Lindin - 01.09.2003, Blaðsíða 11
Vinagarður, Leikskóli KFUM og KFUK í Reykjavík, hefur aðstöðu í nýju og glæsilegu húsnæði á
lóð félaganna við Holtaveg í Laugardal. Einnig nýtur skólinn góðs
af salarkynnum í aðalstöðvum félaganna til leikja og inniíþrótta.
Vinagarður í Laugardal
Inóvember í haust verða 28
ár liðin frá því að KFUM og
KFUK í Fteykjavík hófu leikskóla-
rekstur í húsi félaganna við
Langagerði I. I rúm 26 ár starf-
aði skólinn þar við fremur
þröngan húsakost en vorið
2002 flutti hann búferlum í nýtt
og glæsilegt húsnæði á lóð fé-
laganna við Holtaveg í Laugar-
dal.Við flutninginn var skólinn
stækkaður úrtveimur deildum í
þrjár og dvalarplássum fjölgað
úr 30 í 57.Var það löngu orðið
tímabært því biðlistar voru lang-
ir við skólann.
Leikskóli KFUM og KFUK
byggir á kristilegum grunni og
heitirVinagarður I honum er
lögð áhersla á kristilegt siðgæði
og að börnin öðlist grundvallar-
traust sem er viðfangsefni í trú-
arlegri uppeldismótun. Sérstök
áhersla er lögð á vináttuna og
er hún eitt af sérkennum skól-
ans. Á hverjum vetri vinna
börnin þemaverkefni og stendur
hvert þeirra yfir í eina önn.
Dæmi um þemaverkefni eru:
Fötlun.tré, endurvinnsla og him-
inninn. Þemavinnan er ávallt
tengd vináttunni á einhvern
hátt. Markmið leikskólans er að
ala upp sjálfstæða og ábyrga
einstaklinga sem elska og virða
hver annan og náungann eins
og sjálfa sig. Ennfremur að miðla
íslenskum menningararfi og
stuðla að persónulegum þroska
barnanna.
Markmið starfsins með börnun-
um er:
• Að skapa vinalegt andrúms-
loft
• Að efla virðingu og sjálfstæði
• Að efla frumkvæði og sköp-
unargleði
• Að efla kristilegt siðgæði
Gert er ráð fyrir að öll börn-
in fái markvissa hreyfingu á
hverjum degi, bæði í frjálsum
leik og útiveru en einnig á
skipulögðum hreyfistundum.
Daglega eru liVa sögu- og sam-
verustundir þar sem meðal ann-
ars er lesið úr Biblíu litlu barn-
anna, farið með stutta bæn og
sungið. Eins má geta þess að
öflugt foreldrafélag er rekið í
tengslum við skólann.
Vinagarður var form-
lega tekinn í notkun
2. apríl 2002. Hér má
sjá Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur,
þáverandi borgar-
stjóra, klippa á borða
af því tilefni. Til hlið-
ar við hana standa
María Sighvatsdóttir
leikskólastjóri, sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson
dómprófastur og
Arnmundur Kr. Jónas-
son stjórnarformaður
leikskólans.