Lindin

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Lindin - 01.04.1989, Qupperneq 6

Lindin - 01.04.1989, Qupperneq 6
LINDIN átt bænastundir í kapellunni. Þá voru það ekki snjallar ræður eða hugleiðingar leiðtoganna sem skiftu öllu máli, Guð var sjálfur að vinna með okkur og kalla á okkur til fylgdar við sig og til starfa fyrir Guðs ríki. Já, minningarnar taka svo sann- arlega að tala, þegar hugurinn reik- ar upp í Vatnaskóg, og það vona ég líka að gerist þegar þú, lesandi góð- ur, lest þessar línur. Við erum að sjálfsögðu búnir að gleyma mörgu, en kall Drottins er enn í gildi. Hvernig svo sem líf okkar hefur ver- ið að öðru leyti, þá er Drottinn hinn sami og hann elskar okkur eins og við erum, því getum við treyst. Leví Alfeusson mætti kalli Krists og hann yfirgaf allt og fylgdi honum og varð einn af postulum hans, öðru nafni Matteus. En Jesús kallaði einnig á Pétur er hann hafði svikið hann, afneitað honum. Þá notaði Jesús þessi sömu orð: ,,Fylg þú mér!“ En það form á köllun Krists er mér ekki síður hug- leikið, því það sýnir mér, að Jesús fyrirgefur og jafnframt að hann get- ur notað venjulegt fólk sem m.a. hefur sömu vankanta og Pétur. Það gefur mér því vísbendingu um að Guð getur jafnvel notað mig og þig, eins og við erum. Það er von mín og bæn að í Vatnaskógi þagni aldrei kröftug rödd fagnaðarerindisins og hið skýra kall Krists, ,,Fylg þú mér.“ Jafnframt bið ég þess að við allir sem dvalið höfum í Vatnaskógi síð- ustu 60 árin heyrum aftur og aftur þetta kall svo það verði til að vísa okkur hinn rétta veg til lífsins. Jón D. Hróbjartsson Hótel, veitingahús, sölu- skálar og mötuneyti. Hjá RV fáið þiö servíettur, dúka, kerti, diska- og glasa- mottur á ótrúlega lágu verði. REKSTRARVÖRUR Draghálsi 14-16*110 Rvík • Símar: 31956 - 685554 Höfum ekki þessa tröppuskó en flestar aðrar gerðir Bragóast sem besti sykur! -í stað strásykurs Q/inK:RfeL asparlam (Nutra Sweel ) STRÁS/ETA næstum því án hitaeininga 6

x

Lindin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.