Lindin - 01.04.1989, Qupperneq 11
LINDIN
MATSKÁLI Borðsalur og íbúð fyrir starfsfólk í eld-
húsi var byggt árið 1965. Þar er rúmgott eldhús, borð-
salur fyrir rúmlega 100 manns, og íbúð fyrir 4 starfs-
menn. Áður var eldhús og borðsalur í Gamla skálanum
þar sem nú er samkomusalur og salerni.
LEIKSKÁLI Árið 1974 var hafist handa við byggingu
leikskála sem nota mætti þegar veður hamlaði útiveru.
Húsið skiptist i íþróttasal, anddyri, bað og búnings-
herbergi, salerni, geymslu og leikloft þar sem aðstaða
er fyrir margvíslega starfsemi m.a. borðtennis. Húsið
var fljótlega tekið í notkun en ekki hefur enn tekist að
Uúka endanlega við það.
LERKISKÁLI Enn var þörf á fleiri rúmum og 1982 var
nýjasti skálinn byggður — Lerkiskálinn —. Hann
rúmar 32 drengi og 4 starfsmenn.
LAUFSKÁLI Skortur á svefnherbergjum fyrir
drengina fór að gera vart við sig 1968, en þá höfðu
kröfur um aðbúnað vaxið og fækka varð rúmum í
Gamla skála. Þá voru keyptir 12 vinnuskúrar frá
Búrfellsvirkjun sem settir voru upp til bráðabirgða.
Þeir eru enn í fullri notkun en orðnir lasburða og er
aðkallandi að fá nýtt húsnæði í þeirra stað. í Laufskála
rúmast 36 drengir og 6 starfsmenn.
11