Lindin

Árgangur

Lindin - 01.04.1989, Síða 14

Lindin - 01.04.1989, Síða 14
Guðmundur Karl Brynjarsson Starfid í dag ^ 9 jfau /Ut 1 Allt frá þeim tíma þegar K.F.U.M. hóf að starfrækja sumarbúðir fyrir drengi í Vatnaskógi hafa þúsundir slíkra dvalið þar. Margir þeirra sem áður hlupu um skóginn, sem litlir snáðar, sprækir og sprellfjörugir eru orðnir gamlir og gott betur. Hvað um það. Á löngum tíma hefur starfið vitanlega breyst þó tilgangurinn sé sá sami, að leiða unga drengi til trúar á frelsarann Jesúm Krist. Ætlunin með þessu greinarkorni hér er að kynna þér lesandi góður hvernig dagurinn gengur fyrir sig hér hjá okkur í Vatnaskógi. Að sjálfsögðu felur upptalningin sem hér fer á eftir ekki allt sem gerist. En það er vonandi að hún gefi einhvern þef. KL. 7.45 — Foringjafundur hefst með lestri Guðs orðs og þar á eftir er rætt um hvað gerast skuli yfir daginn. KL. 8.30 — Drengirnir vaktir. Hver er búinn að gleyma lúðrablæstrinum sívinsæla? Hann er enn í fullu gildi. KL. 9.00 — Morgunkaffi. Þangað mæta drengirnir mishressir og sötra sopann sinn og borða brauð með. KL. 9.25 — Fánahylling. Allir drengirnir og foringjar raða sér í beina röð við stóru flaggstöngina og islenski þjóðfáninn er hylltur undir laginu: ,,Fáni vor sem friðarmerki.“ Þaðan er streymt beint á morgunstund í sal Gamla skálans. Sungnir eru nokkrir söngvar, og lesið úr Biblíunni. Þá er drengjunum skipt i hópa þar sem lesinn er ákveðinn texti úr Guðs orði, hann hugleiddur og útlagður af foringjunum. KL. 10.30 — Frjáls tími. Drengirnir eiga þá nokkra kosti að velja um og skulu þeir vonandi allir upp taldir hér: *Bátar. Bæði kanóar og árabátar eru lánaðir út, ef veður leyfir, eins og alltaf hefur verið. # Veiðar. Sívinsælt sport sem bæði er stundað frá landi og úr bátum. *Smíðar. Nýverið var útbúin aðstaða í bátaskýlinu til smíða. Virðist sem svo að hún sé ákaflega kærkomin því þangað koma mjög margir. Flest er smíðað, allt frá bakklórum til báta. fyíþróttahús. Þar er boðið upp á margt, svo sem bobb, borðtennis og boltaleiki margskonar kúluspil, kastdiska og knetti. Þar úir allt og grúir af alls kyns leikjum og spilum sem hægt er að dunda sér við. Síðast skal svo nefna að ágætt bókasafn er þar. Sprengfullt af drengjabókum sem sumar eru næstum lesnar sundur. *Knattspyrna. í hverjum flokki er að sjálfsögðu haldið- knattspyrnumót og keppa þá borðin hvert á móti öðru (eins og alltaf hefur verið). %Annað. Vitanlega mega drengirnir gera hvað þeir vilja við tímann. Sumir fara til dæmis í skógargöngu eða leika sér í trönuborgunum svo eitthvað sé nefnt. KL. 12.00 — Hádegismatur. Þarf ekki frekari kynningar við. KL. 13.00 — Frjáls tími. Á boðstólnum er allt það sama og á morgnana nema í staðinn fyrir knattspyrnu koma frjálsar íþróttir úti á velli. Þar er kastað spjóti og kringlu og varpað kúlu. Stokkin langstökk, hástökk og þrístökk og hlaupin spretthlaup og langhlaup. Allt með misjöfnum árangri, en það skiptir ekki öllu máli að sigra, heldur að vera með. KL. 15.00 — Miðdegiskaffi. Heimabakaðar kökur og mjólk með. KL. 15.30 — Frjáls tími. Þarfnast ekki frekari kynningar. KL. 18.00 — Kvöldmatur. KL. 19.00 — Frjáls tími. KL. 20.30 — Kvöldsopi. Mjólkurkex og mjólkurglas. KL. 21.00 — Kvöldvaka. Haldin í sal Gamla skála. Mikið sungið (eins og alltaf). Leikir, leikrit, framhaldssagan á sínum stað og svo endað með hugleiðingu út frá Guðs orði. KL. 22.15 — Allir svífa í sængina sína undir deyjandi tónum lagsins ,,Ó vef mig vængjum þínum“ sem ómar í kvöldkyrrðinni út á vatn og upp í skóg við ákafar undirtektir sköpunarverksins. KL. 23.00 — Ró. Allir drengirnir eiga að vera sofnaðir á þeim tíma, og sofa vel til að takast á við nýjan dag. Starfs- fólkið kemur saman og lýkur deginum með lestri og bæn. Hér í lokin skal geta þess að dagskipun er ekki alltaf nákvæmlega eins og Iýst var hér að ofan. Margt er gert til tilbreytingar. Mætti nefna sólbaðsferðir í Oddakot sem er baðströnd okkar Skógarmanna. Gönguferðir eru nokkuð vinsælar. Þá er oftast farið að Kúvallafossum. Skógarleikjunum má ekki gleyma. Síðustu tvö sumur hefur Setuliðs og landgönguliðsleikur, sem er ákveðið afbrigði af Indíánaleiknum gamla, notið mikilla vinsælda. Og fleira og fleira. Fjölbreytnin þarf að vera í fyrirrúmi þegar hafa þarf ofan af fyrir slíkum fjölda drengja. En þar sem eru um 90 í hverjum flokki nú í sumar. 14

x

Lindin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.