Lindin

Volume

Lindin - 01.09.2003, Page 16

Lindin - 01.09.2003, Page 16
Börn og sorg ÍÉÉÉSS Séra Sigurður Pálsson, prestur við Hallgríms- kirkju í Reykjavík. SVrgja börn? _ Er eitthvað til sem heitir sorg barna? Verða þau ekki bara leið um stundar- sakir og halda lífinu síðan áfram glöð í bragði? Þekking á viðbrögðum barna við sárum missi hefur verið að aukast á liðnum áratugum. Margvíslegar rann- sóknir á viðbrögðum barna við að- skilnaði og missi hafa leitt í Ijós að börn syrgja ekki síður en fullorðnir. Sumt er líkt með sorg barna og full- orðinna en annað er ólíkt og ræðst af þroska þeirra og þekkingu. Eitt mikilvægasta viðfangsefni hverr- ar manneskju er að mynda tengsl við aðra. Það er ein af meginforsendum þess að við getum lifað farsælu lífi. Fyrstu tengsl barns við þau sem annast það í frumbernsku ráða miklu um til- finningatengsl barnsins síðar á æfinni. Sorg er tilfinningaleg viðbrögð við rofnum tengslum. Því nánari sem tengslin hafa verið þeim mun sárari er sorgin og þeim mun lengri tíma tekur að takast á við hana. Það sem hér verður sagt um sorg og sorgarvið- brögð barna miðast fyrst og fremst við sorg sem dauðtfall vekur. Þeiiasem eru samfei;ða börnum, hvort heldur er í leik eða starfi, ættu samt að minnast þess að fjöldi barna missir annað for- eldra sinna út af heimilinu vegna skiln- aða á ári hverju. Slíkur missir vekur oft sorgarviðbrögð hjá börnum. Jafnvel þótt mörg börn fái tækifæri til að við- halda tengslum við það foreldri sem fer, eru þau börn mörg sem fara á mis við tengsl við það foreldri sem flytur af heimilinu og geta þá búið við langvar- andi sorg. Börn virðast almennt dylja sorg sína fremur en fullorðnir. Sökum þess hve sorgin gengur nærri tilfinningalífi þeirra leitast þau oft við að beina huganum að einhverju skemmtilegu til að hlífa sér. Börn fela líka oft sorg sína, meðvit- að eða ómeðvitað, til að hlífa fullorðn- um syrgjendum í kringum sig og reyna þess í stað að geðjast þeim og gleðja. Gömul sorg getur vitjað barna og unglinga að nýju í hvert sinn sem þau ganga í gegnum nýtt þroskaskeið. Með auknum þroska kemur nýr skilningur á dauðanum og ný vitund um þann missi sem þau hafa orðið fyrir. Tilteknar aðstæður eru börnum mikilvægar eigi þau að geta syrgt náinn ástvin á heilbrigðan og farsælan hátt. Það sem barni er mikilvægt er: • Að það hafi verið í nánu og traustu sambandi við foreldra sína fýrir missinn. • Að það fái skýringar og réttar upp- lýsingar um það sem gerst hefur, fái tækifæri til að spyrja um hvaðeina og fái eins heiðarleg svör við spurning- um sínum og kostur er.Allar spurn- ingar barnsins ber að taka alvarlega. • Að það geti fengið að láta tilfinningar sínar í Ijós, hvort heldur er sársauki, söknuður eða reiði. • Að það fái að taka þátt í sorg og sorgarathöfnum fjölskyldunnar. • Að það njóti umhyggjusamrar og huggandi nærveru þess foreldris sem hjá því er og/eða einhvers sem því er nákominn og sé fullvissað um að þau tengsl rofni ekki og að um það verði hugsað. Það getur reynst örðugt að mæta öllum þessum kröfum, en miklu skiptir að það sé reynt eftir því sem aðstæður leyfa. 16 LINDIN

x

Lindin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lindin
https://timarit.is/publication/1539

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.