margar góðar og hlýjar minningar
úr Vatnaskógi. Fyrstu minningarn-
ar eru bundnar við stuttar heim-
sóknir í Vatnaskóg með föður mín-
um, en ég dvaldi þá með foreldrum
mínum í sumarbústað handan
vatnsins. En á þeim árum dvaldi
móðir mín langdvölum í sumarbú-
staðnum með mig og systkini mín
eins og þá var títt, en pabbi kom um
helgar. En þar sem hann var sannur
Skógarmaður og vanur að ganga til
kirkju á sunnudögum fór hann allt-
af yfir vatnið á sunnudögum til að
vera við guðsþjónustu og fór ég þá
°ft með honum.
I minningunni eru þessar ,,messu-
ferðir“ í Vatnaskóg alveg stórkost-
legar. ,,Gamli skálinn“, eins og
hann nú er kallaður var fyrir mér
emn ævintýraheimur. Ekki skyggði
heldur á heimsóknina að fá að hitta
sr- Friðrik og Stínu í eldhúsinu svo
einhverjir séu nefndir.
Þegar ég varð eldri fékk ég að
vera í hefðbundnum drengja flokk-
um og síðar á skólamótum og Biblíu-
uámskeiðum.
Þegar ég nú lít til baka og hugsa
um allar samverustundirnar sem ég
hef átt í Vatnaskógi sem drengur og
unglingur þá er það eitt sem óneit-
anlega hafði mest áhrif á mig og það
var boðun Guðs orðs. Þó svo stór
hluti dagsins færi í leik af ýmsu tagi,
þá höfðu Biblíulestrarnir á morgn-
ana og stuttu helgistundirnar á
kvöldin dýpst áhrif á allt mitt líf.
Fyrir þetta er ég afar þakklátur og
lofa Guð fyrir.
Tvö sumur fékk ég tækifæri til að
starfa í Vatnaskógi sem foringi. Sá
tími er mér einnig ógleymanlegur,
því þá hafði maður sjálfur það hlut-
verk að vitna fyrir drengjunum um
kærleika Guðs og náð. Sú reynsla
reyndist mér mjög dýrmæt þegar ég
síðar varð prestur.
Á liðnum áratugum hafa þúsund-
ir drengja dvalið í Vatnaskógi og
veit ég að mjög margir þeirra eiga
þaðan svipaðar minningar og ég og
tala jafnvel um dvölina í Skóginum
sem dýrmætustu stundir lífs síns.
Allir eigum við því sameiginlegt
að hafa heyrt kall Krists hljóma til
okkar fyrir munn þeirra sem töluðu
til okkar Guðs orð.
Þegar ég fór að reyna að muna
einhverja texta sem ég heyrði í
Vatnaskógi, þá kom þessi setning
strax upp í huga mér: ,,Fylg þú
mér“.
Þessi setning er tekin úr Markús-
arguðspjalli 2. kap. 14. versi. Það
segir frá því þar, að Jesús hafi geng-
ið með vatninu, og allur mannfiöld-
inn kom til hans, og hann kenndi
þeim. Og er hann gekk þar, sá hann
Leví Alfeusson sitja hjá
tollbúðinni, og hann segir við hann:
,,Fylg þú mér“. Og hann stóð upp
og fylgdi honum. — Þessi frásögn
er mjög skýr, enda oft notuð sem
hugleiðingarefni fyrir drengina í
Vatnaskógi.
Jesús Kristur er enn á ferð í
Vatnaskógi til að leita sér að læri-
sveinum, því megum við trúa, svo
lengi sem Guðs heilaga orð er boð-
að. En í Biblíunni lesum við einmitt
um það að hvar sem tveir eða þrír
eru saman komnir í Jesú nafni, þá er
hann þar mitt á meðal fyrir sinn
heilaga góða anda. En Vatnaskógur
er einn af þeim stöðum þar sem við
komum saman í Jesú nafni.
Margir eiga örugglega þá sameig-
inlegu minningu með mér að hafa
5