Lindin - 01.09.2003, Side 4
Vetrarstarf
KFUM og KFUK
vöru. Skemmtiatriði, verkefni,
ratleikir; íþróttir; heimsóknir og
söngur eru dæmi um nokkur
hefðbundin dagskráratriði og á
hverjum fundi er stutt fræðsla
um kristna trú. I vetrarstarfinu
eru auk þess ýmsar sameiginleg-
ar uppákomun svo sem árshá-
tíð, bandýmót, fótboltamót,
miðnæturi'þróttamót, hæfileika-
sýning, kassabílarallý, spurninga-
keppni, jólaföndur og fleira.
Ferðalög eru einnig vinsæll liður
í starfnu.
Leiðtogar í æskulýðsstarfi
KFUM og KFUK eru um 150-
200 sjálfboðaliðar sem taka þátt
í markvissum leiðtoganámskeið-
um á hverju ári. Þar er meðal
annars fjallað um þroska barna
og unglinga, mismunandi starfs-
aðferðir í æskulýðsstarfi, helgi-
hald, gítarleik, einelti, aga, sjálfs-
virðingu og margt fleira sem
máli skiptir í samskiptum við
börn og ungmenni.
Sunnudaginn 14. september
verður sérstök hausthátíð í húsi
KFUM og KFUK við FHoltaveg
með fjölbreyttri dagskrá fyrir
alla aldurshópa. Hausthátíðin
markar upphaf vetrarstarfs fé-
laganna og eru allir velkomnir
Þrjár hliðar
Einn þríhyrningur
Félagsmerki KFUM og
KFUK hafa bæði jafn-
arma þriliyming sem ein-
kennandi tákn. Merking þess
er í raun tvi'þætt. I fýrsta lagi
vísar þri'hyrningurinn til krist-
innar trúarjátningar sem ját-
ar trú á Guð sem föður son
og heilagan anda. I annan
stað vísar þríhyrningurinn til
þess að KFUM og KFUK
vilja stuðla að heilbrigði
mannsins til likama, sálar og
anda. Félögin líta svo á að
það sé hverri manneskju
mikilvægt til farsældar að
hlúð sé jafnt að öllum þess-
um þáttum mannlegs eðlis í
stað þess að einskorða sig
við einn þátt á kostnað
hinna. Þess vegna leitast
KFUM og KFUK við að
bjóða upp á félagsstarf þar
sem fléttað er saman hollri
hreyfingu, þroskandi félags-
starfi og uppbyggjandi helgi-
haldi. Fjölbreytnin í félags-
starfinu er lika í góðu sam-
ræmi við áherslu stofnand-
ans, séra Friðriks Friðriks-
sonar: Ekkert sannarlega
mannlegt er óviðkomandi
sönnum kristindómi.
4
Á veturna fer fram
fjölbreytt félagsstarf
á vegum KFUM og
KFUK þar sem saman
fer gaman og alvara.
I haust starfa nálægt 40 deildir á
liðlega 20 mismunandi stöðum.
Á fundum í KFUM og KFUK
er lögð áhersla á að flétta sam-
an leik og fræðslu, gamni og al-
Sunnudaginn
14. september verður
hausthátíð í húsi
KFUM og KFUK við
Holtaveg með fjöl-
breyttri dagskrá fyrir
alla aldurshópa.
Allir velkomnir.
KFUM og KFUK eru æsku-
lýðsfélög sem vilja bjóða
börnum og unglingum upp á
áhugavert og fjölbreytt tóm-
stundastarf á kristnum grunni.
Vetrarstarf æskulýðsstarfsins
hefst í september á hverju
hausti og stendur fram á vor
I því felst að haldnir eru vikuleg-
ir fundir sem yfirleitt standa í
um eina til tvær klukkustundir í
senn. Starfinu er skipt í deildir
eftir aldri og eru þær ýmist
kynjaskiptar eða blandaðar
Velkomin á heimasíðu
KFUM og KFUK
Þú getur valið
hvora slóðina
sem er
www.kfum.is
www.kfuk.is